Gríma - 01.09.1938, Síða 77
FLOGA-SVEINN
75
Bjarna lá við sturlun, svo að prestur sá, að ekki
mátti svo búið standa. — Þá bjó í Búðarnesi, hinum
megin Hörgár, Bjarni Gunnlaugsson, sem var nafn-
kunn refaskytta og járnsmiður góður. Brá prestur
sér yfir að Búðarnesi, hitti Bjarna að máli og bað
hann að smíða fimm væna járngadda til þess að
reka niður í leiði Sveins. Tók Bjarni erindinu lið-
lega, en þó var sagt, að hann hefði engan trúnað lagt
á sögur þær, er gengu af afturgöngu Sveins. Smíðaði
hann svo gaddana, en nóttina eftir varð fólkið í Búð-
arnesi þess vart, að Bjarni fór skyndilega á fætur,
greip hníf, sem stóð þar uppi undir í baðstofunni,
hvarf fram í g'öngin og var lengi burtu. Morguninn
eftir var hann spurður að, hvert erindi hann hefði
átt út um nóttina. Kvaðst Bjarni þá ekki vera í vafa
um, að eitthvað væri hæft í sögunum um Floga-
Svein, því að hann hefði vaknað við það um nóttina,
að Sveinn hefði staðið framan við rúmstokkinn og
ógnað sér. En af því að Bjarni var maður einhuga,
lét hann sér ekki bilt við verða, heldur brá sér fram
úr, greip hnífinn og bjóst til að ráðast að Sveini.
Hörfaði hann þá undan, en Bjarni fylgdi fast eftir,
rak hann fram göngin og út á hlað, og þannig barst
leikurinn alla leið yfir að Myrká. Skildi þar með
þeim, og þorði Sveinn aldrei að snúast í móti. En
það lét Bjarni verða sitt fyrsta verk þenna morgun
að fara yfir að Myrká og reka gaddana niður í leiði
Sveins. — Við þessar aðgerðir brá svo, að upp frá
því varð enginn Floga-Sveins var.