Gríma - 01.09.1938, Page 79

Gríma - 01.09.1938, Page 79
JÓN ÚLFALDI 77 Það var eitt kvöld að Jón sagði fólkinu í Skjalda- bjarnarvík, að þá nótt mundu Hælvíkingar koma þangað, en Hælavík eða Heljarvík, sem er réttara, er austan Hornbjargs við Hælavíkurbjarg. — Um þær mundir þóttu Hælvíkingar griplsamir, einkum tveir eða þrír þeirra, og lét Jón því um kvöldið stóra hellu fyrir eldhúsdyrnar, en hún var svo þung, að enginn gat hreyft hana nema hann. Það fór eins og hann hafði sagt fyrir. Um nóttina komu tveir menn úr Hælavík og ætluðu að stela úr eldhúsinu, en þar var mikið af hangikjöti og magálum. Þeir höfðu báðir reynt að flytja helluna, en gátu ekki bifað henni, þó að Jóni yrði lítið fyrir einum að flytja hana í burtu daginn eftir. Úlfalda-nafnið fékk Jón hjá Strandamönnum vegna þess, hversu mikill kraftajötunn hann var. Einu sinni hélt hann einn teinæringi í miklu brimi, meðan borinn var á hann viðarfarmur, og það svo rammlega, að báturinn sveif aldrei frá. — Jón var lengi í Skjaldabjarnarvík, en stundum brá hann sér yfir í Barðastrandarsýslu. Hann kom einu sinni í Garpsdal til síra Tómasar, sem líka var mikill krafta- maður. Þá sagði prestur: „Hér er kominn Samson úr Skjaldabjarnarvík“, — og greip um leið utan um úlnlið hans, en Jón hristi hann óðara af sér og greip um axlir prests. Síra Tuma þótti Jón átakaharður og vildi ekki eiga meira við hann, en bauð honum inn og veitti vel. — Einu sinni fór Jón suður að finna Eirík sýslumann hálfbróður sinn, en á leiðinni norð- ur aftur gisti hann á Kolbeinsá; en þar varð hann veikur og andaðist.1) U Sbr. Lbs. 1029 4to.

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.