Gríma - 01.09.1938, Síða 41

Gríma - 01.09.1938, Síða 41
REYNISTAÐARBRENNA 39 þess, að hún gæfi þeim upp vistráð, svo að þau gætu farið hvert sem þau vildu, eða vera áfram hjá sér. Hún kvað eitt skyldi yfir sig og þau ganga, og kusu allir að vera kyrrir hjá henni, nema tveir vesaling- ar. — Margir Skagfirðingar urðu til þess að gefa frú Þóru og hennar hjúum, enda var hún vel kynnt og þótti góðs verðug. Hólamenn riðu þegar á fund henn- ar og buðu henni aðstoð sína, og svo sendu þeir henni mat og annað á mörgum hestum heiman frá Hólum. Margir höfðingjar landsins buðu frú Þóru til dvalar hjá sér. Gísli biskup á Hólum bauð henni til sín við 5. mann, en Magnús amtmaður Gíslason á Leirá bauð henni við 6. mann og Bjarni sýslumaður Halldórsson á Þingeyrum við 7. mann, en ekkert þessara góðu boða þá hún og sat kyrr á Reynistað. Halldóra, dóttir Ara Þorkelssonar í Haga, átti Þor- leif bróður Halldórs biskups, og höfðu þau hjónin verið með biskupi á Hólum. Þær áttu því sinn bróð- urinn hvor, biskupsfrú Þóra og Halldóra, en þeim hafði samið lítt, er þær voru saman á Hólastað, enda hafði Halldóra verið stórlynd og óþjál í lund. — Þegar nú hag biskupsfrúarinnar var svona komið, fór Halldóra að finna hana eins og fleiri. Það hittist svo á, þegar hún kom að Reynistað, að frú Þóra var að koma úr kirkjunni, en þegar þær mættust, ávarp- aði Halldóra hana og sagði: „Þú gazt fengið hnapp- elduskaða, þó að Halldóra væri brottu“. — En frú Þóra anzaði döpur í bragði: „Guð gaf og tók aftur“. Þá rétti Halldóra henni pyngju fulla af silfri og bað hana kaupa sér í pípu fyrir. Biskupsfrúin mun hafa reykt eins og siður var margra hefðarkvenna á þeim tímum. — Sumarið eftir Reynistaðarbrennu reið biskupsfrú
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Gríma

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.