Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Askurinn Yggdrasill stendur
á Iðavöllum, sígrænn yfir
Urðarbrunni þótt ausinn sé hvít-
um auri. Af honum bíta hindir og
verður ekki meint af.
Hann er svo gamall að níu kyn-
slóðir tröllkvenna, sem allra kvik-
inda verða elstar, muna hann sem
nýsprottið ungviði. Og hinn bogfimi
Ullur í Ýdölum gerir sér skíði, boga
og örvar úr greinum hans og er fyrir
vikið með mestu köppum Ásheima.
Tákn og skilningur á
skáldskapnum
Margir táknfræðingar sem gert hafa
sér far um að lesa úr Eddukvæðunum
hallast að því að askurinn Yggdrasill
hafi alls ekki verið trjátegundin sem
við almennt köllum ask. Heldur sé
askur hér sem kenning fyrir tré
almennt. Yggdrasill, heimstréð
fjörgamla en síunga og sígræna,
gálginn fyrir píslarvættishengingu
Óðins, möndull viðburðanna og
hlífiskjöldur allra athafna.
Úr kvistum hans urðu þau
til, Askur og Embla, sem æsirn-
ir Óðinn, Hænir og Lóður blésu
svo mannlífi í. Lim hans myndaði
himinhvolfið og ræturnar héldu
saman þeim örlagavef sem spannst
á jarðarhvelinu. Og ef við heimfær-
um allt þetta á eina trjátegund sem
hægt er að skilgreina grasafræðilega
kemur aðeins ýviðurinn til greina.
Enda verður askur aldrei neitt sér-
lega bosmamikið, langlíft eða mik-
ilúðugt tré. Hvað þá iðagrænt árið
um kring.
Heitið „barraskur“ var eitthvað
notað um ývið til forna. Það hefur
breyst í „barrlind“ í norsku, dönsku
og nokkrum sænskum mállýskum.
Þá dregið af því að hægt var að nota
trefjarnar innan úr berkinum í bönd
líkt og lindibast.
Tvær rúnir fornar
Þrettánda rúnin, „iwaz“ eða „eeoh“,
í engilsaxnesku fúþark-rúnunum er
strik með stuttu skástriki að ofan til
hægri og öðru slíku upp til vinstri.
Hún táknar ývið og hljóðið mun
hafa verið einhvers konar blásið
i-hljóð í frumgermönsku, blending-
ur af j-og-ð. Á norrænu varð það
að „íð“ eða „ið“. Það heldur sér í
sænsku. Þar heitir ýviður „id“ eða
„idegran“. Og þetta forna heiti ývið-
arins er einnig tengt mörgum staðar-
og mannanöfnum. Fyrst og fremst
„hittust æsir á Iðavöllum“ og Iðunn
er fulltrúi eilífðar og endurnýjunar
sem holdgervingur hans. Ívar er sá
er sá sem skýtur með ýviðarboga
og hefur ávallt sigur.
Bæir eins og Ystad á Skáni og
Isted sem áður var í Danmörku en
tilheyrir nú Slésvík í Þýskalandi
og er skrifað Idstedt upp á þýsku.
Staðarnöfn tengd ýviði eru um alla
Vestur-Evrópu en oft erfitt að greina
þau vegna þess hve frumhljóðið er
reikult í framburði og stafsetningu,
það er nú ýmist táknað með y, ý, i,
í eða ei eftir því hvaða tungumál
á í hlut.
Enska heitið er yew og þaðan
mun vera komið íslenska heitið
ýr, þótt eiginlega þýði orðið – og
rúnin „ýr“ í yngra fúþark-rúnakerf-
inu - bogi úr ýviði, ekki tréð sjálft
sem tegund. Ég held mig við ývið
þess vegna, en sætti mig samt við
ýr-heitið sem endingu á tegunda-
heitum þegar ýviðir eru skilgreindir
með íslenskum nöfnum. Reyndar
hafa birst á íslensku heiti eins og
„barrlind“ og „bogviður“ þegar
ýviðir eru til umfjöllunar. Hvorugt
þessara heita eru viðunandi sé litið
til menningarsögunnar.
Átta tegundir
Ýviður, Taxus baccata L., er ein af
átta tegundum ýviða sem dreifð-
ar eru um þau svæði Norðurhvels
þar sem laufviðir og barrtré vaxa
hvað um annað, sunnan hinna eig-
inlegu barrskóga. Fjórar tegundir
eru í Norður-Ameríku og þrjár í
Austur-Asíu.
Ættkvíslin er forn og tilheyrir
frumættbálki barrviða. Tegundirnar
æxlast auðveldlega hver með
annarri og eignast fullburða og frjóa
einstaklinga sín á milli. Þannig að
sumir halda því fram að tegund-
in sé í raun og veru aðeins ein en
hafi aðskilist og einangrast vegna
ísalda og landreks fyrir hundruðum
árþúsunda.
