Bændablaðið - 21.07.2016, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Á ferðalagi um Japan:
Hof, vatn,
mosi og
grjót
– Higashi Honganji-hofið
og Shosei-en-garðurinn í Kyoto
Kyoto, fyrrverandi höfuðborg jap-
anska keisaraveldisins, er einstak-
lega falleg borg og meðal annars
þekkt fyrir hallir, hof og fallega
garða. Þar er hægt að eyða mörg-
um vel skipulögðum dögum og
skoða ekkert annað.
Fæstir eru þó eins mikl-
ir sérvitringar og tíðindamaður
Bændablaðsins og undanlátssöm
samferðakona hans sem vörðu allri
heimsókninni til Kyoto í að skoða,
hof og garð.
Þegar gengið er út um einn
útganginn á aðallestarstöðinni í
Kyoto blasir við snældulaga útsýnis-
turn ofan á Kyoto Tower-hótelinu.
Higashi Honganji-hofið og Shosei-
en-garðurinn eru í sömu átt og
turninn. Ekki er nema fimm mínútna
gangur að hofinu og tíu mínútur í
garðinn eftir að farið hefur verið yfir
götuna í átt að útsýnisturninum og
beygt til vinstri. Hofið og garðurinn
eru prýðileg sýnishorn fyrir þá sem
vilja kynnast slíkum dásemdum á
einum til tveimur klukkustundum og
verja svo deginum í að skoða eitthvað
annað af öllu því sem borgin hefur
upp á að bjóða.
Saga hofsins
Higashi Honganji-hofið er annað af
meginhofum Shin-búddisma í heim-
inum. Á máli heimamanna kallast
það Austurhofið eða Hinn heiðvirti
herra Austur.
Hofið, sem er byggt á grafreit frá
12. öld, var sett á fót árið1602 eftir að
einn af mörgum stríðsherrum Japans
klauf Shin-búddaregluna í herðar
niður og skipti henni í tvær einingar
til að draga úr völdum hennar. Eftir
það er talað um austur- og vestur-
-Shin-búddisma.
Um miðbik 20. aldar logaði
austurreglan í pólitískum og fjár-
hagslegum deilum og klufu margir
meðlimir hennar sig burt og stofn-
uðu eigin reglur. Í dag eru meðlimir
Higasgi Honganji-reglunnar ríflega
5,5 milljónir.
Eitt stærsta timburhús í heimi
Garðurinn umhverfis hofið og aðrar
byggingar sem tengjast því, minni
hof, og heimili munka, er tæpir tíu
hektarar að stærð.
Meginhofið og tilbeiðslustaður
þeirra sem tilheyra austur-Shin-
búddisma og allt snýst um í garðinum
er eitt af stærstu timburbyggingum í
heimi, 76 metrar að lengd, 58 metr-
ar að breidd og 38 metrar að hæð.
Núverandi hof er frá 1895. Þakið
er gert úr 175 þúsund handgerðum
steinskífum og haldið uppi af 90
súlum úr tré.
Sagan segir að það hafi tekið 16
ár að reisa hofið og að 1,3 milljónir
manna hafi tekið þátt í byggingu þess.
Shosei-en-garðurinn
Handan við götuna, eilítið í austur,
gegnt aðalinnganginum að Higashi
Honganji-hofinu, er hálfgerður
leynigarður sem er vel fyrirhafnar-
innar virði að leita uppi og heim-
sækja. Garðurinn kallast Shosei-en
eða Kikoku-tei og til að komast að
honum þarf að fara inn á litla hliðar-
götu þar sem er meðal annars verslun
sem selur alls konar smávörur.
Nafnið Kikoku-tei er dregið af
appelsínutrjáalundum sem eitt sinn
umluktu garðinn en eru nú að mestu
horfnir. Aftur á móti hefur töluvert
af appelsínutrjám verið plantað í
garðinn undanfarna áratugi.
Elsti hluti garðsins er sagður
vera frá 10. öld og eru tjarnirnar í
honum að mestu óbreyttar frá þeim
tíma. Stærstur hluti garðsins, eins
og hann er í dag, var byggður 1641
og hugsaður sem afdrep og hvíldar-
staður fyrir heimsþreyttanæðsta prest
stórrar búddareglu í Kyoto.
Allar byggingar í garðinum
brunnu til grunna í eldsvoðanum
1858 og 1864, og núverandi hús eru
byggð á árabilinu 1865 til 1868.
Í garðinum er auk þess íbúðarhús,
tehús, lítið hof, tjarnir, grjóthleðslur,
stein- og timburbrýr, fallega mótaðar
furur, appelsínu- og kirsuberjatré,
fossar og lækir, mosavaxnir steinar
og óvenju stór grasflöt fyrir japansk-
an garð.
Talið er að hönnuður garðsins hafi
verið Ichikawa Jozan aðalsmaður,
listamaður og meistari í tesiðum.
Í dag er garðurinn hluti af Higashi
Þegar gengið er út af aðal-
lestarstöðinni í Kyoto blasir við
snældulaga útsýnisturn ofan á Kyoto
Tower-hótelinu. Higashi Honganji-
sömu átt. Drekagosbrunnur í hofgarðinum.
Myndir / VH
Ein af mörgum steinbrúum í garðinum.
blómstra.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
- með þér alla leið -
569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Nánari upplýsingar veitir
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
sími: 695 5520
jon@miklaborg.is
Sala jarða og fasteigna
Skoða og verðmet jarðir og aðrar eignir um allt land
• Fagleg þjónusta löggilts fasteignasala
• Góð kynning á eignum í vefmiðlum og dagblöðum
• Vönduð ljósmyndataka af eignum, m.a. loftmyndir
Einkunnarorð Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi, en mikil
áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning
allra hlutaðeigandi í viðskiptunum.
Hjá okkur geta eigendur fasteigna verið öryggir um að eign þeirra fái
hámarkskynningu og einstaka þjónustu. Við leggjum mikla áherslu á
að vera áberandi í störfum okkar með auglýsingum í blöðum og á netinu.