Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Lanz Bulldog
– gæða traktor
Lanz Bulldog dráttarvélar
voru framleiddar af þýska
fyrirtækinu Heinrich Lanz
AG í Mannheim í Baden-
Württemberg Þýskalandi.
Framleiðsla Lanz hófst 1921 en
var hætt 1960.
Kosturinn við Lansinn, eins og
vélarnar voru kallaðar
hér á landi, var að þær
voru einfaldar að gerð
og auðvelt var að gera
við þær ef eitthvað bil-
aði. Fyrstu vélarnar voru
6,3 lítra, eins strokka
og tólf hestöfl. Seinna
var boðið upp á öflugri
10,3 lítra, og 55 hestafla
vélar. Einnig þótt kostur
að mótorinn gekk fyrir
margs konar olíu og
meira að segja notaðri smurolíu.
Eftirlíkingar
Þrátt fyrir að Lansinn hafi verið
líkur öðrum dráttarvélum, SF
Vierzon í Frakklandi, Landini á
Ítalíu og HSCS í Ungverjalandi,
sem framleiddar voru í Evrópu á
svipuðum tíma, þótti hann betri.
Ekki leið á löngu þar til farið
var að framleiða eftirlíkingar af
Lansinum undir ýmsum nöfn-
um. Í sumum tilfellum voru eft-
irlíkingarnar framleiddar með
leyfi Heinrich Lanz AG en ekki
í öðrum.
Frakkar settu á markað drátt-
arvél sem kallaðist Le Percheron
árið 1939 með leyfi Lanz. Sá
traktor var 25 hestöfl og til ársins
1956 voru framleidd 3.700 slík-
ir. Á árunum 1948 til
1952 voru framleiddir
í Austurríki 860 trakt-
orar sem kölluðust KL
Bulldog og voru Lanz
„look alike“.
Ursus verk-
smiðjurnar í Póllandi
framleiddu 45 eintök af
sinni gerð af Lanz árið
1947 sem kallaðist C-45. Tíu árum
seinna setti Ursus svo á markað
C451 og alls voru 55 þúsund slíkir
framleiddir til 1965. Argentínska
útgáfan af Lansinum kallaðist El
Pampa og voru 3.760 slíkir settir á
markað í Suður-Ameríku frá 1951
til 1960.
John Deere tekur Lanz yfir
Landbúnaðartækjaframleiðandinn
John Deere keypti framleiðslu-
réttinn af Lanz árið 1956 og hét
dótturfyrirtækið þess sem tók við
framleiðslu Lanz dráttarvéla John
Deere-Lanz.
Hluti framleiðslu John Deere-
Lanz var á Spáni undir heitinu
Lans Iberica og frá 1956 til 1963
runnu 17.100 slíkir af færiböndum
þar í landi.
Lanz Bulldog er með allra vin-
sælustu dráttarvélunum sem hann-
aðar og framleiddar hafa verið í
Þýskalandi. Alls munu
hafa verið framleiddar
220 þúsund dráttarvélar
undir heitinu Lanz og í
Þýskalandi er heitið Lanz
víða notað sem samheiti
yfir dráttarvélar.
Lanz-ins gang
Á heimasíðu Landbúnaðarsafns
Íslands segir að upp úr mið-
biki síðustu aldar hafi komið til
landsins afar merkileg dráttarvél,
þýskrar gerðar. Hún hét Lanz
Alldog. Vélin var merkileg sakir
framúrstefnulegrar hönnunar.
Dráttarvélin var byggð á öfluga
grind, þar á sat ökumaðurinn, aft-
ast, og hafði mótorinn sér á vinstri
hönd. Verkfærin voru síðan hengd
á grindina sem einnig gat borið
mikinn kassa er sturta mátti úr
fram fyrir vélina.
Talsvert er enn til af þessum
vélum hér á landi og margar
þeirra gangfærar. Búvélasafnið
hýsir eina fyrir Byggðasafnið í
Görðum. Sú er úr búi Sveinbjarnar
Beinteinssonar allsherjargoða frá
Draghálsi. Hún er gangfær en
nokkuð lúin. /VH
Búverkin á Fossi
Flestir sem hafa verið í sveit sem börn eiga minningar
um búleiki. Stór bú og lítil bú voru byggð út við hól
og fyrirmyndirnar jafnvel sóttar um alla sveit. Börnin
léku sér með leggi, kjálka, völur, skeljar, fiskibein
og steina ásamt fleiru. Allir áttu sín hlutverk og sinn
bústofn þar sem ímyndunaraflið réði gangi leiksins.
