Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Frjáls útivera
kúnna í Holtseli
– hraustari kýr, hærri nyt auk vinnusparnaðar við þrif og fóðrun, segir bóndinn
Á bænum Holtseli í Eyja fjarðar-
sveit hefur til langs tíma verið
rekið myndarlegt kúabú og hefur
löngum þótt glæsilegt heim að
líta, enda ábúendur þar engir
nýgræðingar í búskap. Búið
hefur síðustu áratugi verið eitt af
stærri mjólkurframleiðslubúum
á Eyjafjarðarsvæðinu og alla tíð
þótt afar glæsilegt, byggingum vel
við haldið og umhverfið snyrtilegt.
Þarna búa hjónin Guðrún
Egilsdóttir og maður hennar,
Guðmundur Jón Guðmundsson. Þau
voru á sínum tíma brautryðjendur í
framleiðslu á heimagerðum ís, og
reka enn ísgerð og fallegt ísrétta-
veitingahús á fjósloftinu.
Ísframleiðslan hófst 23. apríl
2006 og eru ábúendur í Holtseli
fyrstir íslenskra bænda til að fram-
leiða mjólkur- og rjómaís úr eigin
mjólk.
Í Holtseli er rekin Beint frá býli-
verslun sem býður upp á ýmsar vörur
„Beint frá býli“-framleiðenda úti um
land allt.
Mjaltaþjónn bætist í búskapinn
Fyrir tæpu ári síðan var breytt um
mjaltatækni og keyptur Delaval
mjaltaþjónn af Bústólpa ehf. og var
kosið að hafa sk. stýrða umferð eins
og algengast er með þessa tegund
mjaltaþjóna.
Kýrnar í Holtseli eru greinilega
hrifnar af tækninýjungum því það
var eins og þær hefðu verið mjólk-
aðar í mjaltaþjóni í tugi ára og voru
engin vandamál sem dúkkuðu upp
þegar þær fóru að mjólkast með nýrri
og annarri tækni.
Aðspurður um það hvernig til
hefði tekist þegar mjaltaþjónn var
tekinn í notkun að leyfa kúnum
áfram að ganga við opið, segir
Guðmundur að það hefði gengið vel.
„Við höfum í nokkur ár leyft
kúnum að hafa opinn aðgang að
fjósinu allan sólarhringinn þar sem
þær hafa bæði haft hey og fóðurbæti
og eru þær vanar að nýta sér það. Þær
rölta út og inn nokkrar ferðir á dag.
Ef veður er ekki gott kjósa þær að
liggja inni, einnig á nóttunni.
Kýrnar ganga frjálsar út og inn
Þegar við tókum í notkun nýjan
mjaltaþjón síðastliðið haust höfð-
um við dálitlar áhyggjur af því að
erfitt yrði að leyfa kúnum að fara út
á sömu forsendum og áður, en þær
áhyggjur voru með öllu ástæðulaus-
ar. Núna lokum við aldrei fjósinu
og kýrnar ganga frjálsar út og inn.
Fyrstu 1–2 vikurnar sóttum við
þær einu sinni til tvisvar á dag og
rákum þær inn, en flokkunarhliðið
við mjaltaþjóninn hleypti þeim út
sem ekki voru komnar með mjalta-
heimild. Það að hafa flokkunarhlið
gerir þetta allt saman mikið þægi-
legra og auðveldara á allan átt. Og
forsenda þess að hægt sé að leyfa
kúnum að ganga frjálsar,“ segir
Guðmundur og bætir við að þau hafi
jafnvel séð kýr sem ekki vildu fara
út fara inn beint aftur, þær hafi valið.
„Nú erum við nánast alveg hætt
að þurfa að skipta okkur af kúnum
til að reka þær í mjaltir. Þær kjósa
að koma inn að kvöldinu og liggja
inni yfir nóttina, en byrja að tínast
út snemma á morgnana að mjöltun
loknum. Það fer svo eftir veðri hvað
þær eru fljótar að koma sér á beit. Ef
kalt er í veðri eða rigning kjósa þær
oft flestar að liggja inni mestan part
dagsins, skjótast kannski stutta stund
á beitina. Þar sem þær hafa aðgang
að grænfóðri skammt frá fjósinu.
Þar færum við rafgirðingu tvisvar
til þrisvar á dag,“ segir Guðmundur.
Hver er helsti ávinningur
frjálsrar útiveru?
„Við teljum útivist og hreyfingu
ekki síður nauðsynlega fyrir kýrnar
en mannfólkið og okkar reynsla er
sú að mörg vandamál séu úr sögunni
þegar kýrnar komast út á vorin.
Auðvitað er æskilegt að bithaginn
sé ekki langt frá fjósinu svo kýrnar
eigi auðvelt með að rölta á milli að
vild,“ segir Guðmundur.
Hann telur ávinninginn við
útiveru kúnna vera hraustari kýr
og hærri nyt auk vinnusparnaðar
við þrif og fóðrun. „Það er okkar
skoðun og byggð á reynslu,“ segir
Guðmundur Jón Guðmundsson í
Holtseli.
/Kristján Gunnarsson ráðgjafi
Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur Jón Guðmundsson í Holtseli. Mynd / BBL
Mynd / GJG
Mynd / GJG