Læknablaðið - Oct 2019, Page 31
LÆKNAblaðið 2019/105 447
Y F I R L I T
lungnasjúkdóma eins og astma eða langvinna lungnateppu geta
fengið versnandi einkenni með hósta, uppgangi, öndunarerfið
leikum og þyngslum fyrir brjósti. Ef kornastærð ösku er 4 μm eða
minni getur hún borist í lungnablöðrur. Í augum geta komið fram
særindi, kláði og roði. Einnig getur orðið tárarennsli og það geta
komið fram sár á hornhimnu. Það geta einnig komið fram erting,
sviði, roði og kláði í húð. Lítið er enn vitað um langtíma áhrif
gosösku á heilsufar manna. Mjög erfitt er að rannsaka þessi áhrif
vegna þess að önnur loftmengun er einnig til staðar. Ekki eru til
neinar rannsóknir á langtíma áhrifum á Íslandi.3
Margvíslegar lofttegundir geta komið upp í eldgosum. Áhrif
um lofttegunda má skipta í tvennt. Í fyrsta lagi lofttegundir sem
eru ertandi fyrir slímhúðir og húð. Í lágum styrkleika valda þær
ertingu í augum og efri hluta öndunarfæra. Í hærri styrk valda
þær ertingu og bruna í húð og í enn hærri styrk hafa þær áhrif á
neðri hluta öndunarfæra og geta valdið lungnabjúg vegna bráðs
lungnaskaða. Dæmi um það er brennisteinsdíoxíð og brenni
steinssýra. Í öðru lagi eru lofttegundir sem valda köfnun vegna
áhrifa á flutning súrefnis og öndunarkeðjuna í frumum. Dæmi um
það er kolmónoxíð.
Losun af mannavöldum
Saga loftmengunar
Í huga margra er loftmengun eitthvað sem kom til með iðn
byltingunni. En raunin er sú að loftmengun af manna völdum á
sér mun lengri sögu. Leiða má líkur að því að fyrstu áhrif loft
mengunar á heilsu fólks hafi komið fram á steinöld þegar maður
inn lærði að nýta sér opinn eld til matreiðslu. Elstu rituðu heim
ildir um loftmengun eru frá tíma Rómaveldis þar sem lýst er illa
þefjandi og fúlu lofti í rómverskum borgum. Líklegt má telja að
þar hafi sorp, skólp og notkun elds við matargerð átt hlut að máli.
Saga loftmengunar er talsvert tengd sögu London. Elstu heimild
ir um það sem kalla mætti kvartanir vegna loftmengunar eru frá
London og eru frá árinu 852. Hugtakið loftmengun var reyndar
ekki til þá en talað er um fúlt loft vegna bruna kola til húshitunar.
Fyrstu lög sem tengdust loftmengun voru sett í London á 12. öld
en þá samþykkti enska þingið lög sem bönnuðu ákveðna gerð af
kolum. Fyrsta ritið sem kalla má fræðirit um loftmengun var skrif
að af enska fræðimanninum John Evelyn og kom það út árið 1661
og fjallaði um loftmengun í London. Þar fjallar hann meðal annars
um möguleg áhrif reyks í London á heilsu íbúanna og kemur með
tillögur til að draga úr reyknum sem lá iðulega yfir borginni.34 Í
nútímasögu loftmengunar má segja að alger þáttaskil hafi orðið
í viðhorfi almennings og stjórnvalda eftir nokkra mjög slæma
mengunardaga í London í byrjun desember 1952. Talið er að um
6000 manns hafi látist í borginni vegna loftmengunar þessa daga
og varð þessi atburður til þess að stórauka rannsóknir á möguleg
um áhrifum loftmengunar á heilsu fólks.35
Losun á Íslandi af mannavöldum
Eins og sjá má í töflu I eru uppsprettur loftmengunar mismun
andi. Á Íslandi er það loftmengun frá bílaumferð sem helst hef
ur áhrif á heilsu fólks. Losun frá bílum á sér almennt stað mjög
nálægt heimilum, skólum og öðrum stöðum þar sem fólk dvelur.