Þó nú sé tækniöld og flest börn alist upp við óteljandi
tölvuleiki og margs konar afþreyingu eiga búleikirnir
ennþá upp á pallborðið. Fyrir allnokkru viku þó leggir
og skeljar fyrir plastmótuðum skepnum, leikfangabílum
og litlum dráttarvélum.
Hún Sveindís Helga unir sér í leik við eftirmynd
af útihúsunum á Fossi í Staðarsveit sem Binni frændi
hennar smíðaði. Á bænum búa afi og amma Sveindísar
og þar er líka smalahundurinn Blossi sem rólegur gætir
búsins á meðan sú stutta sinnir búverkunum. /TB
Mynd / Hlédís Sveinsdóttir
Fasteignafélagið Reitir hyggst
opna veitinga- og matarmarkað að
erlendri fyrirmynd í Vogahverfinu
í Reykjavík. „Við erum að auglýsa
eftir aðilum sem vilja taka þátt í
þessu með okkur og höfum þegar
fengið fyrirspurnir frá áhugasöm-
um smásölum,“ segir Friðjón
Sigurðarson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Reita.
Áformað er að opna veitinga- og
matarmarkaðinn í Holtagörðum
undir nafninu Sælkerahöllin.
Friðjón segir að fyrstu viðbrögð
lofi góðu, en um 1.500 fermetra
svæði verði til að byrja með ráð-
stafað undir starfsemina. „Við
höfum möguleika á að stækka
ef áhuginn reynist mikill,“ segir
hann. Básafyrirkomulag verður í
Sælkerahöllinni þar sem 12 fermetra
rými eða stærra er í boði.
Sælkerahöllin verður í anda
Torvehallerne í Kaupmannahöfn og
Borough Market í London þar sem
matur, menning og umhverfi tvinnast
saman í skemmtilegri upplifun gesta.
„Það er vaxandi eftirspurn eftir t.d.
lífrænum vörum og matvælum beint
frá býli, fólk vill í meira mæli fá
að vita eitthvað um þann mat sem
það kaupir, ekki bara grípa eitthvað
frosið í næsta stórmarkaði,“ segir
Friðjón.
Stóru verslunarrýmin, sem mjög
voru í tísku í eina tíð, eiga undir högg
að sækja, annars konar fyrirkomu-
lag sé að ryðja sér til rúms, líkt og
það sem fyrirhugað er að setja upp
í Holtagörðum þar sem margir ein-
yrkjar koma saman undir sama þaki
og bjóða hollar og góðar vörur, skapa
lifandi markaðsstemningu með lífi
og fjöri. Áhersla verður á ferskleika,
íslenska matargerð og hráefni beint
frá framleiðendum og eins er gert ráð
fyrir að hægt verði að njóta veitinga
á staðnum eða grípa þær með.
Mikill fjöldi þegar á ferli á
þessum slóðum
Friðjón bendir á að Holtagarðar
gegna nú stóru hlutverki sem
samgöngumiðstöð en um hana
fari um 600 þúsund ferðamenn á
ári. Í húsinu eru líka verslanir og
önnur starfsemi sem heimamenn
sækja í miklum mæli. Þá búa um
14 þúsund manns í Laugarnes- og
Laugaráshverfi, Heimum og Vogum
og veruleg fjölgun íbúða ráðgerð á
næstu árum. Á markaðnum gæti því
orðið skemmtilegt samspil heima-
og ferðamanna. Til að auka enn á
upplifun gesta markaðarins er ætl-
unin að bjóða upp á afþreyingu, sýn-
ingar, tónleika eða aðra listviðburði.
„Nú bíðum við viðbragða og
munum fara yfir umsóknir í haust
og sjá hvert þetta leiðir. Ef allt
gengur að óskum stefnum við á að
opna í kringum næstu áramót,“ segir
Friðjón. /MÞÞ
Sælkerahöll í Holtagörðum
– fyrirmynda leitað í Danmörku og í Bretlandi
Í Sælkerahöllinni verður hægt að kaupa ferskvöru beint af framleiðendum
líkt og í Torvehallerne í Kaupmannahöfn. Myndir / TB
Verður stemningin svona í Holtagörðum? Til að auka á upplifun gesta
markaðarins er ætlunin að bjóða upp á afþreyingu, sýningar, tónleika eða
aðra listviðburði.
Boðið verður upp á bása til leigu í Sælkerahöllinni.