Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - okt 2019, Qupperneq 41

Læknablaðið - okt 2019, Qupperneq 41
LÆKNAblaðið 2019/105 457 Ríkisendurskoðunar 12% lægri en sam­ bærilegra háskólastétta, þar tel ég víst að eimi eftir af kynbundnum launamun.“ Alma bendir á að rannsóknir hafi sýnt að konur séu síður í því að semja um eigin hag, sem geti fræðilega verði skýring á launamun. „Kannski væri ekki úr vegi að Læknafélagið héldi námskeið í slíkri samningatækni sérstaklega fyrir konur,“ veltir hún fyrir sér. Alma segir að einmitt námskeiðið um kynjaðar skipulagsheildir hafi komið sér hvað mest á óvart í náminu. „Við lærðum hvernig við horfum á hluti með kynjuðum gleraugum. Ég hef aldrei verið upptekin af því. Mér finnst ég hafa fengið mín tæki­ færi,“ segir hún. „Ég hef verið yfirlæknir bæði svæf­ inga­ og gjörgæslu. Ég var fyrsta konan til að verða landlæknir, fyrsta konan til að verða þyrlulæknir. Ég hef fengið mín tækifæri og kannski ekki verið að hugsa nógu mikið um jafnréttismál,“ segir hún hreinskilnislega. Konur spurðar öðruvísi en karlar „En það rann upp fyrir mér ljós hvað kynjamismunun er rótgróin og ómeðvituð; að við hugsum út frá kyni og staðalímynd­ um sem við höfum búið til sjálf. Eftir nám­ skeiðið horfi ég öðrum augum á hlutina. Ég sé þetta meira og meira,“ segir hún. „Þegar ég tók við landlæknisembættinu var ég spurð hvort ég væri kvíðin. Heldur þú að Birgir Jakobsson hafi verið spurður hvort hann væri kvíðinn fyrir starfinu? Ég er ekki kvíðin og ég held að ég hafi ein­ göngu verið spurð af því að ég er kona,“ segir Alma. „Var ekki forsætisráðherra spurð hvort hún væri feimin að hitta Pence? Þegar Drífa Snædal tók við sem forseti ASÍ, var sagt: Já, þú bara hoppar út í djúpu laugina,“ segir Alma og blaðamaður sam­ sinnir orðum hennar enda var hún sjálf spurð þegar hún tók við sem ritstjóri næst­ stærsta dagblaðs landsins fyrir rúmum áratug hvort meira yrði um prjónaupp­ skriftir í blaðinu og hver sæi um unga­ barnið sem beið heima. „Ég sé þetta betur og betur, svo maður tali nú ekki um #MeToo­hreyfinguna. Hún virkilega opnaði augu mín,“ segir Alma. Brá við #MeToo-sögurnar „Mér brá auðvitað þegar ég las sögurnar sem íslenskir kvenlæknar deildu í sam­ bandi við #MeToo. Svo brá mér líka við könnunina sem Læknafélagið gerði. Það hefði verið áhugavert að vita, ef búið er að vinna með þá könnun frekar, hvort þar sæjust ólíkar niðurstöður miðað við kyn og aldur.“ Alma Möller opnaði augun fyrir ólíkri stöðu kynjanna í námi í opinberri stjórnsýslu þar sem nemendur fengu gögn og staðreyndir á borðið sem sýndu muninn. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.