Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
Slátturvélar, verðdæmi:
Gerð Vinnslubreidd Verð í kr. án vsk. Verð í kr. með vsk.
Fella SM288 2,8 mtr 870.000 1.078.800
Fella SM320 3,0 mtr 1.150.000 1.426.000
Fella SM350 3,5 mtr 1.250.000 1.550.000
Heyþyrlur, verðdæmi:
Gerð Vinnslubreidd Verð í kr. án vsk. Verð í kr. með vsk.
Fella TH5204 5,2 mtr 790.000 979.600
Fella TH790H 7,7 mtr 1.290.000 1.599.600
Fella TH800 Trans 7,7 mtr 1.690.000 2.095.600
Rakstravélar, verðdæmi:
Gerð Vinnslubreidd Verð í kr. án vsk. Verð í kr. með vsk.
Fella TS426 4,2 mtr 820.000 1.016.800
Fella TS671 5,8-6,6 mtr 1.990.000 2.467.600
Fella TS801 6,8-7,6 mtr 2.380.000 2.951.200
Reynsla, gæði og verð gera frábær kaup
Fella heyvinnuvélar
www.mosey.is
Útsölustaðir:
Húsasmiðjan, Málningarverslun Íslands við Vatnagarða og Málningarbúðin Ísafirði.
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Öll efnin sem Mosey ehf framleiðir og selur eru hágæða efni,
sem eiga að baki þróun í áraraðir.
Tveir góðir heimilisvinir
Allir kannast við brúnbleiku slykjuna sem kemur í sturtuna þeirra, það er mygla.
Ekki er fyrr búið að þrífa þessa brúnbleiku slykju en að hún er komin aftur.
• Sturtu-, bað- og flísahreinsirinn - tekur burt þessa slykju á auðveldan hátt
• Myglueyðirinn - seinkar svo komu slykjunnar
Náttúruv
ænn
og brotn
ar
niður í
náttúrun
i
Fjallalamb á Kópaskeri setur
upprunamerktar afurðir á markað:
Stór skref í gæðum,
rekjanleika og tengingu
neytenda við framleiðendur
Fjallalamb á Kópaskeri hefur nú
sett á markað nýjar uppruna-
merktar afurðir og hafa viðtök-
ur á markaði verið mjög góðar.
Björn Víkingur Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Fjallalambs, segir
fyrirtækið með þessu stíga stórt
skref í gæðum, rekjanleika og
tengingu neytenda beint til fram-
leiðanda vörunnar. Til að byrja
með verður félagið með heil og hálf
læri, heila og hálfa hryggi, og grill-
og súpusagaða framparta.
Allar upplýsingar um bónda og
býli á snjallsímavænni heimasíðu
„Við vorum áður með hálfa skrokka
í kassa, voru þeir merktir framleið-
anda og gátu viðskiptavinir flett
honum upp á heimasíðu okkar. Nú
tökum við þetta skrefinu lengra,
höfum uppfært heimasíðuna og hver
og einn bóndi er með sína eigin síðu.
Þannig geta eigendur snjallsíma
skannað vöruna í búðinni og fengið
allar upplýsingar um bónda og býli,“
segir Björn Víkingur en á síðu hvers
og eins bónda eru margvíslegar upp-
lýsingar, eins og hvaða verkefnum
hann sinni, afurðir á síðasta ári,
upplýsingar um jörðina, myndir og
einnig er hægt að senda fyrirspurn
beint til bónda. „Þarna höfum við
ótæmandi möguleika á upplýsingum
sem við getum sett inn fyrir hvern
bónda, segir Björn Víkingur.
„Þetta er snjallsímavæn heima-
síða og auðvelt fyrir notendur að fara
inn á hana, en þeir sem ekki eru með
síma af því tagi í vasanum á meðan
verslað er geta flett framleiðslunúm-
erinu á vörunni upp á heimasíðunni
okkar,“ segir Björn Víkingur.
Til að byrja með fást uppruna-
merktar vörur frá Fjallalambi í flest-
um stærri verslunum Krónunnar og
Iceland.
Upprunamerktar afurðir frá
Fjallalambi voru kynntar á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var nú
nýverið.
Viðurkenningar veittar
Á fundinum voru veittar viður-
kenningar fyrir hæsta meðalverð
haustsins 2015 og fyrir mestu
meðaltalsframfarir í sauðfjárrækt á
tímabilinu 2013 til 2015. Dagbjartur
Bogi Ingimundarson á Brekku fékk
viðurkenningu fyrir hæsta meðal-
verð dilka innlagða hjá Fjallalambi
haustið 2015, 10.665,65 kr á dilk.
Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir og
Benedikt Líndal Jóhannsson, bændur
á Brúarlandi, Þistilfirði, fengu viður-
kenningu fyrir mestu meðaltalsfram-
farir í fjárrækt á innleggjendasvæði
Fjallalambs.
Sigríður Jóhannesdóttir tekur við
verðlaunum fyrir hönd Ólínu og
Benedikts fyrir mestu meðaltalsfram-
farir í fjárrækt á innleggjendasvæði
Fjallalambs. Björn Víkingur fram-
kvæmdastjóri afhenti verðlaunin á
aðalfundi félagsins.
Dagbjartur Bogi Ingimundarson
í Brekku tekur við viðurkenningu
fyrir hæsta meðalverð dilka innlagða
hjá Fjallalambi haustið 2015. Björn
Víkingur afhenti.