Gríma - 01.09.1938, Side 73
13.
Floga-Sveinn.
[Eftir liandriti Ármanns Hanssonar bónda á Myrká].
Maður er nefndur Sveinn Gíslason, bónda á Bási
í Hörgárdal, Gunnarssonar pósts. Hann mun hafa
verið fæddur árið 1829. Ekki er neins getið frá æsku
hans, en 12 ára gamall var hann kominn að Ásgerð-
arstöðum til Guðmundar hálfbróður síns, sem var þá
farinn að búa þar. Talið er, að Sveinn hafi þótt efni-
legur drengur, þangað til hann fékk veiki þá, er þjáði
hann æ síðan á meðan hann lifði. Var það flogaveiki
og fór versnandi með aldrinum. Var hann þess vegna
nefndur Floga-Sveinn. — Um tildrögin að flogaveik-
inni hefur þessi saga verið sögð:
Svo bar við á Ásgerðarstöðum einhvern tíma að
vetri til í skammdeginu, að Sveinn var látinn bera
inn miðdegismatinn handa fólkinu. Var dimmt í
göngunum, eins og gerist í torfbæjum. Þegar Sveinn
var kominn nokkuð inn eftir göngunum, sá hann ein-
hverja voðalega ófreskju og varð svo bilt við, að
hann hneig niður þar sem hann var kominn og engd-
ist sundur og saman með flogum og froðufalli. Rakn-
aði hann við aftur, en upp frá þessu ágerðist veikin
með ári hverju, svo að hann gat lítið eða ekkert
unnið, og lenti því að lokum á sveit. En af því að
konur og börn hræddust mjög, þegar Sveinn fékk