Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016 Askurinn Yggdrasill stendur á Iðavöllum, sígrænn yfir Urðarbrunni þótt ausinn sé hvít- um auri. Af honum bíta hindir og verður ekki meint af. Hann er svo gamall að níu kyn- slóðir tröllkvenna, sem allra kvik- inda verða elstar, muna hann sem nýsprottið ungviði. Og hinn bogfimi Ullur í Ýdölum gerir sér skíði, boga og örvar úr greinum hans og er fyrir vikið með mestu köppum Ásheima. Tákn og skilningur á skáldskapnum Margir táknfræðingar sem gert hafa sér far um að lesa úr Eddukvæðunum hallast að því að askurinn Yggdrasill hafi alls ekki verið trjátegundin sem við almennt köllum ask. Heldur sé askur hér sem kenning fyrir tré almennt. Yggdrasill, heimstréð fjörgamla en síunga og sígræna, gálginn fyrir píslarvættishengingu Óðins, möndull viðburðanna og hlífiskjöldur allra athafna. Úr kvistum hans urðu þau til, Askur og Embla, sem æsirn- ir Óðinn, Hænir og Lóður blésu svo mannlífi í. Lim hans myndaði himinhvolfið og ræturnar héldu saman þeim örlagavef sem spannst á jarðarhvelinu. Og ef við heimfær- um allt þetta á eina trjátegund sem hægt er að skilgreina grasafræðilega kemur aðeins ýviðurinn til greina. Enda verður askur aldrei neitt sér- lega bosmamikið, langlíft eða mik- ilúðugt tré. Hvað þá iðagrænt árið um kring. Heitið „barraskur“ var eitthvað notað um ývið til forna. Það hefur breyst í „barrlind“ í norsku, dönsku og nokkrum sænskum mállýskum. Þá dregið af því að hægt var að nota trefjarnar innan úr berkinum í bönd líkt og lindibast. Tvær rúnir fornar Þrettánda rúnin, „iwaz“ eða „eeoh“, í engilsaxnesku fúþark-rúnunum er strik með stuttu skástriki að ofan til hægri og öðru slíku upp til vinstri. Hún táknar ývið og hljóðið mun hafa verið einhvers konar blásið i-hljóð í frumgermönsku, blending- ur af j-og-ð. Á norrænu varð það að „íð“ eða „ið“. Það heldur sér í sænsku. Þar heitir ýviður „id“ eða „idegran“. Og þetta forna heiti ývið- arins er einnig tengt mörgum staðar- og mannanöfnum. Fyrst og fremst „hittust æsir á Iðavöllum“ og Iðunn er fulltrúi eilífðar og endurnýjunar sem holdgervingur hans. Ívar er sá er sá sem skýtur með ýviðarboga og hefur ávallt sigur. Bæir eins og Ystad á Skáni og Isted sem áður var í Danmörku en tilheyrir nú Slésvík í Þýskalandi og er skrifað Idstedt upp á þýsku. Staðarnöfn tengd ýviði eru um alla Vestur-Evrópu en oft erfitt að greina þau vegna þess hve frumhljóðið er reikult í framburði og stafsetningu, það er nú ýmist táknað með y, ý, i, í eða ei eftir því hvaða tungumál á í hlut. Enska heitið er yew og þaðan mun vera komið íslenska heitið ýr, þótt eiginlega þýði orðið – og rúnin „ýr“ í yngra fúþark-rúnakerf- inu - bogi úr ýviði, ekki tréð sjálft sem tegund. Ég held mig við ývið þess vegna, en sætti mig samt við ýr-heitið sem endingu á tegunda- heitum þegar ýviðir eru skilgreindir með íslenskum nöfnum. Reyndar hafa birst á íslensku heiti eins og „barrlind“ og „bogviður“ þegar ýviðir eru til umfjöllunar. Hvorugt þessara heita eru viðunandi sé litið til menningarsögunnar. Átta tegundir Ýviður, Taxus baccata L., er ein af átta tegundum ýviða sem dreifð- ar eru um þau svæði Norðurhvels þar sem laufviðir og barrtré vaxa hvað um annað, sunnan hinna eig- inlegu barrskóga. Fjórar tegundir eru í Norður-Ameríku og þrjár í Austur-Asíu. Ættkvíslin er forn og tilheyrir frumættbálki barrviða. Tegundirnar æxlast auðveldlega hver með annarri og eignast fullburða og frjóa einstaklinga sín á milli. Þannig að sumir halda því fram að tegund- in sé í raun og veru aðeins ein en hafi aðskilist og einangrast vegna ísalda