Gríma - 01.09.1945, Síða 22

Gríma - 01.09.1945, Síða 22
20 SAGA VÍÐIDALS EYSTRA [Gríma hann hinum sömu skil. Horfðu menn undrandi á þetta, og það töldu allir víst, að á jafnsléttu mundi hann hlaupa upp tófu. — Eru þetta fá dæmi af mörgum um snarræði og fimi Sigfúss, og mætti lengi upp telja. Jón Sigfússon líktist mjög föður sínum um alla atgervi, en mun þó tæplega hafa verið jafnoki föður síns. Svo sem áður er sagt, fluttist Sigfús frá Hvannavöll- um í Víðidal vorið 1884; reisti hann bæinn á öðrum stað en áður hafði verið, og var þar ekki snjóflóðahætt. Bjó hann þar með konu sinni og Jóni syni sínum til vorsins 1898, er þeir fluttust að Bragðavöllum í Geit- hellnahreppi; býr Jón Sigfússon þar enn, nú kominn á níræðisaldur. Víst er um það, að landkostir eru mikl- ir í Víðidal og hafa alltaf verið, en örðugleikarnir eru líka óvenju miklir, þegar litið er á fjarlægðina frá byggð. Sömuleiðis er erfitt að smala hálendisöræfin að haustlagi. Það er áreiðanlega víst, að enginn núlifandi Austfirðingur er eins gagnkunnugur hálendinu milli Víðidals og Snæfells og Jón Sigfússon á Bragðavöllum. Mælingamenn þeir, er mældu þann hluta hálendisins, höfðu, eftir bendingu annarra, snúið sér til Jóns, og efast eg ekki um, að ýmis vitneskja frá honum hafi komið þeim að góðu liði. — Jón hefur sagt mér þessa sögu: Þegar hann var drengur um fermingaraldur hjá föður sínum á Hvannavöllum, var það seint um haust, að þeir gengu báðir inn fyrir drög Geithellnadals. Fann Jón þar tvö hagalömb og vildi reka þau til dals- ins, en þau sóttu fast til norðurs inn á öræfin. Þegar hann hafði elt þau langa leið, staðnæmdust þau að lokum við stórt stöðuvatn, og þar gat hann snúið þeim við. Hann tók eftir því, að úr vatninu rann stór lækur, og sá þegar, að þarna voru upptök Geithellnaár. Þegar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Gríma

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.