Í Evrópu er aðeins ein tegund,
sá sem við köllum bara ývið.
Hann er að finna frá Kaspíahafi,
vestur um Kákasus og Evrópu
alla leið til Skotlands og Írlands.
Til norðurs nær hann til suður-
hluta Skandinavíuskagans og
yfir Kirjálabotn til syðstu byggða
Finnlands síðan um Rússland,
Hvítrússland og Úkraínu austur til
Úralfjalla. Til Bretlandseyja barst
hann meðan England og Írland voru
landföst meginlandinu sem hæstu
toppar á geysivíðfeðmu en láglendu
svæði sem náði yfir þar sem nú er
Skánn, Danmörk, Norðursjór og
nokkuð vestur fyrir Írland.
Ýviðurinn evrópski hefur víð-
feðmasta útbreiðslusvæði allra
ýviðartegundanna. Aðrar tegundir
eru staðbundnari og á afmörkuðum
svæðum og yfirleitt í fremur fáliðuð-
um stóðum á hverjum stað. En þrátt
fyrir að útbreiðsla evrópuýviðarins
sé þetta dreifð, á hann alls staðar í
vök að verjast og til eru skrár um
einstaklingsfjölda ýviða í flestum
Evrópulöndum. Allt sem allt stend-
ur varla eftir nema um ein milljón
uppvaxinna ýviða í Evrópu. Alls
staðar er hann undir eftirliti og víða
alfriðaður. Nokkuð er unnið í því að
endurheimta ýviðinn með nýplöntun.
Með hægðinni hefst það
Ýviður vex hægt, rétt tosast áfram og
bætir varla við sig nema sem nemur
einni til tveim spönnum á ári. Og
hann hefur tilhneigingu að vaxa á
alla kanta en verður aldrei að háum
og reisulegum trjám. Um leið og
trén hafa náð tólf til fimmtán metra
hæð hætta þau að bæta við öðru en
því sem kalla má eðlilegt viðhald í
hæðarvöxtinn en leggja þeim mun
meiri áherslu á að senda upp nýja
boli frá rótarhálsi og mynda þétt
og þykk bolaknippi sem gera trén
mjög breið. Þau sýnast einstofna til
að sjá en þegar að er gáð vaxa bolirnir
saman og vefjast hver um annan.
Því myndar ýviður ekki eigin-
legan kjarnavið sem auðvelt er að
aldursgreina. Og ýviðartré hafa því
tilhneigingu í að verða hol að innan
með tímanum. Því reiknuðu menn
aldurinn út með því að mæla umfang
bolsins eftir ákveðinni formúlu. Á
norðurmörkum ýviðarins myndar
hann helst lágar beðjur í skjóli stærri
trjáa.
Sjaldgæft er að sjá hann sem
reisulegt tré. Þó eru samt til nokkrir
stórir ýviðir sem hefur verið plantað
við kirkjur og herragarða í Danmörku
og á Skáni. Við kirkjuna í Österslöv
rétt norðan við Kristianstad standa
nokkrir státlegir ýviðir – um 10 metra
háir. Talið er að þeir hafi verið gróð-
ursettir þar á árunum 1570–1600.
Þá var Skánn danskt landsvæði og
presturinn sem þjónustaði söfnuðinn
var danskur og trén líklega af dönsk-
um uppruna. Talið er að þetta séu
elstu ýviðir Svíþjóðar, en þar vaxa
ýviðir strjált í gömlum álm- og beyki-
skógum. En alls staðar sem lágvaxnir
runnar.
Öldungur hefur kynjaskipti í
ellinni
Aldursgreining á gömlum ýviðar-
trjám er mikið sport og hefur
verið iðkuð um margar aldir á
Bretlandseyjum og meginlandi
Evrópu. Meginlandstrén hafa
mörg bókfærða þrettán til fimmt-
án alda sögu. En í byggðalögum
Bretlandseyja eru nú að mælast
ýviðir sem eru að minnsta kosti
þrjú þúsund ára gamlir. Lengi vel
var ýviður sem stendur í bænum
Fortingall við Perthfjörð í Skotlandi
talinn sá elsti með sínar tvö til þrjú-
þúsund ára gömlu rætur. Hann var
upphaflega karlkynstré, ýviðir eru
sérbýlistré, en á síðustu árum hefur
hann haft kynskipti og ber nú frjó
aldin sem hefur verið safnað og sáð
af skoskum skógræktarmönnum.
Þannig að það er víst aldrei of seint
að fá leiðréttingu á sínum málum,
þótt kynuslinn hafi blundað í trénu í
tuttugu aldir og kannski vel það. En
líklega sannar þetta bara að aldnir
geti ávallt tileinkað sér tækifæri og
tíðaranda yngstu kynslóðanna.
