Læknablaðið - okt. 2019, Side 51
LÆKNAblaðið 2019/105 467
þátttakendur í dauðastríðinu og eftir
leiknum,“ lýsti Óttar. Þetta hafi byrjað
að breytast á 20. öldinni og með berkl
um og byggingu sjúkrahúsa.
„Allt í einu er dauðinn ekki hluti af
lífinu,“ sagði hann og að dauðinn hafi
verið fluttur inn á þar til gerðar stofn
anir, fólk hafi dáið eldra og einungis
einstaka barn látið lífið. „Dauðinn
verður ópersónulegur, hann verður
fjarlægur og hann flytur út úr lífi
fólks.“
Guð og dauðinn úr lífi fólks
Dauðinn sé þó alltaf nærstaddur en fólk átti
sig ekki á honum. „Í venjulegum fréttatíma
sjáum við fimm til tíu lík og í bíómyndum
sjáum við önnur tíu.“ Myndbrotin líði
framhjá án þess að fólk taki þátt. „Nú eru
líf og dauði orðin aðskilin fyrirbæri.“ Óttar
sagði þetta hafa haft mikil áhrif á afstöðu
fólks til dauðans.
„Ég held að þegar dauðinn flutti út af
heimili fólks hafi guð flutt með honum.
Dauðinn varð óraunverulegur og fólk
hættir að trúa að dauðinn sé til. Þá er
ákaflega lítil þörf fyrir guð.“ Þetta sé stóra
breytingin á andlegu lífi þjóðarinnar.
„En dauðinn í sjálfum sér er alltaf
samur við sig,“ sagði Óttar og lokaði góð
um ráðstefnumorgni með ljóðalestri og
söngnum um Þórð Malakoff sem þraukaði
þótt aðrir dánumenn dæju.
Kveðskapur um dauðann sem
Torfi flutti í erindi sínu
Muna skaltu fullt og fast
á ferð um lífsins Kjalveg,
á endanum þú útskrifast
alveg.
Þórarinn Eldjárn, úr bókinni: „Til í að vera til“
Deyr fé,
deyja frændur
deyr sjálfur hið sama
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur hið sama.
Eg veit einn
að aldri deyr
dómur um dauðan hvern.
Úr Hávamálum
Upp skalt á kjöl klífa,
köld er sævar drífa.
Kostaðu hug þinn herða,
hér skaltu lífið verða.
Skafl beygjattu skalli,
þótt skúr á þig falli.
Ást hafðir þú meyja,
eitt sinn skal hver deyja.
Vísa Þóris jökuls (Úr Sturlunga sögu)
Eiríkur Benjamínsson svæfingalæknir og Ársæll Jónsson
öldrunarlæknir.
Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur og Vilborg Sigurðar-
dóttir sagnfræðingur.
Jörg Vögele sagnfræðiprófessor við háskólann í
Düsseldorf.
Sverrir Guðjónsson söngvari talaði um dauðann og flutti tónlist í stíl.
Tryggi Ásmundsson lungnalæknir og Árni Kristinsson
hjartalæknir.