Gríma - 01.09.1938, Síða 57
ÓSPEKTIR ENGLENDINGA VIÐ SKJÁLFANDA 55
víðssynir, en sá þriðji var Jóhannes Stefánsson.
Voru þeir rétt háttaðir, en Guðjóhnsen kominn úr
treyju og vesti, þegar griðkona kom með miklu fáti
og sagði, að Englendingarnir væru að brjótast inn
um gluggann á viðhafnarstofunni. Brá Guðjóhnsen
þá hart við, kallaði á búðarmennina og bað þá að
koma í skyndingu, en sjálfur hljóp hann inn í stof-
una. Höfðu Englendingarnir þá brotið gluggann og
smeygt unglingnum inn fyrir og létu hann svo rétta
út ýmsa muni, sem þeim sýndust girnilegir. Hafði
pilturinn gripið dýra klu'kku með glerhjálmi yfir og
var á leið til gluggans með hana, en þegar hann sá
Guðjóhnsen koma, varð hann hræddur, lagði klukk-
una frá sér og ætlaði að forða sér. Var Guðjóhnsen
snar að hremma piltinn, dró hann út úr stofunni, yf-
ir ganginn og henti honum inn í eldhúsið; lenti hann
á eldavélinni og hefur líklega fundið eitthvað til, því
að hann hljóðaði og æpti á hjálp. Englendingarnir
tveir, sem úti voru, espuðust við þetta, gripu tré, ei
lá þar við húsið, og ætluðu að brjóta með því úti-
hurðina. — í þessari svipan komu allir búðarmenn-
irnir á vettvang. Skipaði Guðjóhnsen þeim Valde-
mar og Ólafi að leggjast á hurðina, sem farin var að
láta sig, en Jóhannesi að gæta piltsins í eldhúsinu,
og var það ekki vandaverk, því að hann þorði ekki
að hreyfa legg né lið. Sjálfur hljóp Guðjóhnsen út
um norðurdyrnar, greip tunnustaf í hönd sér og
réðzt að Englendingunum. Var þá stóri beljakinn
kominn úr treyjunni og hafði brotið syrtuermarnar
upp fyrir olnboga; óð hann á móti Guðjóhnsen með
krepptum hnefum og hugðist að slá hann, en Guð-
jóhnsen greip um hægra úlnlið hans og sló hann um
leið snöggt högg með tunnustafnum á upphandleggs-