og landreks fyrir hundruðum árþúsunda. Í Evrópu er aðeins ein tegund, sá sem við köllum bara ývið. Hann er að finna frá Kaspíahafi, vestur um Kákasus og Evrópu alla leið til Skotlands og Írlands. Til norðurs nær hann til suður- hluta Skandinavíuskagans og yfir Kirjálabotn til syðstu byggða Finnlands síðan um Rússland, Hvítrússland og Úkraínu austur til Úralfjalla. Til Bretlandseyja barst hann meðan England og Írland voru landföst meginlandinu sem hæstu toppar á geysivíðfeðmu en láglendu svæði sem náði yfir þar sem nú er Skánn, Danmörk, Norðursjór og nokkuð vestur fyrir Írland. Ýviðurinn evrópski hefur víð- feðmasta útbreiðslusvæði allra ýviðartegundanna. Aðrar tegundir eru staðbundnari og á afmörkuðum svæðum og yfirleitt í fremur fáliðuð- um stóðum á hverjum stað. En þrátt fyrir að útbreiðsla evrópuýviðarins sé þetta dreifð, á hann alls staðar í vök að verjast og til eru skrár um einstaklingsfjölda ýviða í flestum Evrópulöndum. Allt sem allt stend- ur varla eftir nema um ein milljón uppvaxinna ýviða í Evrópu. Alls staðar er hann undir eftirliti og víða alfriðaður. Nokkuð er unnið í því að endurheimta ýviðinn með nýplöntun. Með hægðinni hefst það Ýviður vex hægt, rétt tosast áfram og bætir varla við sig nema sem nemur einni til tveim spönnum á ári. Og hann hefur tilhneigingu að vaxa á alla kanta en verður aldrei að háum og reisulegum trjám. Um leið og trén hafa náð tólf til fimmtán metra hæð hætta þau að bæta við öðru en því sem kalla má eðlilegt viðhald í hæðarvöxtinn en leggja þeim mun meiri áherslu á að senda upp nýja boli frá rótarhálsi og mynda þétt og þykk bolaknippi sem gera trén mjög breið. Þau sýnast einstofna til að sjá en þegar að er gáð vaxa bolirnir saman og vefjast hver um annan. Því myndar ýviður ekki eigin- legan kjarnavið sem auðvelt er að aldursgreina. Og ýviðartré hafa því tilhneigingu í að verða hol að innan með tímanum. Því reiknuðu menn aldurinn út með því að mæla umfang bolsins eftir ákveðinni formúlu. Á norðurmörkum ýviðarins myndar hann helst lágar beðjur í skjóli stærri trjáa. Sjaldgæft er að sjá hann sem reisulegt tré. Þó eru samt til nokkrir stórir ýviðir sem hefur verið plantað við kirkjur og herragarða í Danmörku og á Skáni. Við kirkjuna í Österslöv rétt norðan við Kristianstad standa nokkrir státlegir ýviðir – um 10 metra háir. Talið er að þeir hafi verið gróð- ursettir þar á árunum 1570–1600. Þá var Skánn danskt landsvæði og presturinn sem þjónustaði söfnuðinn var danskur og trén líklega af dönsk- um uppruna. Talið er að þetta séu elstu ýviðir Svíþjóðar, en þar vaxa ýviðir strjált í gömlum álm- og beyki- skógum. En alls staðar sem lágvaxnir runnar. Öldungur hefur kynjaskipti í ellinni Aldursgreining á gömlum ýviðar- trjám er mikið sport og hefur verið iðkuð um margar aldir á Bretlandseyjum og meginlandi Evrópu. Meginlandstrén hafa mörg bókfærða þrettán til fimmt- án alda sögu. En í byggðalögum Bretlandseyja eru nú að mælast ýviðir sem eru að minnsta kosti þrjú þúsund ára gamlir. Lengi vel var ýviður sem stendur í bænum Fortingall við Perthfjörð í Skotlandi talinn sá elsti með sínar tvö til þrjú- þúsund ára gömlu rætur. Hann var upphaflega karlkynstré, ýviðir eru sérbýlistré, en á síðustu árum hefur hann haft kynskipti og ber nú frjó aldin sem hefur verið safnað og sáð af skoskum skógræktarmönnum. Þannig að það er víst aldrei of seint að fá leiðréttingu á sínum málum, þótt kynuslinn hafi blundað í trénu í tuttugu aldir og kannski vel það. En líklega sannar þetta bara að aldnir geti ávallt tileinkað sér tækifæri og tíðaranda yngstu kynslóðanna. Elsta