Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 12
Með aðgerðum stjórn- valda víða um heim til að styrkja atvinnulífið og bæta upp framleiðslutap mun losun og loftmengun vænt- anlega verða sem aldrei fyrr. Þrátt fyrir að kóróna-veiran hafi mikil áhrif á daglegt líf okkar og sé mörgum alvarleg ógn, þá hefur faraldurinn einnig haft merkilegar aukaverkanir. Mikill samdráttur í atvinnustarfsemi og samgöngum vegna aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar, svo sem sóttkví og marg- víslegar lokanir samfélaga, sést meðal annars í verulega minni loft- mengun í heiminum. Mjög hefur dregið úr losun köfnunarefnis- tvíoxíðs (NO2) út í andrúmsloftið, sem kemur að miklu leyti frá öku- tækjum, raforkuverum og iðnaði. Mengun í Kína minnkar verulega Í Kína hefur áhrifa veirunnar gætt hvað mest, enda er hún talin eiga upptök þar. Meira en 80 þúsund manns hafa greinst með veiruna í Kína og meira en þrjú þúsund látist. Stjórnvöld gripu til harka- legra lokunaraðgerða í borginni Wuhan í Hubei-héraði, þar sem fyrstu smit veirunnar greindust. Gervihnattamyndir bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA sýna hvað mengun hefur minnkað gríðarlega í Kína frá því veirunnar varð vart. Á fyrstu vikum ársins hefur styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) í andrúmsloftinu minnkað um tíu til þrjátíu prósent á þétt- býlum svæðum mið- og austur- hluta Kína, þar sem þungamiðju kínversks iðnaðar er að finna. Sérfræðingar NASA segja að stærsta skýringin liggi í miklum samdrætti atvinnustarfsemi vegna faraldursins. Fjölmörgum verk- smiðjum var lokað og mjög dró úr umferð, enda strangar ferðatak- markanir í gildi og íbúar hvattir til að halda sig heima. Það er þekkt að loftmengun er mikil í Kína. Flestum er ljóst að mikil loftmengun getur drepið fólk. Samkvæmt athugunum rannsókna- setursins „Our World in Data“ og Oxford háskóla er loftmengun eitt stærsta heilsufars- og umhverfis- vandamál í heiminum. Áætlað hefur verið að 3,4 milljónir ótíma- bærra dauðsfalla hafi verið rakin til loftmengunar árið 2017. Marshall Burke, aðstoðarpró- fessor við Stanford háskóla, hefur reiknað út að samdráttur í loft- mengun í Kína á þessu tímabili muni líklega bjarga 20 sinnum fleiri lífum en þeim sem glatast hafa vegna veirusýkingarinnar. Norður-Ítalía og New York Ítalía er annað svæði sem hefur orðið afar illa út í veirufaraldrinum. Þar reyna yfirvöld að hefta farald- urinn með víðtækum lokunum og skipa milljónum manna í sóttkví. Þetta hefur valdið því að mjög hefur dregið úr loftmengun á Ítalíu. Evrópska geimvísindastofn- unin (ESA) sendi nýlega frá sér gervihnattamyndir þar sem sést greinilega mikill og skyndilegur samdráttur í magni köfnunarefnis- díoxíðs yfir Norður-Ítalíu frá janúar til miðs febrúar. Vísindamenn ESA telja það vera tímabundinn sam- drátt vegna minni virkni atvinnu- starfsemi og samgangna. Sömu sögu er að segja frá New Faraldurinn dregur úr loftmengun Davíð Stefánsson david@frettabladid.is Loftmengun er eitt stærsta heilsufars- og umhverfisvandamál í heiminum og veldur milljónum ótímabærra dauðsfalla á hverju ári. MYND/GETTY Evrópska geimvísindastofnunin (ESA) sendi nýlega frá