Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016 Nú liggur fyrir Samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar. Sem okkur sauðfjárbændum gefst kostur á að samþykkja eða synja í atkvæðagreiðslu. Fljótt á litið virð- ist samningurinn vera í einhverju samræmi við samningsmarkmið sem sett voru á aðalfundi LS í apríl 2015, en þegar nánar er að gætt er reyndin talsvert önnur. Í nóvember gafst bændum kostur á að fylgjast aðeins með gerð þessa nýja samnings og þá var vissulega reynt að anda í drukkinn. Samningamönnum okkar var gerð grein fyrir því að aldrei hefði staðið til að leggja niður greiðslumarkið eða að kollvarpa núverandi kerfi. En nú á samt að gera það. Algert afnám framleiðslustjórnunar Megin virði núverandi beingreiðslu- kerfis liggur í þeirri framleiðslu- stjórnun sem í því felst. Afnám beingreiðslna jafngildir afnámi framleiðslustjórnunar. Með stuðn- ingskerfi nýja samningsins munu bændur keppa beint hver við annan um framleiðslustyrkina, með því að framleiða sem mest. Þannig samkeppni mun óhjákvæmilega leiða af sér aukna framleiðslu. Og það virðist vera helsta gulrótin í samningnum; tækifærið til að fram- leiða meira. Það vantar ekki kindakjöt á Íslandi. Síðast þegar ég vissi vantaði heldur ekki kjöt á erlendum mörk- uðum. Við erum að flytja út kjöt og getum hvenær sem er aukið við framleiðsluna ef eitthvað verður upp úr útflutningi að hafa. Það verður ekkert vandamál. Beingreiðslur falla til afurða sem seldar eru innanlands Enginn íslenskur skattgreiðandi kærir sig um að niðurgreiða framleiðslu sem flutt er úr landi. Með afnámi beingreiðslna mun öll framleiðsla hljóta sömu styrkina, hvort sem þörf er fyrir hana innanlands eða ekki. Útflutningur á vörum framleiddum í stuðningskerfi nýja samningsins verður ríkisstyrktur, nákvæmlega eins og vörur á innlendan markað. Enginn íslenskur bóndi kærir sig um að svara fyrir ríkisstyrktan útflutning árið 2026. Sauðfjárbændur gáfust endanlega upp á því áður en landið fór að taka þátt í söngvakeppninni, sællar minningar, fyrir 30 árum. Allir gildandi viðskiptasamn- ingar við útlönd gera ráð fyrir að landbúnaðarvörur til útflutnings séu ekki ríkisstyrktar svo nokkru nemi og ég hreinlega skil ekki hvernig þessi nýi samningur á að tryggja far- sælan og gróðavænlegan útflutning landbúnaðarvara um langa framtíð. Samkvæmt mínu viti er það í besta falli óskhyggja, í versta falli blekk- ing. Sá samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar sem nú er lagður fram, mun óhjákvæmilega leiða af sér aukna framleiðslu, með tilheyr- andi fjölgun sauðfjár. Það vantar ekki kindur á Íslandi Margir Íslendingar vilja nota land til alls annars en sauðfjárræktar og sumir vilja hvergi sjá kind í námunda við sig eða sitt. Fækkun sauðfjár í landinu og gróðurframvinda undan- farinna áratuga hefur aukið okkur sauðfjárbændum von og bjartsýni um að við gætum búið í friði við samborgarana eitthvað lengur. Með þessum nýja samningi virðist það gert útilokað. Offramleiðsla og ofbeit eru sviðsmyndir sem vert er að fella í atkvæðagreiðslu. Fram undan er væntanlega fundaherferð Sauðfjársamningurinn er vandlega veggfóðraður með loforðum sem sjálfsagt verða kynnt fjálglega sem kostir samningsins. Okkur verður sagt að nýliðum verði gert auðvelt að byrja að búa. Það vantar ekki fleiri sauðfjárbænd- ur. Því miður. Sauðfjárbændur vantar meiri tekjur og þær fást ekki með því að fleiri bændur framleiði meira. Offramleiðsla mun valda verðfalli