Gríma - 01.09.1938, Qupperneq 82
16.
Þræll.
[Or örnefnalýsingu Reykjastrandar eftir Sigurjón bónda á
Skefilsstöðum. Handrit Margeirs Jónssonar].
Lending Reykja á Reykjaströnd er kölluð Reykja-
vör, en á tuttugu faðma dýpi austur af henni er
fiskimið það, er kallast Þræll. Til þess er saga sú, er
nú skal greina.
Ingveldur, er byggði Ingveldarstaði til forna, átti
þræl, er hún lét róa til fiskjar hvern virkan dag,
þegar á sjó gaf. Aflaði þrællinn misjafnlega mikið,
eins og gerist og gengur, og ekki virðist hann hafa
verið hart haldinn, því að þess getur sagan, að á
hverjum sunnudegi hafi hann róið fyrir sjálfan sig.
Leitaði hann þá ætíð á sama mið, austur af Reykja-
vör, og hlóð fleytuna, en aldrei leitaði hann þangað
á virkum dögum. — Sá húsmóðir hans brátt, að und-
anbrögð nokkur voru í sjósókn þrælsins, og vandaði
um við hann að sækja þangað, sem hann vissi bezt
fiskimið. Gegndi þrællinn því fáu og hélt upptekn-
um hætti. Þegar Ingveldur hafði ítrekað umvandanir
sínar að árangurslausu, lét hún taka þrælinn og
binda hann. Var síðan róið með hann út á mið það,
sem hann sótti á sunnudögum, bundinn við hann
steinn og honum sökkt þar. — Sumir kalla mið þetta
Þræla (sbr. „að róa fram á Þræla“). Hefur verið sótt
þangað til skamms tíma, og hefur þótt aflast þar vel,
ef annars nokkur fiskivon er.