Gríma - 01.09.1938, Side 18

Gríma - 01.09.1938, Side 18
16 ÞÁTTUR AF BJARNA SÝSLUMANNI Á ÞINGEYRUM Mitt þá ekki mótkast dvín, má það sannast þarna, ef hann skal verða heillin mín, helvítið að tarna. Það er hætt við að þessi jólagleði og það, sem þar var leikið, hafi ekki aukið siðferði fólksins, því að einn söguritarinn kemst svo að orði um þessa sam- komu:1) „En hvort óskikk í þessum gleðileik hafi framið verið, þarf ekki að útmála“. — Það er víst alveg óþarfi. — Annars voru oft stórveizlur haldnar á Þingeyrum, svo sem brúðkaup og erfisdrykkjur, og ávallt mikið borið í mat og drykk. — Hjá Bjarna ólst upp stúlka, er hét Sigríður Sigvaldadóttir. Snæbjörn stúdent, sonur Halldórs biskups Brynjólfssonar á Hólum, bað hennar, og stóð brúðkaup þeirra á Þingeyrum. Þegar boðsfólkið var komið, var Bjarni sýslumaður svo ó- venju fár, að vini hans undraði, en svo trúði hann þeim fyr4r því í hljóði, að brúðurin lægi í blóðbönd- unum, svo að ekkert yrði af brúðkaupinu þann dag- inn. Það þótti mikil hneisa á þeim tímum, ef meiri háttar heimasæta varð vanfær í tilhugalífinu, og hef- ur sýslumanni þótt skömm að þessu, en þegar stúlk- an var orðin heil, fór brúðkaupið jafnskjótt fram eins og ekkert hefði í skorizt.2) Bjarni sýslumaður var höfðinglundaður við fátæka og árið 1763 gaf hann heila jörð til fátækra, og bend- ir allt til þess, að ekki hafi hann verið eftir því sínk- ur sem hann var harður í viðskiptum. Hann var líka gestrisinn og veitull og hafði á sér mikinn höfðingja- ’) J. S. 322 4to. 2) Sunnanfari IV., 10.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.