Gríma - 01.09.1938, Síða 12
10 ÞÁTTUR AF BJARNA SÝSLUMANNI Á ÞINGEYRUM
sem óvíst var um faðerni á, en sýslumaður hins veg-
ar gjört lítið úr því máli. — Bjarni var dæmdur í 6
dala sekt fyrir þetta, en þó munu þeir Skúli hafa
sætzt fullum sáttum á þessu þingi og orðið vinir upp
frá því. —
Þeir Bjarni og Skúli urðu samferða heim af al-
þingi í þetta skipti og fór vel á með þeim. Skúli fór
með Bjarna heim að Þingeyrum og gisti þar nokkra
daga í bezta yfirlæti og við miklar veitingar. Þegar
svo Skúli ætlaði af stað frá Þingeyrum, vildi hann
heimta sektarféð, en þá sagði Bjarni: „Nú hefir þú
etið það og drukkið, karl minn“. Skúli fékk ekki
annað, og skildi svo með þeim. —
í einni ferð sinni reið Skúli um á Þingeyrum.
Bjarni var að lesa húslestur og var á grænum frakka
eða kyrtli. Skúli kom á gluggann og kvað:
Maður á möttli grænum
miðlar orðum kænum,
Bjarni er að iesa í bænum
með breiðum kjafti og vænum.
Bjarni þekkti málróminn og kallaði: „Látið þið fant-
inn koma inn“! En er út var komið, var Skúli allur
á burtu.1)
Um skipti þeirra Bjarna og Skúla fógeta segir dr.
Jón Þorkelsson m. a.:2) „Þó að Skúli væri harður og
karimenni í lund, má þó sjá að mótstöðumenn hans
hafa þreytt hann æði mikið, og stundum hefur nærri
því ætlað að renna út í fyrir karlinum. Hann sveig-
ir mikið að Bjarna sýslumanni Halldórssyni, og er
það í sjálfu sér ekkert undarlegt, því að Bjarni var
honum óþarfur og hættulegastur af öllum hans mót-
U J. S. 599 4to.
2) Tímarit Bókmenntafélagsins XI, bls. 108.