Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 60
Spilið Skrýtlur „Almáttugur,“ hrópaði Róbert upp y r sig. „Við erum föst hérna inni og munum aldrei komast út,“ bætti hann við skel ngu lostinn. „Enginn mun nokkurn tímann nna okkur og við munum svelta í hel.“ „Svona nú Róbert minn,“ sagði Kata höstug. „Þetta er nú bara völundarhús og það er alltaf einhver leið út úr völundarhúsum,“ bætti hún við og leit í kringum sig. „Eða er það ekki?“ spurði hún og glotti þegar hún sá að Róbert hvítnaði. Konráð á ferð og ugi og félagar 396 Getur þú hjálpað Róberti og Kötu að komast út úr völundar-húsinu? ? ? ? Gunnar Helgason er vel þekktur sem leikari og barnabókahöfundur. Gunnar, hvernig krakki varstu? Ég man ekki til að mér leiddist nokkurn tíma. Ég á líka tvíbura- bróður og var því aldrei einmana. Við vorum mikið úti. En einhvern tíma á rigningardegi lékum við vin- sæla innhringingarþætti sem voru nýjung þá í útvarpi, lékum þáttar- stjórnandann, þann sem hringdi og sungum lögin sem beðið var um. Varstu alltaf glaður? Já, það eru bara einhver efnaskipti í hausnum sem valda því. En við gerðum líka hluti sem fólk færi í fangelsi fyrir í dag. Einu sinni stjórnuðum við árás krakkanna í hverfinu á strætisvagn því okkur þótti bílstjórinn leiðin- legur. Dúndruðum snjóboltum í vagninn og stíf luðum alla götuna. Tókum svo líka þátt í að kveikja í drasli við blokkina en neituðum öllum ásökunum þar til mamma bað okkur að líta í spegil – við vorum kolsvartir. Manstu hvað þig dreymdi um að verða? Mig langaði að verða Laddi. Varstu óþægastur í bekknum? Tveimur kennurum fannst það, þeir lömdu mig báðir. Einu sinni lenti ég í skammarkróknum hjá Ásdísi, besta kennara í heimi, henni blöskr- aði svo lætin í stelpunum því ég lék allt sem þær voru að gera meðan hún skrapp á kennarastofuna. Hvaða matur þótti þér bestur Ætli það hafi ekki verið kjúklingur? hann var svo sjaldgæfur þá. Ég man líka enn þegar við vorum í pössun hjá fólkinu á móti og húsbóndinn fór á Ask og keypti hamborgara og franskar. Maður hafði aldrei upp- lifað annað eins – átta eða níu ára. Skrifaðir þú sögur þegar þú varst lítill? Ég byrjaði að skrifa bók þegar ég var tólf ára. Það var ekki til nein stílabók heima en mér var rétt pínu- lítil minnisblokk. Ég kláraði hana, þá var fyrsti kaflinn búinn. Þegar ég var í 8. eða 9. bekk átti ég að skrifa ritgerð upp á tvær blað- síður. Þá fór ég í Glæsibæ og keypti mér stílabók, fyllti hana og skilaði til kennarans. Hann las þetta fyrir allan bekkinn í drekkutímanum og sagan entist vikuna. Áttu heilræði handa krökkum sem eru í sóttkví heima núna? Lesa bækur, alls konar bækur, spila og leika sér. Ekki bara sitja og horfa, kíkja samt á KrakkaRúv.  Skrifa og teikna og búa til leikrit. Krakkar verða að vera duglegir að hafa ofan af fyrir sér því foreldrarnir verða að vinna, þó að þeir séu heima. Ég sá einn strák áðan út um gluggann sem  var í einhvers konar stöðva- þjálfun, að hlaupa og gera æfingar. Kannski væri sniðugt að búa til hreyfingaplan – og auðvitað að fara út með hundinn ef hann er á heimilinu. Langaði að verða Laddi „Krakkar verða að vera duglegir að hafa ofan af fyrir sér því foreldrarnir verða að vinna, þó þeir séu heima,“ bendir Gunni á. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EINU SINNI LENTI ÉG Í SKAMMARKRÓKNUM HJÁ ÁSDÍSI, BESTA KENNARA Í HEIMI. Spil fyrir tvo Markmið Lönguvitleysu er að enda með öll spilin.  Spilarar hafa hvor sinn bunkann fyrir framan sig, á hvolfi, og passa að sjá ekki spilin. Ekki má heldur stokka bunkann. Sá sem ekki gaf byrjar. Hann leggur efsta spilið úr bunkan- um sínum á borðið milli spilaranna, upp í loft. Þá leggur hinn spilarinn sitt efsta spil þar ofan á, líka upp í loft. Þannig gengur þetta koll af kolli þar til tromp kemur upp. Sá sem ekki átti trompið setur þá út fimm spil ef trompið var ás, fjögur ef það var kóngur, þrjú ef það var drottning, tvö ef það var gosi og eitt ef það var lægra spil. Sá sem lagði út trompið í upp- hafi tekur nú öll spilin í kastbunk- anum og stingur þeim á grúfu undir sinn eigin bunka. Svona gengur Langavitleysan þar til annar spilarinn er búinn með öll spilin sín, þá hefur hann tapað og hinn stendur uppi sem sigurvegari. Langavitleysa Sögukennarinn: Í hvaða orrustu féll Gústaf Adolf? Lalli: Ég held það hafi verið í síðustu orrustunni hans. Spurning: Hvernig dó Super Mario? Svar: Hann Nintendó. Tveir asnar voru hvor á sínum árbakkanum. „Hvernig kemst ég hinum megin?“ hrópaði annar yfir ána. „Þú ert hinum megin,“ galaði hinn. Kennarinn: Hvað er það sem er kallað miðbaugur, Óli? Óli: Það er svart strik á kortinu. „Af hverju ertu að skæla, gúrka? þetta er gamanmynd.“ „Ég veit,“ svaraði gúrkan, „ég er bara að skæla vegna þess að það er laukur við hliðina á mér.“ 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.