Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016 Fréttir Þingeyjarsveit: Styrking raforkuflutningakerfis á N-Austurlandi forgangsatriði Um 90% allrar sýklalyfjanotk- unar í landbúnaði í 26 af ríkjum Evrópusambandsins eru til að auka vaxtarhraða við húsdýraeldi. Veldur þetta vísindamönnum miklum áhyggjum þar sem slík ofnotkun er farin að valda því að hættulegar bakteríur mynda með sér ónæmi fyrir lyfjunum. Það hefur valdið tugþúsundum dauðsfalla í Evrópu. Fjöldi sérfræðinga í vísinda- stofnun og í háskólum víða um Evrópu hafa því hvatt ríkisstjórnir í Evrópusambandslöndum til að styðja bann við notkun á sýkla- lyfjum sem vaxtarhvetjandi efna í landbúnaði. Vilja þeir að fylgt verði fordæmi bændasamtaka á Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi. Þau hafa gert kröfu að yfirvöld ríkjanna leggi að Evrópusambandinu að banna fyrirbyggjandi notkun sýklalyfja í landbúnaði til að auka vaxtarhraða í dýrum. Í ákalli sérfræðinganna, sem birt var í breska blaðinu The Telegraph á dögunum, segir m.a.: „Hin hættulega mikla ofnotkun á sýklalyfjum í lækningum á mönnum og aukin tíðni sýklaónæmra baktería er nú orðið að alheimsvandamáli. Við þurfum pólitískar aðgerðir til að hamla ofnotkun í landbúnaði. Landbúnaður stendur á bak við um tvo þriðju af allri sýklalyfjanotk- un í Evrópu. Um 90% sýklalyfja sem notuð eru í landbúnaði eru notuð til hópmeðferðar. Oft fyrir dýr sem eru fullkomlega heilbrigð. Síðasta úrræðið í lyfjameðferð dugar oft ekki Bakteríur sem öðlast hafa ónæmi gegn neyðarúrræða-sýklalyfjum [colistin eða polymyxin antibiotic], hafa fundist í dýrum á bóndabæjum og í fólki í fjölmörgum ríkjum, í Evrópu, Asíu og í Afríku. Þetta er nýjasta vísbending um að núverandi notkun lyfjanna megi ekki viðgang- ast lengur. Endurskoðun á reglum um notk- un lyfja við dýraeldi í ESB-ríkjunum gefur tækifæri til að knýja á um að lyfin verði notuð af meiri ábyrgð.“ Í niðurlagi bréfsins segir síðan: „Við hvetjum ríkisstjórnir innan ESB, Evrópuþingið og fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins til að styðja bann í þessa veru.“ Það eru svo sem engir vanvit- ar sem skrifa undir þessa áskorun og því erfitt að afgreiða málið sem einhvern hræðsluáróður frá fávísum afdalabændum. Þetta eru: Baroness Hollins, stjórnarformaður British Medical Association Board of Science, prófessor Tim Walsh, Cardiff University, dr. Jeremy Farrar, yfirmaður Wellcome Trust, Shirley Cramer, forstjóri Royal Society of Public Health, Babulal Sethia, forseti Royal Society of Medicine, dr. Clifford Mann, for- seti Royal College of Emergency Medicine, prófessor Peter Piot, yfirmaður London School of Hygiene & Tropical Medicine, professor Jane Dacre, forseti Royal College of Physicians, prófessor Michael Dixon, forseti College of Medicine, prófessor Barry Cookson í University College London, dr. Alex O’Neill í University of Leeds, dr. Asha Kasliwal, varaforseti Faculty of Sexual and Reproductive Healthcare, prófessor Neena Modi, forseti Royal College of Paediatrics and Child Health, Vilma Gilis, forseti Guild of Healthcare Pharmacists, dr. David McCoy hjá Queen Mary University, dr. Ron Daniels forstjóri UK Sepsis Trust, dr. William Gazehjá University of Exeter Medical School, prófessor Derek Bell, forseti Royal College of Physicians of Edinburgh, pró- fessor James P O’Gara, yfirmað- ur Microbiology hjá National University of Ireland, prófessor Murat Akova, forseti European Society of Clinical Microbiology and Infectious Diseases, Tim Reed, framkvæmdastjóri Health Action International, Carolyn Whitten, framkvæmdastjóri Universities Allied for Essential Medicines Europe, Nina Renshaw, aðal- ritari European Public Health Alliance, dr. Anna Zorzet, skipu- leggjandi hjá ReAct Europe, dr. Ton Nicolai, skipuleggjandi og talsmaður EUROCAM, Thomas Breitkreuz, forseti International Federation of Anthroposophic Medical Associations, prófess- or Jan Kluytmans hjá Amphia Hospital í Breda í Hollandi, pró- fessor Dick Heederik, deildarstjóri hjá Institute for Risk Assessment Sciences - Division Environmental Epidemiology í Hollandi, dr. Dik J Mevius, yfirmaður Netherlands National Reference Laboratory for Antimicrobial Resistance in Animals - Central Veterinary Institute, pró- fessor Jaap A Wagenaar hjá Utrecht University í Hollandi, dr. Torkel Ekman, staðgengill deildarforseta og varaformaður stjórnar í Swedish University of Agricultural Sciences, Thomas Svensson, deildarstjóri svæðisdýralækna í stjórn land- búnaðarmála í Svíþjóð [Swedish Board of Agriculture], dr. Jenny