Elsta tré Evrópu?
En nýlega var Fartingall-ýviðnum
velt úr sessi aldursforsetans, því
að í afskekktu þorpi suður í Wales,
St.Cynog, er nýlega búið að mæla
og skilgreina ývið sem talinn er vera
að minnsta kosti 5000 ára gamall
samkvæmt C14 aðferðinni. Og
þá er átt við þann hluta hans sem
ofan jarðar stendur. En í rótarleif-
um undir innsta kjarna hans mælist
aldurinn vera 9000 ár. Það fæst
hins vegar ekki staðfest sem aldur
St.Cynog-ýviðarins vegna þess að
ofanvöxt við þær leifar var ekki að
finna. En reynist þetta rétt hefur
St.Cynog-ýviðurinn verið búinn
að skjóta rótum þarna nokkrum
öldum áður en England aftengdist
meginlandinu.
Ýviðirnir hér að ofan eru báðir
á kirkjustöðum. Í hinum ævagömlu
launhelgum Drúíða á Bretlandseyjum
var – ekki síður en í ásatrú – mikil
helgi á ýviðum. Blót voru haldin undir
öldnum ýviðartrjám. Þegar kristinn
siður komst á voru kirkjur byggðar á
gömlu blótsstöðunum við ýviðartrén
svo að víða á Bretlandseyjum standa
ævagömul ýviðartré við kirkjur frá
upphafi kristnihalds.
Lög og regla
En ekki eru samt öll hin öldnu og
helgu ýviðartré kirkjum tengd leng-
ur því að í aflögðu nunnuklaustri
af benediktínareglunni sem stóð á
hólmanum Ankerwycke og umlukinn
er Thamesánni á flesta vegu, ekki
ýkja langt frá Windsorkastala norð-
vestur af Lundúnum, stendur aldinn
ýviður með átta metra bolumfang og
er talinn vera einhversstaðar á milli
1400-2500 ára gamall. Þetta tré er
eiginlega Lögberg breska heims-
veldisins, því undir því var breska
stjórnarskráin, Magna Carta, samin
og undirrituð hinn 15. júní árið 1215.
Þetta er allt vottað og skjalfest.
Sagan segir líka að undir þessum
ýviði hafi Hinrik áttundi hitt Önnu
Boleyn á árunum kring um 1530,
en samt hefur ekkert um það verið
sannreynt og skjalfest þagmælsk-
unnar vegna.
Með aðgát skal farið
Ýviður kemur mikið við sögu
garðyrkjunnar. Vegna endurnýjun-
arkraftsins sem í honum býr, þolir
hann allra trjáa best stífa klippingu
og tuktun í alls konar form og fígúrur.
Víða eru stór og mikilfengleg völ-
undarhús, skúlptúrar og skrítnar
skepnur gerð úr ýviði.
Í ræktun er ýviðurinn næsta
nægjusamur með jarðveg og
áburðargjöf ef hann fær bara nægan
raka. Hann getur vaxið á berri klöpp
ef þar finnast smugur sem vatn safn-
ast í. Rótarkerfið er fremur grunnt
og fer víða. Græðlingafjölgun reyn-
ist fagmönnum auðveld.
Á Íslandi hefur verið reynt að
rækta ýviði. Best hefur þá gengið
með japansýr, Taxus cuspidata, eða
blendinga hans við evrópu-ýviðinn.
Þeir blendingar kallast garðaýr á
íslensku og heita Taxus × media á
fræðimálinu. En plönturnar þurfa
gott skjól og vörn gegn þurrafrosti
og umhleypingum á veturna og þá
jafnframt skjól gegn síðvetrarsól.
Yrki sem má heita að séu nokkuð
harðger hér eru karlkynsklónninn
‘Hatfieldii’ og kvenkynsklónninn
‘Hicksii’, báðir þéttir og sívalir í
vaxtarlaginu.
Allir ýviðir eru mjög eitrað-
ir, barr, börkur og ber. Berin eru
að vísu fuglum skaðlaus, en ekki
þarf nema eitt fræ í mannsmaga
til að af hljótist alvarlegt slys. Og
nýleg dæmi eru um það erlendis
frá að fólk hafi verið að drekka
te af barrinu sér til heilsubótar –
með skelfilegum afleiðingum. En
dádýr eru einhverra hluta vegna eina
skepna jarðarinnar sem ónæm er fyrir
eituráhrifum ýviðarins.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Ýviður – tré lífs og dauða, eilífðarinnar,
upprisu og endurnýjunar
Fortingall-ýviðurinn – Skipti um kyn á gamals aldri.
Ankerwycke-ýviðurinn – Lögberg breska heimsveldisins. Ýviður – Taxus baccata, ársproti,
blóm og ber.