Gríma - 01.09.1938, Side 58

Gríma - 01.09.1938, Side 58
56 ÓSPEKTIR ENGLENDINGA VIÐ SKJÁLFANDA vöðvann, þannig að skinnið flumbraðist, en allt afl dró úr handleggnum. Komu þeir bræður út í þessum svifum, og varð þeim fremur lítið fyrir að keyra Englendingana í bönd. Fám árum áður hafði verið reist fangahús á Húsa- vík. Benedikt Sveinsson, sem þá var sýslumaður, bjó á Héðinshöfða, en Guðjóhnsen geymdi fangahúslyk- ilinn. Var farið með bandingjana í fangahúsið, þeir leystir úr böndum og lokaðir inni. — Sýslumaður var þá staddur á alþingi í Reykjavík, en settur var i hans stað skrifari hans, Kristján Jónasson frá Narfa- stöðum, síðar verzlunarerindreki. Var sent út að Héðinshöfða um morguninn til Kristjáns, en hann kom að vörmu spori til Húsavíkur, setti rétt í mál- inu og dæmdi sakborningana í allháa sekt fyrir hús- brot og óspektir; skyldu þeir vera í haldi, þar til er sektin væri greidd. Var svo sent til skipstjóra og honum tilkynnt, hvernig á stæði um menn hans. Um morguninn komu nokkrir skútumenn frá borði til að sækja sér drykkjarvatn. Frétti Guðjóhnsen eftir þeim, að þeir hefðu látið digurbarklega og haft við orð, að 'koma fjölmennir á land síðar um daginn og hefna fyrir ófarir landa sinna. Gerði Guðjóhnsen þorpsbúa við vara og bað þá vera við því búna, að í harðbakka gæti slegizt. Guðjóhnsen var ágæt selaskytta. Átti hann stóra og volduga selabyssu, kúlubyssu og tvær minni fuglabyssur. Búðarmenn hans áttu líka sína byssuna hver. Héngu öll þessi skotvopn á skrifstofuþili Guð- jóhnsens, og svo munu ýmsir þorpsbúar hafa fengið að geyma þar byssur sínar, því að húsakynni voru víða rakasöm í þá daga, — en hvað sem um það var, þá voru byssurnar margar.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.