Gríma - 01.09.1938, Blaðsíða 26
24 ÞÁTTUR AF BJARNA SÝSLUMANNI Á ÞINGEYRUM
ófríðleiki til munnsins; „drjúglynd11 og „veglynd",
en þó stórlynd og líktist föður sínum um margt.
Hún giftist Jóni Ólafssyni vicelögmanni, og var það
á móti skapi hennar og þá ekki siður á móti vilja
Bjarna föður hennar, því að Jón fékk illt orð. Bjarni
var hræddur um framtíð Þorbjargar, ef Jón ekki
fengi hennar, því að svo sterkur orðrómur lá á Jóni
fyrir fjölkynngi og illgirni. —
Af Bjarna á Þingeyrum er nú kominn fjöldi
manna hér á landi, og^þykja afkomendur hans bera
ýmis sterk ættareinkenni, sem rekja má til hans og
Páls lögmanns Vídalíns, föður Hólmfríðar konu
hans, Margir afkomenda hans eru listfengir, skáld
og listamenn; aðrir eru stjórnmálamenn o. s. frv. og
flestir gæddir óvenjulegum viljaþrótti. — Þrenn
álög er sagt að séu á ætt þessari, en þau eru: að eng-
inn sé látinn heita Bjarni, enginn klæðist grænni
flík og enginn ríði bleikum hesti. — Fróðir menn
þykjast hafa tekið eftir því, að sé ekki farið eftir
þessu, sé óhamingjan vís.1)
Heimildir að mestu eptir J. S. 322 4to.