Gríma - 01.09.1938, Page 44

Gríma - 01.09.1938, Page 44
42 SELVEIÐIFARIR Á DRÖNGUM drepa seli, þegar þeir lágu uppi á skerjum, og skal nú sögð ein saga af því, en sagan er höfð eftir Guð- mundi bónda Arasyni í Kaldrananesi, og hann var bæði áreiðanlegur og sannorður maður. — Fram undan Bjarnarfirði á Hornströndum, á milli Skjaldabjarnarvíkur og Dranga, eru sker, sem liggja undir Dranga. Við sker þessi verður sjaldan lent vegna brims og sjávarróts. Þó er það helzt á sumrin, þegar sjór er stilltastur, að komizt verður í skerin og þar rotaður selur. Sigurður greip ávallt hverja stund, sem kyrr var sjór að sumrinu, og hafði þá mikið uppidráp. — Svo hagar til í aðalskerinu, að þar er gjá eða glufa allvíð í gegnum skerið og skipt- ir því í tvennt. Lent var þeim megin við gjá þessa, sem selurinn lá ekki, svo að hann styggðist ekki eða yrði var við mennina, en til þess að geta stokkið yfir gjána, urðu menn að vera bæði fimir og hugmiklir. — Það tókst engum nema þeim bræðrum, Sigurði á Dröngum og Grími í Seljanesi, að stökkva yfir gjá þessa, og gátu því ekki aðrir hagnýtt sér veiðina. — Sigurður bjó lengi á Dröngum og svo synir hans eftir hann, en þeir hétu báðir Jóhannesar og voru gildir menn til burða. Þegar Sigurður var orðinn nærri sjötugur, var það eitt sumar, að góður veður- dagur kom, og bað hann þá syni sína að fara í sker- ið, því að nú væri hann sjálfur orðinn til einskis fær. Karl brá sér þá inn í skemmu sína og sótti þangað rótarkylfu, sem hann kallaði „hnallinn sinn“, og ætlaði að fá bræðrunum, en þeir vildu ekki við henni taka og kváðu hana ekki sitt meðfæri, svo var hún þung; en karlinn lét hana svo aftur inn í skemmu sína. — Síðan lögðu þeir Drangabræður af stað og höfðu

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.