Bændablaðið - 21.07.2016, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Spá metuppskeru á korni:
Rússar ætla að auka
framleiðsluna gríðarlega
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna (FAO)
spáir að heildar kornframleiðsla í
heimunum á þessu ári verið ríflega
tveir milljarðar tonna.
Núverandi spá er talsvert hærri en
sú sem var gefin var út í upphafi árs.
Helsta ástæða þess að uppskeran er
talin vera meiri en ætlað var er met-
uppskera í Rússlandi.
Veðurfar á árinu hefur víða verið
hagstætt fyrir kornrækt og er búist við
mjög góðri uppskeru í Bandaríkjunum,
Kína og Indlandi. Útlitið er aftur á
móti lakara í Tyrklandi.
Talið er að heimsuppskera á hrís-
grjónum verði rétt tæp 500 milljón
tonn.
Spár FAO gera ráð fyrir að
heildaruppskera á korni muni aukast
um 25% á næstu 15 árum.
Árið 2015 ræktuðu Rússar 105
milljón tonn af korni en áætlanir þar í
landi gera ráð fyrir að auka uppsker-
una í 111 milljón tonn árið 2017 og
í 130 milljón tonn á næstu fimmtán
árum. Þær áætlanir gera ráð fyrir að
kornræktarland í Rússlandi aukist
úr 46 milljón í 49 milljón hektara.
Rússland er stærsti framleiðandi
og útflytjandi óerfðabreytts korns í
heiminum í dag.
Gangi áætlanirnar eftir verður
korn önnur stærsta útflutningsvara
Rússa á eftir olíu.
/VH
Tónlist:
Neil Young rokkar
fyrir Móður Jörð
Hipparokkarinn baráttuglaði Neil
Young er ekki þekktur fyrir að
liggja á skoðunum sínum. Í sumar
hefur hann verið á tónleikaferð um
Evrópu. Með honum í för er hópur
aðgerðasinna sem kallast Global
Village eða Heimsþorpið.
Hópurinn sem fylgir Young hefur
sett upp sýningar í nokkrum borgum
þar sem lögð er áhersla á að vekja
fólk til vitundar um mál sem tengjast
landbúnaði og fæðuframleiðslu.
Á sýningunum má meðal annars
fræðast um lífræna ræktun og þá
hættu sem stafar af erfðabreyttum
matvælum og lyfjanotkun í land-
búnaði. Málefni sem eru Neil Young
hugleikin.
Earth og The Monsanto Years
Young, sem gaf út sína fyrstu plötu
árið 1968, hefur haldið tónleika víða
um Evrópu í sumar og kynnt nýju
plötuna sína, Earth, sem er óður
hans til Jarðarinnar. Hljómsveitin
sem spilaði með honum kallast
Promise Of The Real og er meðal
annarra skipuð tveimur af sonum
Willie Nelson.
Young hefur oft látið málefni líð-
andi stundar koma sér við og boðað
ást og frið í lögum sínum. Á síðasta
ári gaf hann út plötu sem heitir The
Monsanto Years og inniheldur bar-
áttulög til höfuðs risalandbúnaðarfyr-
irtækinu Monsanto sem meðal annars
framleiðir og selur erfðabreytt fræ og
plöntueitur.
Farmaid
Árið 1985 hélt Young, ásamt Willie
Nelson og John Mellencamp, tón-
leika sem kölluðust Farmaid og rann
ágóðinn til bænda í vanda. Í fram-
haldi af því stofnaði hann samtökin
Farmaid sem hafa að markmiði að
styðja við bændur í Bandaríkjunum.
Samtökin hafa lagt ríflega 50 milljón
bandaríkjadali til stuðnings bændum
í vanda. Þau hafa einnig lagt fé í að
kynna lífræn matvæli beint frá býli.
/VH
Neil Young hefur haldið tónleika víða um Evrópu í sumar og kynnt nýju
plötuna sína, Earth.
Hitablásarar og rafstöðvar
Hitablásari
HDK 30T - 30Kw
brennir steinolíu og dísil
Hitablásari
HDK 15T - 15Kw
brennir steinolíu og dísil
Rafstöð 1,36 kw - STE3000
Rafstöð 7,5 kw - STE8000
Rafstöð 1,3 kw - STE2000
Eigum einnig fyrirliggjandi
| |
Til sölu jörðin Skógar í Flókadal, Borgarbyggð
Umtalsverðar veiðitekjur.
Jörðin Skógar er sunnan Flókadalsár.
Bláfinnsvatn er í útnorðurmörk-
um, og Skógavatn, sem að mestu
er í Skógalandi, er á mörkum Hæls
og Skóga. Í þessum vötnum var
stunduð veiði, einkanlega Skóga-
vatni. Í Flókadalsá er töluverð lax-
veiði og eru veiðitekjur Skóga u.þ.b.
2.8 millj. á ári en eignarhluti er um 12%. Jörðinni fylgir einnig veiði- og beitarréttur á
Arnarvatnsheiði.
Land jarðarinnar er allt slétt og víða vel gróið. Land Skóga sem talið er vera um 350
hektarar Húsakostur er allur gamall, en mjög snyrtilegur og að því er séð verður mjög
vel um hirtur. Íbúðarhúsið hefur verið mikið endurnýjað en látið halda að mestu sínu
upprunalega útliti. Góðar girðingar eru á jörðinni.
Stutt í margar af helstu náttúruperlum Borgarfjarðar.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is sími 550-3000 eða 892 6000