Gríma - 01.09.1938, Side 40

Gríma - 01.09.1938, Side 40
38 REYNISTAÐARBRENNA fram átti að fara daginn eftir. — Öll silfur- og tin- áhöld bráðnuðu og runnu saman, en kekkirnir voru síðan tíndir saman úr rústunum. Það eina, sem fannst óskemmt, voru tólf silfurskeiðar, sem síra Halldór Jónsson á Hólum hafði lánað. — Brúðguminn, síra Þorvaldur Sörensson, varð fyrir • miklum skaða, því að hann mun hafa átt talsvert lausafé og peninga, er hann geymdi í kistu, sem var í portslofti bæjarins. — Meðan bærinn var að brenna, gekk síra Þorvaldur fram og aftur um hlaðið og var mjög áhyggjufullur. Hann hét hverjum manni, er náð gæti kistu sinni, 30 silfurdölum. Þar var Bryn- jólfur smiður, sonur Halldórs biskups, nærstaddur, en hann var mesti knáleikamaður. Hann hljóp upp á loftið og náði kistunni, en í sömu andránni féll loftið og þilið fram á stéttina; hann stökk fram á hlaðið og hélt á kengnum úr kistugaflinum í hend- inni, en kistan varð eftir. — Ekki lét síra Þorvaldur hugfallast, þó að þau hjónaefnin hefðu misst allt, sem þau áttu, í brunan- um. Það var þó ekki árennilegt fyrir þau að fara að stofna bú, en samt giftu þau sig daginn eftir og héldu brúðkaup sitt í Vík, sem er næsti bær við Reynistað. Svo riðu þau vestur í Húnavatnssýslu, en ekki varð hjónabandssæla þeirra langæ, því að skömmu eftir það er þau komu vestur, varð síra Þor- valdur veikur, fékk meinsemd í andlitið og dó á sama ári. — Eftir brunann stóð biskupsfrú Þóra allslaus uppi með 40 manns í heimili. Matarforði hennar, sængur- föt, íverufatnaður og öll búsáhöld var allt orðið að einni öskuhrúgu. Það var því úr vöndu að ráða. Hún bauð nú öllum hjúum sínum að velja á milli

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.