Helstu mengunarefni frá umferð eru svifryk og nituroxíð. Stór
hluti svifryks frá umferð kemur frá vegyfirborðinu og þar er slit
nagladekkja á slitlagi ráðandi þáttur. Á Íslandi eru einnig aðrar
stórar mengunaruppsprettur, svo sem fiskiskip, flugvélar og stór
iðja. Þótt losun loftmengunarefna frá þessari starfsemi geti verið
umtalsverð er losunin allajafna fjær mannabústöðum og áhrifin á
heilsu fólks því minni en frá bílaumferð. Í næsta nágrenni stórra
hafna getur þó verið allnokkur loftmengun. Eitt af því sem gagn
ast til að draga úr loftmengun í nágrenni hafna er að koma á land
tengingu rafmagns við skip í höfn til að lágmarka mengun frá
keyrslu ljósavéla.
Helsta mengunarefnið frá stóriðju er brennisteinsdíoxíð. Fimm
stóriðjusvæði eru á landinu og er brennisteinsdíoxíðmengun að
mestu bundin við svæðin nálægt iðjuverum. Gera má ráð fyr
ir að svæði þar brennisteinsdíoxíðs gætir að einhverju ráði sé í
nokkurra kílómetra radíus umhverfis iðjuverin. Ekki endilega
hringlaga heldur aflöng í takt við ríkjandi vindáttir á hverjum stað.
Talsverð losun brennisteinsvetnis er frá jarðvarmavirkjunum
á Íslandi. Mengun frá Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkj
un mælist reglulega á mælistöðvum á höfuðborgarsvæðinu og
í Hveragerði. Brennisteinsvetni hefur tærandi áhrif á raftæki og
mannvirki úr málmi.
Frá byggingarsvæðum getur verið talsverð loftmengun, bæði
frá útblæstri vinnuvéla en ekki síður frá ryki sem þyrlast upp við
framkvæmdirnar. Þetta getur valdið umtalsverðri rykmengun í
næsta nágrenni. Þetta getur til dæmis verið steypuryk frá niður
broti bygginga en hægt er að lágmarka það með því að sprauta
vatni á þá byggingarhluta sem verið er að rífa hverju sinni. Einnig
getur verið talsverð rykmengun frá óhreinindum sem berast með
vörubíladekkjum út í almenna gatnakerfið. Dæmi eru um að götur
í þéttbýli sé moldugar mörg hundruð metra út frá framkvæmda
svæði og svifryksmengun frá þessu jarðvegsryki því talsverð í ná
grenninu. Dæmi um mótvægisaðgerðir sem hægt er að grípa til er
að nota sérstakar dekkjaþvottavélar fyrir vörubílana áður en þeir
Tafla II. Heilsuverndarmörk loftmengunarefna samkvæmt íslenskum
reglugerðum.
Loft-
mengunar-
efni
Tími
mælinga
Heilsu-
verndarmörk
Leyfilegur fjöldi
skipta yfir mörkum
ár hvert*
PM10 Sólarhringsmeðaltal 50 µg/m3 35
PM10 Ársmeðaltal 40 µg/m3 -
PM2,5 Ársmeðaltal 20 µg/m3 -
NO2 Klukkustundarmeðaltal 200 µg/m3 18
NO2 Sólarhringsmeðaltal 75 µg/m3 7
NO2 Ársmeðaltal 40 µg/m3 -
O3 Hæsta 8-klst.
hlaupandi meðaltal
120 µg/m3 0
SO2 Klukkustundarmeðaltal 350 µg/m3 24
SO2 Sólarhringsmeðaltal 125 µg/m3 3
H2S Hlaupandi 24-klst.
meðaltal
50 µg/m3 3
H2S Ársmeðaltal 5 µg/m3 -
*Á ekki við um ársmeðaltal.