Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 70

Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 70
Lífið í vikunni 15.03.20- 21.03.20 GRÍNISTAR ERU SMÁ EINS OG HÖFRUNG- ARNIR Í SEAWORLD, MAÐUR VERÐUR BARA AÐ SJÁ ÞÁ MEÐ EIGIN AUGUM. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Marstilboð Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI NATURE’S REST heilsurúm með Hótel fjaðurbotni svæðaskipt pokagormakerfi | burstaðir stálfætur sterkur botn | 320 gormar pr fm 2 | góðar kantstyrkingar 62% AFSLÁTTUR MARSTILBOÐ Seljum Nature’s Rest heilsudýnu með Hótel- fjaðurbotni í stærðinni 100 x 200 cm. á ótrúlegu tilboðsverði á meðan birgðir endast. Fullt verð 105.640 kr Nú aðeins 39.900 kr. Enn fleiri tilboð á dorma.is SENDUM F RÍTT UM L AND ALLT Tilboð og upplýsing ar á dorma .is AFÉS Í BEINNI Hátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í ár, en með breyttu sniði. Rokkstjórinn Kristján Freyr útskýrði hvernig hátíðin fer fram, en hann er þakklátur þeim sem koma að skipulagi hennar. MYNDBAND FRÁ ÁLFHEIÐI Söngkonan og ljósmyndarinn Álf- heiður gaf út sitt fyrsta mynd- band í síðustu viku. Hún býr í Berlín þar sem hún er í meistaranámi í sópransöng. Hún blandar saman söng og hinu mynd- ræna. REKIN Á ÖÐRUM DEGI Á fimmtudag hófust þættirnir Mannlíf með Evu Ruza. Hún segir þá kjörna fyrir hámhorf núna þegar fólk þarf að halda sig heima. Eva kennir tvíburunum sínum nú heima við í ljósi ástandsins, en var rekin sem stærðfræðikennari á degi tvö. HANDFRJÁLSAR KVEÐJUR Hjónin Sæþór Örn og Tobba í Farva brugðust við kröfunni um snerti- lausar kveðjur með stutterma- bolum með handfrjálsri kveðju í hjartastað. Búðin er lokuð en þau selja heilsu- bolina á net- inu. York nýtir tímann í samkomubanninu til að skrifa skáldsögu sem hann hefur unnið að í yfir 30 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Nú eru breyttir tímar í skemmtanaiðnað-inum. Mikið er um af lýsingar á við-b u r ð u m ve g n a samkomubanns og því þurfa margir að finna aðrar leiðir til að koma efni sínu á fram- færi. Kanadíski uppistandarinn York Underwood veit allt um það. „Sem grínisti sem er ekki beint í kjörþyngd og með húðvandamál, þá er ég augljóslega sá fyrsti sem vinir mínir leita til með sín vanda- mál. Vanalega hef ég tækifæri til að deila visku minni á hverju kvöldi á The Secret Cellar, en í ljósi aðstæðna þá get ég ekki lengur gert það,“ segir York. Grínistar eins og höfrungar Hann segist hafa velt fyrir sér þeim möguleika að streyma uppistandi beint frá klúbbnum á netinu. „Þá getur fólk hlegið en verið öruggt heima hjá sér. Uppistand er ekki eins og ópera, en mér finnst þetta aldrei eins samt á upp- töku, það er mikilvægt að upplifa stemninguna. Grínistar eru smá eins og höfrungarnir í Seaworld, maður verður bara að sjá þá með eigin augum, upplifa návist þeirra í beinni í fremstu sætaröð og fá skvetturnar á sig,“ segir hann. Öllum sýningum á The Secret Cellar hefur verið aflýst í bili vegna samkomubannsins. „Já, það hefði ekki verið skynsam- legt að troða sextíu manns í lítinn kjallara í níutíu mínútur. Vana- lega er karókí eftir uppistandið en við urðum að hætta með það líka. Þetta er kannski ekki besti tíminn til að deila hljóðnema með hundrað öðrum.“ Syngur inni á baði York hefur þó fundið sína leið til að fá útrás fyrir sköpunargleðina. „Ég hef snúið mér aftur að minni fyrstu ástríðu, að syngja hátt inni á baðherbergi með sturtuna í gangi. Mér finnst það of mikið að syngja í sjálfri sturtunni. Þá er manni of heitt og maður kyngir of miklu af vatni. Til hvers einu sinni að syngja ef maður sér ekki sjálfan sig í spegl- inum?“ Ef samkomubannið verður langt segist York að lokum muni þurfa að treysta á þrjár uppsprettur ástríðu sinnar, lestur, skriftir og konuna sína. Nýjasta Ghostbusters best Hann segist þurfa að treysta á það þrennt sem hann hefur ástríðu fyrir standi samkomubannið mikið leng- ur yfir; lestur, skrif og eiginkonuna. „Ég er mjög spenntur að lesa ensku þýðinguna á bókinni Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríks- dóttur. Það er ein af uppáhalds bókum konunnar minnar og hún er með frábæran smekk. Ég fíla bækur með flóknar kvenpersónur í forgrunni og reyni að horfa mest á kvikmyndir í þeim dúr. Uppáhalds Ghostbusters myndin mín er sú nýjasta, með kvenmönnum í aðal- hlutverkum. Það er kominn tími til að útrýma eitraðri karlmennsku og ég mun slást við hvern þann sem er ósammála mér,“ segir York. Hann segist hafa verið að vinna að skáldsögu síðustu 33 árin. „Núna er kjörið að byrja á henni fyrir alvöru. Hún fjallar um mann sem finnst hann vera sjarmerandi, fyndinn og góður en er í raun sjálf- hverfur fáviti. Ég ætla að kalla hana „AllMen“,“ segir hann. steingerdur@frettabladid.is Syngur hátt inni á baði í samkomubanni York Underwood er kanadískur uppistandari og einn þeirra sem hefur fengið að kenna á samkomubanninu. Hann er þó með ýmis góð ráð fyrir aðra í skemmtanaiðnaðinum á þessum flóknu tímum. 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.