Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 52
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Ég er menntaður sjúkra-þjálfari og hef hátt í tuttugu ára reynslu í að hjálpa fólki
að ná sínum markmiðum, hvort
sem það er að léttast, styrkjast,
auka orkuna sína eða jafna sig
eftir veikindi, segir Linda en
námskeiðin hennar Endurheimtu
orkuna hafa vakið mikla athygli.
„Yfir 100 manns hafa lokið nám-
skeiðinu með frábærum árangri.
Þeir sem hafa lokið námskeiðinu
eru almennt léttari á sálinni, með
minni verki, meiri orku og með-
vitaðri um heilnæmt mataræði og
umhverfið.“
Linda leggur mikla áherslu á að
finna rót vandans hjá hverjum og
einum og gerir áætlun út frá því.
Hún segir nauðsynlegt að leiðrétta
bólguástand sem hefur myndast í
líkamanum með breyttu mataræði
þar sem 70-80% af ónæmiskerfinu
liggi í meltingarveginum og því sé
mikilvægt að stuðla að heilbrigðri
þarmaflóru þegar tekin eru skref í
átt að bættri heilsu. Þarmaflóran
sé í rauninni forsenda heilbrigðrar
starfsemi meltingarfæranna, en
einnig hafi hún áhrif á taugakerfið
og hormónakerfið. „Við förum svo
vel yfir hvaða fleiri umhverfis-
þættir geta haft skaðleg áhrif á
okkur ásamt því hvaða líkams-
staða og æfingar henta hverjum og
einum. Þá er ég með fræðslu um
svefnvenjur og mikilvægi þeirra
ásamt opnum hugleiðslutíma alla
föstudaga.“
Lítil verkefni daglega
Námskeiðið byrjar á sex vikna
prógrammi þar sem Linda setur
þátttakendum fyrir verkefni
á hverjum degi. „Þetta eru lítil
verkefni sem fólk setur hægt og
rólega inn í sínar daglegu venjur.
Stór partur af þessu er að vera
á hreinu mataræði í 24 daga til
þess að gefa líkamanum tæki-
færi til að núllstilla sig. Eftir að
fyrsta áfanganum er lokið tekur
við annað tímabil þar sem lögð er
áhersla á fjölbreyttar æfingar sem
ég vel vandlega útfrá markmiðum
hvers fyrir sig.“ Innifalið í nám-
skeiðinu er einnig árs aðgangur
að sjúkraþjálfara. „Þeir sem eru
hjá mér á námskeiði geta alltaf
leitað til mín og ég gef persónu-
lega og góða þjónustu. Miðað er
við vikuleg samskipti til þess að ég
geti fylgst vel með hvernig gengur
og hvort það þurfi að uppfæra
eða breyta æfingum. Æfingarnar
henta öllum, hvort sem þú vilt
losna við verki, léttast, styrkjast,
auka þol eða verða sáttari í eigin
skinni,“ segir Linda og bætir við að
námskeiðið sé sniðið að hverjum
og einum. „Það frábæra við þetta
námskeið er að þátttakendur
stjórna sínum tíma og geta gert
æfingar nákvæmlega þegar þeim
hentar, ég fylgist vel með og passa
upp á að markmiðum sé fylgt.
Samskiptin fara fram í gegnum
æfingaapp, tölvupóst eða á
Facebook. Á átta vikna fresti upp-
færi ég æfingaáætlunina til þess að
þú fáir sem mest út úr þjálfuninni.
Æfingarnar er ýmist hægt að gera í
tækjasal eða heima og við vinnum
með líkama og sál sem heild og
finnum saman rætur vandans. Það
er ótalmargt hægt að gera til að
láta sér líða betur og öðlast meiri
orku til þess að geta notið lífsins
til fulls,“ segir Linda Gunn sjúkra-
þjálfari að lokum.
Opið hús 3. janúar
Föstudaginn 3. janúar milli
klukkan 17-19 verður opið hús við
Kirkjulund 19 í Garðabæ þar sem
Linda tekur vel á móti þeim sem
vilja kynna sér námskeiðin betur
og þá þjónustu sem hún býður upp
á. Léttar veitingar verða í boði og
allir hjartanlega velkomnir.
Allar nánari upplýsingar á endur-
heimt.is og í síma 832-0404.
Meiri orka,
minni verkir og
bætt melting
Sjúkraþjálfarinn Linda Gunnarsdóttir hefur langa reynslu
af því að aðstoða fólk til að ná heilsu með því að finna
jafnvægi milli mataræðis, hreyfingar, svefns og um-
hverfisáhrifa sem geta haft skaðleg áhrif á líkamann.
Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari hefur tuttugu ára reynslu í að hjálpa
fólki að ná markmiðum sínum og býður upp á sérsniðin námskeið til að
bæta heilsu og létta lífið, bæði andlega og líkamlega.
Könnunin leiddi í ljós að þeir sem eru elstir svarenda, 56-79 ára, gefa sjálfum sér
hæstu einkunn. Sjö af hverjum tíu
eldri borgurum eru ánægðir með
aldur sinn og eru sáttir við sjálfa
sig. Könnunin sýnir enn fremur að
þeir sem eru eldri hafa meira sjálfs-
traust en þeir sem yngri eru. Þeim
líður betur og eru sáttari við lífið
en yngri kynslóðir. Þeir eru sömu-
leiðis sáttari við umhverfi sitt og
einkalíf. Þá var elsta kynslóðin
einnig ánægðari með heilsu sína.
Alls tóku 1.196 manns þátt í
könnuninni á aldrinum 16-79 ára.
Svo virðist vera sem áhyggjur,
streita, ótti, reiði og öfund minnki
með aldrinum. Fólk er að flestu
leyti sáttara við sig þegar það eld-
ist og það er auðveldara fyrir þann
aldurshóp að sætta sig við ýmsa
óvissu í lífinu. Svo virðist sem
lífsreynslan kenni fólki að takast á
við mismunandi aðstæður í lífinu.
Þegar maður þekkir aðstæð-
urnar verða viðbrögðin ekki eins
ógnvekjandi og fyrir þá sem ekki
þekkja til þeirra. Reynslan kennir
okkur ýmislegt, að því er kemur
fram í tímaritinu MåBra.
Önnur rannsókn sem gerð var
við háskólann í Washington í
Seattle í Bandaríkjunum sýnir
hvernig fólk frá mismunandi
heimshlutum upplifir sig miðað
við aldur. Skoðað var hvernig fólk
sem komið er yfir sjötugt upplifir
sig yngra. Mjög margir upplifðu
sig sem 65 ára þótt þeir væru tíu
árum eldri í raun. Rannsóknin
fór fram í 195 löndum í gegnum
gagnagrunn Global Burden of
Diseases. Á grundvelli upplýsinga
reiknuðu vísindamennirnir aldur
fólks af mismunandi þjóðernum.
Niðurstöður sýna að huglægur
aldur er mismunandi eftir löndum.
Í Japan og Sviss upplifðu þeir sem
eru 76 ára sig sem 65 ára. Í Svíþjóð
upplifðu þeir sem eru 73 ára sig
vera 65 ára en Svíar komu best út
af Norðurlandaþjóðum. Í Banda-
ríkjunum var upplifun aldurs ekki
mikil því þeir sem voru 68,5 ára
töldu sig geta verið 65 ára.
Hér fyrir neðan kemur fram
hversu gamalt fólk er þegar
það upplifir sig sem 65 ára eftir
löndum.
1 Japan: 76,1 ára
2 Sviss: 76,1 ára
3 Frakkland: 76,0 ára
4 Singapúr: 76,0 ára
5 Kúveit: 75,3 ára
Það er gott að eldast glaður
Svíar verða ánægðari með sig eftir því sem þeir eldast, samkvæmt nýrri rannsókn sem fjarskipta-
fyrirtækið Doro lét framkvæma. Góð heilsa og sjálfstraust gerir fólk hamingjusamt á efri árum.
Innifalið í námskeiðinu:
n Dagsverkefni fyrir 36 daga –
handbók með öllum upplýs-
ingum og fræðslu sem þú þarft
n Æfingaapp, sérsniðnar heima-
æfingar fyrir þig og þitt mark-
mið
n Átta fræðslufyrirlestrar í formi
myndbanda ásamt glærum
n Rafbók með uppskriftum
(morgunverðir, millimál og
kvöldverðir)
n Rafbók með vikumatseðli og
innkaupalista
n Aðgangur að lokuðum stuðn-
ingshóp á Facebook
n Opinn hugleiðslutími alla
föstudaga
n Upphafs- og lokaviðtal
n Sérsniðinn bætiefnalisti
n 365 daga aðgangur að æf-
ingaappi og ótakmarkaður
aðgangur að sjúkraþjálfara
n Uppfærð æfingaáætlun á átta
vikna fresti
Eldra fólk er hamingjusamara en margir þeirra yngri. Fólki finnst því líka vera yngra en áður þegar það eldist.
22 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA