Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 27

Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 27
Við erum kannski ekki mesta tækni- fólkið við ballettdans- arar. Balletttímar eru venjulega mjög hefð- bundnir svo við erum bara að læra á þetta jafnóðum. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Sigrún Ósk Stefánsdóttir kennari við Listdansskólann hefur ásamt f leiri kennurum skólans streymt danstímum í gegnum Facebook og Instagram svo nemendurnir geti viðhaldið færni sinni meðan á samkomu- banninu stendur. „Við völdum að streyma beint frekar en að nota upptökur. Þannig sjáum við hverjir eru að fylgjast með og nemendurnir geta spurt okkur spurninga á meðan á kennslunni stendur,“ útskýrir Sigrún. „Það er þó galli á þessu að við getum ekki séð þau þó að þau sjái okkur. En þar sem við sjáum fram á fjögurra vikna samkomubann þar sem við getum ekki kennt þá er þetta bara málamyndalausn. Danskennsla fer yfirleitt fram í hópum og fólk er að hreyfa sig svo það er ekki hægt að tryggja tveggja metra millibil milli fólks í danstíma,“ segir Sigrún og útskýrir að með fjarkennslunni sé aðallega verið að hugsa um að nemendur haldi sér í formi svo hægt sé að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið eftir að sam- komubanni lýkur. „Það er í raun mjög erfitt að framkvæma danskennslu vel í fjarkennslu. Námið er svo gagn- virkt, það er svo mikil tenging milli kennara og nemenda. En með þessu móti þurfum við ekki að byrja aftur á að vinna upp líkamlega styrkinn og þrekið eftir samkomubannið. Við getum bara nokkurn veginn byrjað aftur á námsefninu. Svo er þetta líka gott fyrir sjálfsmyndina. Það að vera dansnemandi og dansari er svo stór hluti af sjálfsmyndinni og það er mikilvægt fyrir sálina að missa ekki þá tengingu.“ Ekki mesta tæknifólkið Fjarkennsla Listdansskólans byrjaði síðasta laugardag og hefur ekki gengið alveg snurðulaust fyrir sig frá upphafi. „Við erum kannski ekki mesta tæknifólkið við ballettdansarar,“ segir Sigrún hlæjandi. „Balletttímar eru venjulega mjög hefðbundnir svo við erum bara að læra á þetta jafnóðum. Við vonum bara að við verðum búin að ná tökum á þessu þegar samkomubanninu lýkur.“ Sigrún segir að það gangi þó betur og betur á hverjum degi að streyma danstímunum. „Við erum alveg búnar að reka okkur á að við vitum ekki hvernig Facebook streymi virkar og við kunnum ekki að streyma frá báðum miðlum á sama tíma. Þetta eru svona praktísk vandamál sem við höfum bara þurft að leysa. En það er partur af þessu. Maður lærir helling. Nemendurnir sýna þessu líka alveg skilning.“ Upptökubúnaðurinn er mjög einfaldur og heimagerður bragur á öllu myndefninu. „Við fjárfest- um í einni selfie-stöng sem er líka þrífótur. Það er eina tæknin sem við höfum fjárfest í fyrir þetta. Svo erum við bara með síma og tölvur og af því nemendurnir eru oftast heima hjá sér, þá erum við ekki að nota nein líkamsræktar- tæki eða annað sem fólk hefur ekki aðgang að heima.“ Það er frábært að geta kynnt dansinn fyrir fleira fólki Streymið frá danskennslunni er opið öllum og Sigrún segist vita af að minnsta kosti einum ein- staklingi sem kom í sinn fyrsta balletttíma í gegnum streymið. „Það er alveg yndislegt að fólk sé að kynnast þessu listformi, bara af því við neyddumst til að fara út í eitthvað svona. Það er frábært að geta kynnt dansinn fyrir f leirum. Þetta er ótrúlega góð hreyfing og falleg listgrein og það er yndis- legt að vita að fólk sé að taka þátt í þessu með okkur. Ég veit að mamma er líka búin að vera að reyna að sprikla eitthvað inni í stofu hjá sér,“ segir Sigrún og hlær. Á döfinni er að útvíkka net- danskennsluna eitthvað og Sigrún segir að þær langi til að fá gesti til að koma til þeirra til að gera dans- tímana enn þá stærri og skemmti- legri. „Það gæti alveg verið gaman að halda úti einhvers konar kynn- ingarefni á netinu áfram eftir samkomubannið,“ segir hún. „Svona út því við erum byrjuð og þetta er komið á smá skrið.“ Balletttímar í opnu streymi Listgreinakennsla getur verið erfið á tímum samkomubanns þar sem hún krefst oft mikillar nándar. Kennarar Listdansskóla Íslands dóu þó ekki ráðalausir og fundu lausn á vandanum. Sigrún hefur verið að prófa sig áfram í fjarkennslu í dansi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Arnar Magnússon markaðsfulltrúi Fréttablaðsins Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is RAFRÆNAR LAUSNIR Sérblað Fréttablaðsins, Rafrænar lausnir, kemur út þriðjudaginn 31. mars. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.