Lundstrom, gestarannsóknarmað- ur hjá ReAct í Sviþjóð, prófessor Jorgen Schlundt hjá Nanyang Technological University, prófessor Frank Møller Aarestrup, yfirmaður rannsóknarteymis matvælastofn- unar Tækniháskóla Danmerkur, prófessor Anders Folkesson hjá Tækniháskóla Danmerkur DI, Hans-Petr Hutter, aðstoðarpró- fessor og aðstoðaryfirmaður Institute of Environmental Health, Medical University Vienna, Lance B. Price, yfirmaður Antibiotic Resistance Action Center við Milken Institute School of Public Health í George Washington University í Bandaríkjunum, Meredith Basey, yfirmaður Universities Allied for Essential Medicines North America í Bandaríkjunum, Shefali Sharma, stjórnandi Agricultural Commodities and Globalization Initiatives hjá Institute for Agriculture and Trade Policy í Bandaríkjunum, David Wallinga, fyrrum yfirmaður Natural Resources Defence Council í Bandaríkjunum, dr. Stuart B Levy, yfirmaður Center for Adaptation Genetics and Drug Resistance í Bandaríkjunum, Greg Filice, yfirmaður Infectious Disease Section - Veterans Affairs Medical Center í Bandaríkjunum, prófessor James R. Johnson hjá University of Minnesota í Bandaríkjuunum, dr. Gudrun Illmanova, fyrrum rannsóknarmaður í atferlisfræði hjá Ethology í Institute of Animal Science í Prague í Tékklandi, dr. Burn Centre við Teaching Hospital Kralovske Vinohrady í Prague í Tékklandi, Marek Špinka, aðstoðar- prófessor og yfirmaður í atferl- isfræði hjá Institute of Animal Science í Prague í Tékklandi, dr. Ivana Grossová hjá Prague Burn Centre við Teaching Hospital Kralovske Vinohrady í Prague í Tékklandi, dr. Miloš Kravciv hjá Medical House í Tékklandi og prófessor Peter Collignon hjá Australian National University. Fjöldi vísindamanna og sérfræðinga uggandi um framgang sýklalyfjaónæmis í Evrópu: Vilja bann við notkun sýklalyfja sem vaxtarhvetjandi efna í landbúnaði − Tveir þriðju sýklalyfjanotkunarinnar fara til landbúnaðar − Vilja fylgja frumkvæði bændasamtaka á Norðurlöndum Frá Bæjaralandi. Tveir þriðju hlutar af allri sýklalyfjanotkun í Evrópu fer til landbúnaðar. Um 90% allrar sýklalyfja- notkunar í landbúnaði í 26 af ríkjum Evrópusambandsins eru til að auka vaxtarhraða við húsdýraeldi. Það er gert til að reyna að bæta afkomu bændanna og lækka afurðaverð vegna kröfu verslunarfyrirtækjanna. Við innflutning frá slíkri framleiðslu þurfa íslenskir bændur að keppa, en þeir nota ekki sýklalyf í þessum tilgangi. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar telur að styrking raforku- flutningskerfis á Norð austur- landi með bættum raforku- flutningi milli Blöndu og Kárahnjúkavirkjunar sé for- gangsatriði fyrir landshlutann. Þá sé brýnt að ráðast verði í þá framkvæmd óháð því hvort og þá hvenær ráðist verði í fyrirhugaða Sprengisandslínu. Sveitarstjórn telur að Sprengisandslína sé fyrst og fremst ætluð til styrkingar á byggðalínunni og því sé um aðskildar framkvæmdir að ræða sem ekki séu háðar sameiginlegu umhverfismati. Þetta kemur fram í bókun sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar sem samþykkt var á fundi nýverið. Sex fulltrúar greiddu bókuninni atkvæði sitt, einn sat hjá. Fyrir fundinum lá erindi frá Skipulagsstofnun sem hefur til meðferðar tillögu fyr- irtækis að matsáætlun vegna Sprengisandslínu. Stofnunin hefur verið að fara yfir þær athugasemdir sem bárust við tillögunni. Í þeim athugasemd- um, sem eru samhljóða, auk annarra athugasemda, hefur verið vikið að mögulegu sameiginlegu umhverfismati línunnar og annarra framkvæmda sem eru fyrirhugaðar af hálfu Landsnets. /MÞÞ REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 www.VBL.is REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is HAUGSUGUDÆLUR Er haugsugudælan í lagi? Eigum til og getum útvegað varahluti í flestar gerðir haugsugudæla Eigum til afgreiðslu Jurop haugsugudælur Eigum einnig til gott úrval af haugsuguhlutum Fyrirtæki til sölu Til sölu eru rekstur og eignir Fatahreinsunar Húsavíkur ef viðunandi tilboð fæst. Fyrirtækið er í fullum rekstri og verkefnastaða mjög góð. Mögulegt er að kaupa eingöngu rekstur og tæki og gera leigusamning um húsnæðið. Fatahreinsun Húsavíkur er 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki sem hefur stækkað mikið undanfarin ár vegna vaxandi verkefna, m.a. tengd ferðaþjónustu. Gott tækifæri fyrir dugmikla einstaklinga eða fjölskyldu. Nánari upplýsingar veitir Sigurður á staðnum eða eftir samkomulagi. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið fatahreinsun@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.