Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 55
Möndlur eru mjög góðar sem nasl á milli mála. Það má vel breyta þeim með kryddi og gera þær enn betri.
200 g möndlur
2 msk. salt
2 msk. smjör
4 msk. ólífuolía
¼ tsk. cayenne-pipar
Eða 1 tsk. reykt paprika
Eða ¼ tsk. chili-pipar
Það er bæði hægt að útbúa möndlurnar
á pönnu eða í ofni. Setjið smjör og
olíu á pönnu. Setjið möndlurnar út í
og hrærið stöðugt í fimm mínútur.
Setjið saltið og krydd í skál og dreifið
yfir möndlurnar.
Eða stillið ofninn á 185°C.
Setjið möndlurnar á bökunarpappír
á ofnplötu og bakið í 7-8 mínútur án
krydds. Takið möndlurnar út og veltið
þeim upp úr olíu og kryddi. Setjið aftur í
ofninn og bakið í aðrar 7-8 mínútur.
Kryddaðar möndlur
Möndlur eru
hollt og gott
nasl.
Streita eykur hættuna á ýmsum
kvillum.
Smá álag af og til drepur okkur ekki. Reyndar geta stuttar álagstarnir gefið
okkur aukna orku. En ef streitan
er langvinn getur hún aukið
áhættuna á svefnleysi, þunglyndi,
offitu, hjartasjúkdómum og f leiri
sjúkdómum.
Langir vinnudagar, skortur á
nætursvefni, lítil hreyfing, lélegt
mataræði og að verja ekki tíma
með fjölskyldu og vinum getur
leitt til streitu. Það er nánast
ómögulegt að forðast streitu með
öllu. En það er mikilvægt að reyna
að halda henni í lágmarki. Hug-
leiðsla og slökun, félagsleg sam-
skipti og gott frí er eitthvað sem
allir ættu að leyfa sér til að bæta
andlega líðan. Nú þegar nýtt ár
nálgast er tilvalið að þú setjir þér
það áramótaheit að draga mark-
visst úr streitu í daglegu lífi.
Mikilvægt að
draga út streitu
Hollt og gott mataræði er mikilvægt
á meðgöngu.
Öllum konum sem geta orðið barnshafandi er ráðlagt að taka 400 míkró-
gramma fólattöf lu (fólinsýru-
töf lu) daglega auk þess að borða
fólatríkan mat.
Rannsóknir hafa sýnt að fólat
dregur úr hættu á alvarlegum
fósturskaða á miðtaugakerfi.
Dökkgrænt grænmeti og annað
grænmeti, hnetur, möndlur,
baunir, ávextir og vítamínbætt
morgunkorn eru þær fæðuteg-
undir sem eru ríkastar af fólati.
Þótt mikilvægt sé að byrja að
taka fólat áður en meðganga hefst
er ekki ástæða til að hafa áhyggjur
þó að meðganga sé þegar hafin,
heldur einfaldlega byrja þegar í
stað að taka fólattöf lu og borða
fólatríka fæðu.
Ráðlagt er að taka fólattöf lu
daglega fyrstu 12 vikur meðgöngu
en eftir það ætti að leitast við að
fullnægja þörf fyrir fólat með fjöl-
breyttu mataræði.
Heimild: Mataræði á meðgöngu
Fólat – vernd
gegn fósturskaða
Verið velkomin í verslun okkar
Opið mán.-fim. kl. 8:30–17:00 og fös 8:30 - 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
HJÁ FASTUS FÆRÐU
HEILSUTENGDAR VÖRUR
Fyrir góða byrjun á nýju ári. Þrekhjól, hlaupabretti, ketómæla, rúllur og margt fleira.
ÞREKHJÓL
ÍÞRÓTTADRYKKIR
KETÓMÆLAR
RÚLLUR, BOLTAR O.FL
KYNNINGARBLAÐ 25 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA