Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 52

Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016 Áhrif heygæða á afurðir og heilsufar sauðfjár – grein 1: yfirlit Þessi grein og fleiri með sömu yfir- skrift sem ætlunin er að birtist hér í Bændablaðinu á næstu vikum eru skrifaðar í tilefni af óvenju mikl- um vanhöldum sauðfjár á vissum landsvæðum veturinn 2014-15. Fóðrun, heilsufar og afurðir tengj- ast á marga vegu og verður leitast við að skýra það samhengi. Þessi fyrsta grein verður yfirlit um viðfangsefnið en síðari greinar munu taka betur fyrir afmarkaðri hluta þess. Lesendur ættu ekki að reikna með að hér verði sett fram ein allsherjar kenning um ástæður van- halda. En vonandi fræða þessi skrif eitthvað bæði um sértæk og almenn atriði er snerta fóðrun sauðfjár til góðra afurða og heilsufars. Áhrif veðurfars á heyskapartíma á fóðurgildi gróffóðurs Þegar jarðrækt og fóðuröflun er eins og best verður á kosið, getur heimaaflað gróffóður og beit farið mjög langt með að uppfylla allar fóðurþarfir á íslenskum sauðfjárbú- um. Það sem helst þyrfti þá að huga að væri að uppbót á vissum stein- efnum, snefilefnum og vítamínum, og mögulega einhver viðbót í formi kjarnfóðurs af orku og próteini á síð- ustu vikum meðgöngu og fyrst eftir burð, þar til féð er komið á næga og góða beit. Séu skilyrði til gróffóðuröfl- unar ekki með besta móti, verð- ur framleiðslugildi gróffóðursins (fóðrunarvirði) undir væntingum, og afleiðingarnar geta orðið bæði skertar afurðir og lakara heilsufar fjárins. Gott dæmi um erfið hey- skaparskilyrði var einmitt sumarið 2014, þegar saman fóru hlýindi, vætutíð og sólarleysi vikum saman. Veltum aðeins fyrir okkur hvaða áhrif þetta hefur á gæði og þar með fóðrunarvirði gróffóðursins: Þegar saman fara raki og hlýindi spretta grös hratt, tréna hratt, og fóðurgildið fellur því hratt. Styrkur orku, próteins og sumra steinefna í grösunum fellur hraðar en í meðalári og því væri æskilegt að slá snemma til að fóðurgildið verði ekki of lágt. En rigning tefur fyrir slætti og verkun, þegar þurrkdagarnir loks koma er grasið orðið úr sér sprottið og/eða hrakið. Svo að jafnvel þó að hægt sé að bjarga miklu fóðri á stutt- um tíma með nútíma heyskapartækni er hráefnið það lélegt að fóðurgæð- in verða mun minni en almennt er stefnt að. Sólarleysi veldur því að sykru- innihald grasanna verður lágt. Hátt sykruinnihald er einn af þeim þáttum sem skiptir hvað mestu máli varðandi góða niðurstöðu úr votheysverkun. Þegar það fer saman að sykruinni- haldið er lágt og óvenju mikil þörf á að votverka heyið þá verður verk- unin ekki sem best. Hlutfall óæski- legra efna eins og ammóníaks og smjörsýru verður hátt í fóðrinu eftir verkun. Nokkuð er af D-vítamíni í gróf- fóðri sem þurrkað er í sól en lítið D-vítamín er að fá úr gróffóðri sem verkað er í óþurrkum og sólarleysi. Útfjólubláir geislar sólar virkja for- stigsefni D-vítamíns í húð, þannig að birgðastaða D-vítamíns í líkama dýra er einnig slök eftir sólarlaus sumur miðað við þau sólríku. Á innistöð- unni þarf D-vítamínið að koma úr líkamsforða og/eða fóðri. Af þessum sökum er mikil hætta á D-vítamín- skorti eftir sólarlaus sumur, og þarf að bæta upp með viðbótarfóðri. Fóðrunarvirði gróffóðursins er margfeldi fóðurgildis og áts. Algengasti mælikvarðinn á fóð- urgildi er orkustyrkurinn, mældur sem fóðureiningar (FEm) í hverju kg þurrefnis (þe). Því hærra gildi á þessari stærð (FEm/kg þe), því meiri nýtanleg orka (nettóorka) í hverju kg þe af fóðrinu. Átgeta fullorðinna íslenskra áa í tilraunum hefur oftast verið á bilinu 1,4 til 1,9 kg þe/dag yfir vetrartím- ann en fer í 2,0–2,5 kg þe/dag fyrst eftir burð og trúlega um og yfir 3 kg þe/dag á beit fyrri hluta mjólkur- skeiðsins. Fóðurgæðin hafa veruleg áhrif á átgetuna, því meiri sem þau eru, því meira verður átið. Þarna koma bæði orkugildi og verkunar- þættir við sögu. Við gjöf á þurrheyi eða þurrlegu rúlluheyi mestan part vetrar (ekki þó eftir burð) má nota eftirfarandi þumalputtareglu um gróffóðurát hjá fullorðnum ám: Gróffóðurát, kg þe/dag = 2 x orkustyrkur (FEm/kg þe) Taka verður fram að þessi for- múla gefur aðeins grófa nálgun, hún er lauslega byggð á niðurstöðum ýmissa tilrauna. Niðurstöður fengn- ar með þessu móti má sjá í 1. töflu: Orkuþarfir tvílembu í lok með- göngu eru um 1,45 FEm/dag, og úr töflunni má lesa að besta heyið (0,85 FEm/kg þe) þarf til að uppfylla slíkar orkuþarfir. Sé aðeins í boði hey með orkustyrk 0,70 FEm/kg þe innbyrðir ærin 0,47 FEm/dag minna. Það þýðir að ærin þarf að tálga af sér ca. 85 g á dag af fitu. Nánar síðar um áhrifin af því. Áætlað át skv. 1. töflu miðast við þurrt eða þurrlegt hey, sem er mjög nálægt hráefninu (grasi) að efna- samsetningu. Sauðfé étur þurrt hey betur en votverkað. Samanburður á áti áa yfir vetrartímann á þvölu og þurrlegu rúlluheyi sýndi mun á áti sem nam 9% fyrri hluta vetrar en 15% á vormánuðum, þurrlega rúllu- heyinu í vil (Bjarni Guðmundsson, 1996). Munur í áti milli þurr- og votverkaðra heyja verður meiri eftir því sem verkun votheysins er lakari. Og eins og áður var vikið að verður verkunin lakari eftir því sem hrá- efnið er lakara. Af öllu þessu má ráða að þegar saman fer að grös eru úr sér sprottin og verkunarskilyrði slæm getur orkujafnvægi áa orðið verulega nei- kvætt þegar líður á meðgönguna, einkum ef eingöngu er treyst á gróf- fóður. Gjafatækni Aðferð eða tækni við fóðrun getur haft nokkur áhrif á gróffóðurátið. Sjálffóðrun á gjafagrindum er orðin mjög útbreidd aðferð í íslenskum fjárhúsum og hefur sparað bændum mjög mikinn tíma og bakraunir síð- ustu 15-20 árin. Þegar heygæði eru eðlileg fóðrast fé vel með þessari aðferð að því gefnu að í það minnsta þriðjungur fjárins hafi aðgang að fóðrinu á hverjum tíma og að grindin sé ekki látin standa tóm nema í örstuttan tíma á milli gjafa. Eftir því sem heygæði eru lakari reynir meira á að: • a) Flokka fé í fóðrunarhópa þannig að yngra féð og gamalær fái aðgang að jafnbetra heyi en ær á besta aldri. • b) Að stilla grindurnar nægilega oft þannig að aðgengi fjárins að fóðrinu sé sem best. • c) Að fjarlægja moð og grófa stöngla úr grindunum reglulega, ekki bara þegar ný rúlla er sett inn. Í fjárhúsum með gjafagrindum er aðstaða til kjarnfóðurgjafar víða af skornum skammti. Það er nokkuð sem