Gríma - 01.09.1938, Page 19

Gríma - 01.09.1938, Page 19
ÞÁTTUR af BJARNA SÝSLUMANNI á ÞINOEYRUM 17 brag. — Jörðin, sem hann gaf, var Meðalheimur í Hjaltabakkahreppi, 24 hndr. að dýrleika ásamt 4 kúgildum, og gaf hann hana til æfinlegs kristfjár, og átti afgjaldið að skiptast meðal fátækra í Húnavatns- sýslu. — Bjarna var ekki um landhlaupara og flakkara, sem margir voru í þá daga, og allra verst var honum við lausamenn. Einn flakkarinn var Jón Sóti. Hann var óráðvandur og illmenni og hræddi út úr fólki á bæj- um það, sem hann vildi hafa, og var öllum leiður. Einu sinni flakkaði hann um Húnavatnssýslu og bað sýslumaður hann þá um að finna sig. Sóti kom í grandleysi til Þingeyra, og kvaðst Bjarni þurfa að skrifa bréf og biðja hann fyrir. Sóta þótti biðin löng og spurði með þjósti og frekju, hvort bréfin væru ekki til, en Bjarni svaraði: „Snart búinn, kæri“, - og kallaði um leið á tvo vinnumenn sína og sagði þeim að fara með Sóta út að kaganum og hýða hann eins og hann þyldi. Sóti spurði þá: „Skal það gjörast án dóms og laga?“ — „Sjálfdæmdur, kæri“, sagði Bjarni. Svo gekk hann fram og aftur fyrir húsdyrum, með- an þeir hýddu Sóta inni í húsinu, og kallaði til þeirra við og við: „Svo mikið sem hann kann að þola“. — Þegar hýðingunni var lokið, skipaði Bjarni honum í burtu og bannaði honum að koma aftur þar í hér- aðið. Sóti komst nauðulega til næsta bæjar og lá þar nokkra daga, en þegar hann varð rólfær, dróst hann burtu og kom aldrei oftar í Húnavatnssýslu; — hann vissi, á hverju hann átti von. — Það kom nú víst ekki oft fyrir, að Bjarni léti ílengja umrenninga án undangengins dóms, eins og Jón Sóta, en kæmu slíkir kumpánar undir dóm hans, þá var hann ekkert vægur. Þannig dæmdi hann ár- 2

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.