Læknablaðið - Oct 2019, Page 49
LÆKNAblaðið 2019/105 465
LAUS STÖRF
Læknir
Auglýst er eftir sérfræðingi í heimilislækningum eða almennum lækni í 80-100% stöðu eða
eftir samkomulagi. Hæfnis- og menntunarkröfur má finna á heimasíðu stofnunarinnar,
www.hsn.is eða á www.starfatorg.is þar sem tekið er á móti umsóknum rafrænt.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2019.
Sérnámsstaða í heimilislækningum
Laus er til umsóknar sérnámsstaða í heimilislækningum við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Heilsugæslunni á Akureyri (HAk). Námsstaðan veitist til 5 ára frá 15. október 2019 eða
eftir samkomulagi. Sérnámslæknir vinnur að skipulagi námsins í samvinnu við
mentor og/eða kennslustjóra sérnáms. Námið fer fram á heilsugæslustöð.
Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2019.
Nánari upplýsingar um störfin veita:
Jón Torfi Halldórsson, yfirlæknir HSN Akureyri í síma 432 4610 eða jon.torfi.halldorsson@hsn.is.
Örn Ragnarsson, framkvæmdastjóri lækninga í síma 455 4000 eða orn.ragnarsson@hsn.is.
Laus er til umsóknar 100% staða yfirlæknis í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri.
Staðan veitist frá 1. desember 2019 eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Helgi Garðar Garðarsson forstöðulæknir geðlækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Starfið felur í sér þjónustu við sjúklinga á legudeild geðdeildar sjúkrahússins, göngudeild og bráðamóttöku,
ennfremur samvinnu við aðrar deildir sjúkrahússins og stofnanir á Norður- og Austurlandi. Starfinu fylgir
vaktaskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til
rannsóknarvinnu.
Hæfnikröfur:
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í geðlækningum. Auk fræðilegrar þekkingar og reynslu er lögð áhersla
á hæfileika á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Við leitum að geðlækni með reynslu í
almennum geðlækningum, reynsla við stjórnun er kostur en ekki skilyrði fyrir ráðningu.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa
gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar
rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið á Akureyri
~ fyrir samfélagið ~
ÖRYGGI - SAMVINNA - FRAMSÆKNI
Yfirlæknir - sérfræðingur í geðlækningum
UMSÓKNARFRESTUR:
28. OKTÓBER 2019
UMSÓKNIR:
SAK.IS/ATVINNA
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Nánari upplýsingar veita: Helgi Garðar Helgason - helgig@sak.is - sími 463 0100 og
Árni Jóhannesson - arnijo@sak.is - sími 463 0100