Gríma - 01.09.1938, Qupperneq 53
DRANGEYJARFÖR JÓHANNS SCHRAMS 1839 51
heiður giftist aftur Jóhanni Pétri Hallssyni í Egg,
bróður síra Jóns Hallssonar.1)
7.
Hestar verða varir við reimleika.
[Eftir sögn Ólafs Arnórssonar á Akureyri. 1906. Þ. M. /.].
Vorið 1895 drekkti maður sér í Vatnsdalsá, þar sem
hún rennur fram með Hnausatúni. Var líkinu náð og
það látið standa þar uppi á bakkanum og tjaldað yf-
ir, áður en það var jarðað.
Þá bjó Arnór Egilsson ljósmyndari á Bjarnarstöð-
um í Vatnsdal. Þetta sama sumar á útengjaslætti
fékk hann engjar lánaðar á Hnausum. Eitt sinn var
það, að Ólafur sonur hans, sem nú er á Akureyri, en
þá var hjá föður sínum, fór með heylest úr Hnausa-
engjum og heim að Bjarnarstöðum. Leið hans lá
neðan við túnið á Hnausum, meðfram ánni. Þegar
hann kom á þann stað, þar sem líkið hafði staðið
uppi áður um sumarið, fóru hestarnir að frísa og
stökkva út af götunni, og var sem þeir sæju eitthvað,
er þeir hræddust. Ólafur hélt áfram með hestana, en
einlægt voru þeir að smálíta við og frísa, og lá við
sjálft, að þeir fældust allir. Þegar hann kom þar
nokkuð upp fyrir, kyrrðust hestarnir aftur.
Þess skal getið, að skepnur sjá drauga og vofur,
alveg eins og menn, samkvæmt gamalli trú.
4*
J) Með leiðsögn af J. S. 294 4to. o. fl.