afurða á öllum stigum verðmyndunar og allir munu tapa á því. Byggðirnar í landinu eru í nógu mikilli hættu þó að ekki verði vegið að sauðfjárrækt- inni með algerum afkomubresti. Okkur verður sagt að með afnámi kvótakerfis munu peningar hætta að flæða út úr greininni með kvótakaupum. En hvert hafa þeir peningar farið? Þeir hafa farið til sauðfjárbænda. Það ætlast enginn til að sextug hjón í Kópavogi gefi ungu pari íbúð, sjoppu eða innflutn- ingseinkaleyfi. En atvinnutækifæri til sveita eiga að vera gefins. Okkur verður sagt af stórum við- skiptatækifærum. Sannleikurinn er að við þurfum ekki að afsala okkur einu eða neinu til að nýta okkur þau, ef þau eru fyrir hendi á annað borð. Okkur verður sagt af rausnarleg- um býlisstuðningi, gerðum til að styðja fjölskyldubúið. Hann verður 5% af heildarstuðningi í lok samn- ingstímans. Núll- til þrjúhundruðog tuttugu þúsund kall per kot á ári. Sleikipinni. Okkur verður sagt að við verðum að koma fram sem ein heild gagnvart ríkisvaldinu og samþykkja samn- inginn, annars muni annað verra fylgja (eins og sagt var um Icesave). Okkur verður sagt að tollverndin verði tekin af okkur ef við verðum ekki þæg. Okkur verður sagt að endur- skoðunarákvæði samningsins muni vernda okkur fyrir allri óheillaþró- un. Mín skoðun er sú að við þurf- um ekki að láta narra okkur inn í þennan samning. Í upphafi skal endirinn skoða og afleiðingarnar geta verið hverjum manni ljósar nú þegar. Það þarf að semja upp á nýtt og semja öðruvísi. Hér er verið að breyta breytinganna vegna og, eins og stundum áður, fyrir þá sem hafa veðjað hátt og hafa lítið til að leggja undir annað en afkomu annarra. Óvissa framtíð og ekki sérlega bjarta er sauðfjárbændum ætlað að samþykkja. Því þeir eru slíkar gungur að þeir munu samþykkja hvað sem er. Kæru félagar. Við verðum að fella þennan samning. Við getum ekki látið þetta yfir okkur ganga og við þurfum þess heldur ekki. Við höfum atkvæðisrétt og segjum nei. Sigríður Jónsdóttir, sauðfjárbóndi Arnarholti. Lesendabás Sauðfjárbændur samþykkja hvað sem er Sigríður Jónsdóttir sauðfjárbóndi, Arnarholti. Myndir / HKr. Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í garðyrkju Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um framlög til rannsókna- eða tilraunaverkefna vegna ársins 2016 samkvæmt 5. gr. í samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, frá 12. mars 2002, með síðari breytingum. Framleiðnisjóður annast vörslu umrædda fjármuna, auglýsir eftir umsóknum og sér um greiðslu framlaga. Styrkir vegna rannsókna/tilrauna geta numið allt af 50% heildarkostnaði við rannsóknina/tilraunina. Einungis er veitt framlög til rannsókna eða tilrauna sem nýtast íslenskri grænmetisframleiðslu. Umsóknafrestur er til 1. apríl n.k Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að finna Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: umsókn um þróunarfé. Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; thorhildur@fl.is Framleiðnisjóður landbúnaðarins Hvanneyri – 311 Borgarnes Sími 430-4300 IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is IÐNAÐARHURÐIR BÍLSKÚRSHURÐIR • Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning. • Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli. • Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum. • Hágæða hráefni. • Þolir íslenskt veðurfar. • Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi. • Stuttur afgreiðslutími.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.