tré Evrópu? En nýlega var Fartingall-ýviðnum velt úr sessi aldursforsetans, því að í afskekktu þorpi suður í Wales, St.Cynog, er nýlega búið að mæla og skilgreina ývið sem talinn er vera að minnsta kosti 5000 ára gamall samkvæmt C14 aðferðinni. Og þá er átt við þann hluta hans sem ofan jarðar stendur. En í rótarleif- um undir innsta kjarna hans mælist aldurinn vera 9000 ár. Það fæst hins vegar ekki staðfest sem aldur St.Cynog-ýviðarins vegna þess að ofanvöxt við þær leifar var ekki að finna. En reynist þetta rétt hefur St.Cynog-ýviðurinn verið búinn að skjóta rótum þarna nokkrum öldum áður en England aftengdist meginlandinu. Ýviðirnir hér að ofan eru báðir á kirkjustöðum. Í hinum ævagömlu launhelgum Drúíða á Bretlandseyjum var – ekki síður en í ásatrú – mikil helgi á ýviðum. Blót voru haldin undir öldnum ýviðartrjám. Þegar kristinn siður komst á voru kirkjur byggðar á gömlu blótsstöðunum við ýviðartrén svo að víða á Bretlandseyjum standa ævagömul ýviðartré við kirkjur frá upphafi kristnihalds. Lög og regla En ekki eru samt öll hin öldnu og helgu ýviðartré kirkjum tengd leng- ur því að í aflögðu nunnuklaustri af benediktínareglunni sem stóð á hólmanum Ankerwycke og umlukinn er Thamesánni á flesta vegu, ekki ýkja langt frá Windsorkastala norð- vestur af Lundúnum, stendur aldinn ýviður með átta metra bolumfang og er talinn vera einhversstaðar á milli 1400-2500 ára gamall. Þetta tré er eiginlega Lögberg breska heims- veldisins, því undir því var breska stjórnarskráin, Magna Carta, samin og undirrituð hinn 15. júní árið 1215. Þetta er allt vottað og skjalfest. Sagan segir líka að undir þessum ýviði hafi Hinrik áttundi hitt Önnu Boleyn á árunum kring um 1530, en samt hefur ekkert um það verið sannreynt og skjalfest þagmælsk- unnar vegna. Með aðgát skal farið Ýviður kemur mikið við sögu garðyrkjunnar. Vegna endurnýjun- arkraftsins sem í honum býr, þolir hann allra trjáa best stífa klippingu og tuktun í alls konar form og fígúrur. Víða eru stór og mikilfengleg völ- undarhús, skúlptúrar og skrítnar skepnur gerð úr ýviði. Í ræktun er ýviðurinn næsta nægjusamur með jarðveg og áburðargjöf ef hann fær bara nægan raka. Hann getur vaxið á berri klöpp ef þar finnast smugur sem vatn safn- ast í. Rótarkerfið er fremur grunnt og fer víða. Græðlingafjölgun reyn- ist fagmönnum auðveld. Á Íslandi hefur verið reynt að rækta ýviði. Best hefur þá gengið með japansýr, Taxus cuspidata, eða blendinga hans við evrópu-ýviðinn. Þeir blendingar kallast garðaýr á íslensku og heita Taxus × media á fræðimálinu. En plönturnar þurfa gott skjól og vörn gegn þurrafrosti og umhleypingum á veturna og þá jafnframt skjól gegn síðvetrarsól. Yrki sem má heita að séu nokkuð harðger hér eru karlkynsklónninn ‘Hatfieldii’ og kvenkynsklónninn ‘Hicksii’, báðir þéttir og sívalir í vaxtarlaginu. Allir ýviðir eru mjög eitrað- ir, barr, börkur og ber. Berin eru að vísu fuglum skaðlaus, en ekki þarf nema eitt fræ í mannsmaga til að af hljótist alvarlegt slys. Og nýleg dæmi eru um það erlendis frá að fólk hafi verið að drekka te af barrinu sér til heilsubótar – með skelfilegum afleiðingum. En dádýr eru einhverra hluta vegna eina skepna jarðarinnar sem ónæm er fyrir eituráhrifum ýviðarins. Fróðleiksbásinn Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur Ýviður – tré lífs og dauða, eilífðarinnar, upprisu og endurnýjunar Fortingall-ýviðurinn – Skipti um kyn á gamals aldri. Ankerwycke-ýviðurinn – Lögberg breska heimsveldisins. Ýviður – Taxus baccata, ársproti, blóm og ber.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.