sér gervihnattamyndir teknar úr Copernicus Sentinel-5P sem fylgist með loftmengun. Þær sýna breytingarnar frá 1. janúar til 11. mars á Norður-Ítalíu í magni köfnunarefnis- tvíoxíðs (NO2) í andrúmslofti. Mengunin kemur að mestu frá ökutækjum, raforkuverum og iðnaði. MYND: ESA Ein afleiðing kórónaveiru- faraldursins er gríðarlegur samdráttur í losun köfnunar- efnisdíoxíðs (NO2) í Kína. Rauðu og gulu svæðin sýna þéttleika losunarinnar 20. janúar og 25. febrúar á þessu ári. MYND: NASA/JOSHUA STEVENS York borg þar sem faraldurinn geisar. Vísindamenn við Columbia háskólann segja að loftmengun hafi snarminnkað í borginni síðustu daga í kjölfar veirufaraldursins. Fólk heldur sig heima og dregið hefur úr umferð um þriðjung. Kol- sýringsmagn vegna útblásturs bíla hefur lækkað um 50 prósent og magn koltvísýrings hefur dregist saman um 10 prósent. Gegn loftslagsbreytingum En mun kórónaveiran stuðla að því sem stjórnmálaleiðtogar hafa hing- að til ekki getað, að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda? Varla. Ef fyrri alþjóðlegar krepp- ur, eins og fjárhagskreppur, gefa ein- hverjar vísbendingar er þetta aðeins tímabundið. Í umfjöllun dagblaðs- ins Washington Post um faraldur- inn og gróðurhúsalofttegundir, segir að losun á heimsvísu hafi minnkað merkjanlega í kjölfar fjár- málakreppunnar á árunum 2008 til 2009. Þá féll landsframleiðsla Bandaríkjanna niður um 4,3 pró- sent, atvinnuleysi tvöfaldaðist, hús- næðisverð og hlutabréfamarkaður hrundi. Þá dróst losun gróðurhúsa- lofttegunda á heimsvísu saman um 1,4 prósent en byrjaði f ljótt aftur að aukast. Á árunum 2009 til 2018 jókst losun um 16 prósent. Samdráttur í losun gróðurhúsa- lofttegunda var einnig greinilegur í kreppunni miklu árið 1929, þar sem atvinnuleysi í Bandaríkjunum fór í 25 prósent og þúsundir banka og fyrirtækja féllu. Losun á heimsvísu, sem þá var mun minni, minnkaði um 25 prósent á árunum frá 1929 til 1932. En hún jókst fljótt eftir það. Þannig sýnir sagan að langtíma- áhrif af kreppum eru lítil. Þær leiða almennt ekki til kerfisbundinna breytinga. Mengandi losun eykst áfram ár frá ári. Skýringin liggur í ríkum hagsmunum og gnægð af ódýru jarðefnaeldsneyti. Nú þegar hafa stjórnvöld víða um heim sett fram áætlanir og aðgerðir um hvernig megi hrista atvinnulífið af stað og bæta upp framleiðslutap. Því mun losun og loftmengun vænt- anlega verða sem aldrei fyrr. En veirufaraldurinn kann mögu- lega að leiða til þess að milljónir manna læri nýtt mynstur. Hvatt er til sveigjanlegri vinnustaða. Í stað samgangna er hvatt til fjarfunda og vinnu heima. Hugmyndin um að þurfa að ferðast á hverjum degi til vinnu á miðlægum stað kann að breytast og ferðalög verða þá með farsímum og músum í stað bíla. Afleiðingin yrði minni loftmengun og loftslagsbreytingar. Það er mögu- legt en ekki endilega líklegt. Útbreiðsla kórónaveir- unnar dregur verulega úr loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Atvinnulífið hægir á sér og fólk flýgur minna. Skammgóður vermir, nema samfélög heims verði endurskipulögð. 50% minna kolsýringsmagn er í andrúmslofti vegna útblást- urs bíla í New York. 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.