Gríma - 01.09.1938, Síða 60
58 ÓSPEKTIR ENGLENDINGA VIÐ SKJÁLFANDA
höggdofa og fölnaði við. Leizt honum ekki á blikuna,
fór að sýna á sér ferðasnið, lauk erindum sínum í
skyndi og kvaddi Guðjóhnsen með mestu virktum.
Gekk hann síðan beina leið til veitingahússins og
mælti nokkur alvarleg orð til landa sinna, er þar
sátu að drykkju. Stóðu þeir þegar upp, gengu hrein-
asta brúðargang niður með verzlunarhúsunum, réru
fram í skip sín, undu upp segl og sigldu til hafs.
9.
Draumur Jónasar Gunnlaugssonar.
[Sögn hans sjálfs. 1905. Þ. M. /.].
Nokkru eftir 1860, um vetur, dreymdi Jónas Gunn-
laugsson, sem þá var vinnumaður að Skriðu í Hörg-
árdal,1) að hann gengi út og horfði í austur. Hann
þóttist þá sjá yfir bænum á Bægisá þrjár skærar sól-
ir, tvær stórar og eina litla. Þegar hann vaknaði, sagði
hann drauminn, og þótti mörgum hann kynlegur.
Skömmu seinna andaðist síra Arngrímur Bjarna-
son á Bægisá, kona hans Ingunn og sonur hans Lár-
us, sem þá var barn. Þau dóu öll um sama leyti úr
taugaveiki.
J) Síðar lireppstjóri á Þrastarhóli i Hörgárdal.