Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2020, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 21.03.2020, Qupperneq 26
D-vítamínskortur er algengur en hann getur haft mjög alvar- legar afleiðingar til lengri tíma. C-vítamín, hvítlaukur og krydd eins og engifer, hefur löngum verið þekkt sem nátt- úruleg ónæmisörvun, en vaxandi fjöldi klínískra rannsókna sannar að D-vítamín er ósungna hetjan sem við öll þurfum til að halda sýkingu í skefjum. D-vítamín gegnir gríðarlega víð- tæku hlutverki í líkamsstarfsemi okkar og hafa fjölmargar rann- sóknir gefið okkur vísbendingar um hversu alvarlegar afleiðingar D-vítamínskortur hefur í för með sér. Rekja má allt að 100 mismun- andi sjúkdóma og sjúkdómsein- kenni til skorts á D-vítamíni. Beinþynning getur verið afleiðing D-vítamínskorts D-vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum, en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma. Skiptir þetta víta- mín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, starfsemi vöðva og fyrir sterkar tennur og bein. Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlut- verki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu, byggja upp ónæmiskerfið og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti. D-vítamín er talið leika lykilhlut- verk gegn bólgum í líkamanum og skortur getur átt þátt í því að ónæmiskerfið virkar ekki sem skyldi. Einnig getur orðið aukin hætta á öllum helstu krabba- meinum, hjartasjúkdómum, minnisglöpum, sykursýki 1 og 2, MS, liðagigt, smitsjúkdómum og jafnvel meðgöngueitrun. D-vítamínskortur er algeng- ur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru með D-vítamín skort. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norð- lægum slóðum þjáist oftar af skorti en aðrir. Í september á síðasta ári voru birtar niðurstöður klínískra rannsókna við þennan sama skóla, þar sem skoðað var hvað þyrfti mikið magn í daglegri inntöku af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust með skort. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í sex mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir níu ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamín skort er að ræða, dugir ekki að taka bara ráðlagðan dagskammt, enda eru eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Skortur mikill á Íslandi Landskönnun á mataræði sex ára barna á Íslandi frá 2011–2012 sýndi að einungis um 25% barnanna fengu ráðlagðan dagskammt eða meira af D-vítamíni og var neysla fjórðungs barna undir lágmarks- þörf (2,5 μg/dag). Þessar tölur eru væntanlega orðnar betri í dag, en það er full þörf á stöðugri umfjöllun þar sem þetta vítamín er okkur svo lífsnauðsynlegt. Önnur rannsókn frá 2004 leiddi í ljós að 15% Íslendinga 30 ára og eldri þjáist af D-vítamínskorti. En á þeim tíma taldist vera skortur ef gildin voru undir 25 nmól/l sem er af mörgum erlendum sérfræðing- um talið allt of lágt viðmiðunar- gildi. Síðan þessi rannsókn var gerð hefur Landlæknisembættið hækkað skortsmörkin í 50 nmol/l en ákjósanlegast er að hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l. Hvar fáum við D-vítamín D-vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem við getum fengið úr fjölbreyttri fæðu, en aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB-geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn, nema kannski rétt yfir hásumarið. Landlæknisembættið hvetur fólk til þess að taka D-víta- mín sérstaklega í formi bætiefna. D-vítamín frá fæðingu Allir þurfa að taka inn D-vítamín og er ráðlagt að gefa ungabörnum það nánast alveg frá fæðingu eða frá tveggja vikna aldri. D-lúx munnúðarnir frá Better You eru hannaðir sérstaklega með þetta í huga en munnúði fyrir yngstu krílin er bragðlaus og inniheldur ráðlagðan dagskammt í einum úða. Munnúði kemur einnig í veg fyrir magaónot sem margir kann- ast við. Munnúði frá Better you Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín munnúðum sem henta hverju aldursbili fyrir sig og er í réttum skammtastærðum. Úðarnir eru einnig góðir fyrir þá sem vilja hækka gildi sín og svo eru þeir afar bragðgóðir og auð- veldir í notkun. Munnúði er góður kostur þar sem meltingin okkar getur verið undir álagi og dregið úr frásogi, en með því að úða D-lúx út í kinn förum við fram hjá melt- ingarkerfinu og tryggjum hraða og mikla upptöku. D-Lúx hentar grænmetisætum og sykursjúkum, sem og þeim sem eru á glútenlausu fæði. Munum eftir D-vítamíninu – alla daga. D-vítamín fyrir ónæmiskerfið! Þegar kemur að því að viðhalda heilsu okkar árið um kring, þar á meðal á tímum aukinnar áhættu eins og í dag, gegnir næring lykilhlutverki. D-vítamín er þar sérlega mikilvægt. Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín munnúðum sem henta hverju aldursbili fyrir sig og er í réttum skammtastærðum. D-vítamín munnúðarnir: n Tryggja hámarksupptöku n Eru sykurlausir og án gervi- efna n Innihalda 3ja mánaða skammt í hverju glasi Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Hair Volume – fyrir líflegra hár Aldrei haft jafn þykkt hár. – Edda Dungal Falleg gjöf sem gleður FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 1 . M A R S 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.