þarf að reyna að bæta úr og er efni í sérstakt þróunarverkefni að prófa og kynna góðar lausnir í þessu sambandi. Efnaskiptasjúkdómar eru afleiðing af ójafnvægi milli næringarefnaþarfa og fóðrunar Dæmi um efnaskiptasjúkdóma í sauðfé: • Doði– truflun á efnaskipt- um kalsíum (Ca) – stundum vegna D-vítamínskorts, þar sem D-vítamín er nauðsynlegt í Ca-efnaskiptum. Offóðrun á Ca um miðjan vetur getur einnig valdið doða, þá verður nýting þess smám saman lakari þegar líður að burði og þarfirnar aukast. • Graskrampi – truflun á efna- skiptum magnesíum (Mg), t.d. vegna of mikils styrks kalí (K) í beitargróðri, sem truflar upp- töku Mg. • Fóstureitrun (súrdoði) - skortur á orku/ glúkósa. Sjá nánari umfjöllun síðar í greininni. • Of lítil broddmjólkurmyndun vegna ófullnægjandi næringar móður; leiðir af sér skort á nær- ingarefnum og mótefnum sem aftur hefur í för með sér auknar líkur á bæði efnaskipta- og smit- sjúkdómum hjá lömbum. Það er samhengi milli efnaskorts og sjúkdóma af völdum smits og sníkjudýra Mótefnastaða og þar með líkur á smitsjúkdómum er mjög tengt nær- ingarástandi. Nokkur dæmi um slíkt samspil: • Samhengi er milli tíðni júgur- bólgutilfella og ójafnvægis í snefilefnastöðu. • Skortur á próteini í fóðri getur valdið auknu tjóni af völdum ormasýkinga. • Ef næring er ekki í nægilegu jafnvægi við þarfir verður mótefnastaða lakari og líkur aukast að mun á skaða af völdum ýmissa smitsjúkdóma sem ekki næðu sér á strik við eðlilegar aðstæður þó svo að smitefnið væri fyrir hendi. Nokkur efni í fóðri sem hafa áhrif á mótefnastöðu: Mörg efni hafa áhrif á ýmsa mæli- kvarða mótefnastöðu í búfé, þar á meðal vissar amínósýrur og fitusýrur (t.d. línólsýra), hin fituleysanlegu A-, D- og E- vítamín, hin vatnsleys- anlegu C- og B-vítamín (am.k. fólín- sýra, B6 og B12) og snefilefni á borð við zink, kopar, járn, selen, króm og kóbalt. Í gegnum tíðina hafa zink og E-vítamín verið hvað mest rannsök- uð í þessu sambandi, en sameigin- leg virkni selens og E-vítamíns er einnig þekkt t.d. varðandi mótstöðu gegn júgurbólgu. Á síðari árum hafa komið fram ýmsar rannsóknir sem sýna mikilvægi D-vítamíns fyrir ónæmiskerfið. Þó að líkur bendi til að meira og minna sömu efnin séu mikilvæg fyrir ónæmiskerfið í mismunandi tegundum spendýra, hefur kerfi meltingar og efnaskipta í ólíkum dýrategundum nokkuð um það að segja hver þessara efna þurfa að koma beint úr fóðrinu. Jórturdýr framleiða sjálf C-vítamín og örver- ur vambarinnar sjá skepnunni fyrir nægu af B- vítamínum og helstu amínósýrum. Samspil efna varðandi mótefna- stöðu er oft flókið. Framangreind upptalning efna gefur aðeins hug- mynd um mikilvægi þeirra. Um mörg efnanna (þó ekki öll) gildir að bil á milli skortsmarka (lágmark) og eiturmarka (hámark) í fóðri er býsna breitt og því oft ódýrara að gefa nokkuð ríflega af þessum efnum en að eiga hættu á að þau skorti. Leiðirnar til að koma þessum efnum í gripina eru margar og mis- dýrar. Mörg þessara efna er að finna í nægum mæli í góðu gróffóðri. Til þess að átta sig á þörf á aðkeyptum efnum á einhverju formi er æskilegt að þekkja innihald gróffóðursins. Þegar gróffóðurgæði af einhverjum ástæðum eru með lakara móti er sér- stök ástæða til að huga að þessum þáttum. Veikburða einstaklingar þola verr léleg heygæði Ær með lausar tennur eða jaxla- vandamál geta verið fljótar að drag- ast aftur úr í fóðrun. Aðrar ástæður eins og fótavandamál, eða bara elli, geta leitt til þess að kindur eru ekki alveg samkeppnisfærar. Ef svona kindur eru teknar sér og settar á betra hey og gjarnan kjarnfóður með er oft hægt að fóðra þær ágætlega svo framarlega að önnur og alvarlegri vandamál standi þeim ekki fyrir þrif- um. Tíðni svona tilvika fer vaxandi þegar fóðurþarfir aukast eftir því sem líður á meðgönguna, sérstak- lega þó ef hey eru gróf, ólystug og orkusnauð. Sauðfé er minna viðkvæmt fyrir beinum meltingartruflunum en nautgripir Það liggur að hluta til í því að mikil kjarnfóðurgjöf sem oft er orsaka- valdur meltingartruflana hjá naut- gripum er ekki algeng hjá sauðfé. Hins vegar er sauðfé viðkvæmara en nautgripir fyrir meltingarsjúk- dómum af völdum smits, svo sem af völdum Clostridium gerla (bráða- pest, garnaeitrun o.fl.) Skipti á milli gróffóðurgerða eru ekki sérlega áhættusöm hjá sauð- fé, svo lengi sem heildarfóðrunin byggir á að uppfylla heildarþarfir fjárins eins vel og hægt er. Þannig á að vera í góðu lagi að gefa orkuríkt og orkusnautt fóður saman, t.d. í sitt- hvort málið ef gefið er á garða eða í sitthvorn endann á gjafagrindinni ef um sjálffóðrun er að ræða. Þetta gengur vel upp (líka á gjafagrind) ef hvorttveggja fóðrið er sæmilega lystugt. Þar ræður hráefnið (gras- tegundin) miklu um hvernig til tekst. Sauðfé er viðkvæmara fyrir efna- skiptasjúkdómum fyrir burðinn en minna viðkvæmt eftir burðinn en nautgripir Góð dæmi um þetta eru doði og súrdoði, hvort tveggja er algengara eftir burðinn hjá kúm en fyrir burðinn hjá sauðfé, þar sem súrdoðinn heitir reyndar meðgöngueitrun (pregnancy toxemia/twin lamb disease). Hvað er meðgöngueitrun? Ástæður þessa efnaskiptasjúkdóms eru hratt vaxandi orkuþarfir á síð- ustu vikum meðgöngu og eftir burð, sem næst sjaldnast að mæta fyllilega með fóðri. Því meira (neikvætt) bil sem er á milli þarfa og fóðrunar, því meiri hætta! Orkusnautt og ólystugt gróffóður er uppskrift að þessu vandamáli, fleira getur þó ýtt undir, svo sem: snöggar fóðurbreytingar; óregluleg fóðrun, ormasýkingar, hnjask og rask af ýmsu tagi. Meginvandamálið er skortur á glúkósa (blóðsykri) en glúkósi er nauðsynlegur m.a. fyrir heilastarf- semina, mjólkurmyndun og ekki síst fyrir fóstrin, sem hafa forgang á glúkósann og því er líklegra að ærin lendi í glúkósaskorti heldur en lömbin. Glúkósaskortur leiðir til aukins fituniðurbrots, sem skaffar bæði fitusýrur til brennslu og glyser- ól til glúkósanýmyndunar; sem fer fram í lifrinni. Hratt fituniðurbrot leiðir til uppsöfnunar á ketónefnum í blóði og þvagi, sem veldur lækk- uðu sýrustigi (pH), með eituráhrif- um á borð við andnauð, truflanir í Áætluð áhrif orkustyrks gróffóðurs á át fullorðinna áa á gróffóðri frá hausti og fram að burði Orkustyrkur, FEm/kg þe Gróffóðurát, kg þe/dag Fóðrunarvirði FEm/dag - Myndir / HKr. Jóhannes Sveinbjörnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.