Bændablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Nú liggur fyrir Samningur um
starfsskilyrði sauðfjárræktar.
Sem okkur sauðfjárbændum gefst
kostur á að samþykkja eða synja í
atkvæðagreiðslu. Fljótt á litið virð-
ist samningurinn vera í einhverju
samræmi við samningsmarkmið
sem sett voru á aðalfundi LS í
apríl 2015, en þegar nánar er að
gætt er reyndin talsvert önnur.
Í nóvember gafst bændum
kostur á að fylgjast aðeins með
gerð þessa nýja samnings og þá var
vissulega reynt að anda í drukkinn.
Samningamönnum okkar var gerð
grein fyrir því að aldrei hefði staðið
til að leggja niður greiðslumarkið
eða að kollvarpa núverandi kerfi.
En nú á samt að gera það.
Algert afnám
framleiðslustjórnunar
Megin virði núverandi beingreiðslu-
kerfis liggur í þeirri framleiðslu-
stjórnun sem í því felst. Afnám
beingreiðslna jafngildir afnámi
framleiðslustjórnunar. Með stuðn-
ingskerfi nýja samningsins munu
bændur keppa beint hver við annan
um framleiðslustyrkina, með því
að framleiða sem mest. Þannig
samkeppni mun óhjákvæmilega
leiða af sér aukna framleiðslu. Og
það virðist vera helsta gulrótin í
samningnum; tækifærið til að fram-
leiða meira.
Það vantar ekki kindakjöt á
Íslandi. Síðast þegar ég vissi vantaði
heldur ekki kjöt á erlendum mörk-
uðum. Við erum að flytja út kjöt
og getum hvenær sem er aukið við
framleiðsluna ef eitthvað verður upp
úr útflutningi að hafa. Það verður
ekkert vandamál.
Beingreiðslur falla til afurða sem
seldar eru innanlands
Enginn íslenskur skattgreiðandi kærir
sig um að niðurgreiða framleiðslu
sem flutt er úr landi. Með afnámi
beingreiðslna mun öll framleiðsla
hljóta sömu styrkina, hvort sem þörf
er fyrir hana innanlands eða ekki.
Útflutningur á vörum framleiddum
í stuðningskerfi nýja samningsins
verður ríkisstyrktur, nákvæmlega
eins og vörur á innlendan markað.
Enginn íslenskur bóndi kærir sig um
að svara fyrir ríkisstyrktan útflutning
árið 2026. Sauðfjárbændur gáfust
endanlega upp á því áður en landið
fór að taka þátt í söngvakeppninni,
sællar minningar, fyrir 30 árum.
Allir gildandi viðskiptasamn-
ingar við útlönd gera ráð fyrir að
landbúnaðarvörur til útflutnings séu
ekki ríkisstyrktar svo nokkru nemi
og ég hreinlega skil ekki hvernig
þessi nýi samningur á að tryggja far-
sælan og gróðavænlegan útflutning
landbúnaðarvara um langa framtíð.
Samkvæmt mínu viti er það í besta
falli óskhyggja, í versta falli blekk-
ing.
Sá samningur um starfsskilyrði
sauðfjárræktar sem nú er lagður
fram, mun óhjákvæmilega leiða af
sér aukna framleiðslu, með tilheyr-
andi fjölgun sauðfjár.
Það vantar ekki kindur á Íslandi
Margir Íslendingar vilja nota land
til alls annars en sauðfjárræktar og
sumir vilja hvergi sjá kind í námunda
við sig eða sitt. Fækkun sauðfjár í
landinu og gróðurframvinda undan-
farinna áratuga hefur aukið okkur
sauðfjárbændum von og bjartsýni
um að við gætum búið í friði við
samborgarana eitthvað lengur. Með
þessum nýja samningi virðist það
gert útilokað.
Offramleiðsla og ofbeit eru
sviðsmyndir sem vert er að fella í
atkvæðagreiðslu.
Fram undan er væntanlega
fundaherferð
Sauðfjársamningurinn er vandlega
veggfóðraður með loforðum sem
sjálfsagt verða kynnt fjálglega sem
kostir samningsins.
Okkur verður sagt að nýliðum
verði gert auðvelt að byrja að búa.
Það vantar ekki fleiri sauðfjárbænd-
ur. Því miður. Sauðfjárbændur vantar
meiri tekjur og þær fást ekki með
því að fleiri bændur framleiði meira.
Offramleiðsla mun valda verðfalli
afurða á öllum stigum verðmyndunar
og allir munu tapa á því. Byggðirnar
í landinu eru í nógu mikilli hættu þó
að ekki verði vegið að sauðfjárrækt-
inni með algerum afkomubresti.
Okkur verður sagt að með
afnámi kvótakerfis munu peningar
hætta að flæða út úr greininni með
kvótakaupum. En hvert hafa þeir
peningar farið? Þeir hafa farið til
sauðfjárbænda. Það ætlast enginn
til að sextug hjón í Kópavogi gefi
ungu pari íbúð, sjoppu eða innflutn-
ingseinkaleyfi. En atvinnutækifæri
til sveita eiga að vera gefins.
Okkur verður sagt af stórum við-
skiptatækifærum. Sannleikurinn er
að við þurfum ekki að afsala okkur
einu eða neinu til að nýta okkur þau,
ef þau eru fyrir hendi á annað borð.
Okkur verður sagt af rausnarleg-
um býlisstuðningi, gerðum til að
styðja fjölskyldubúið. Hann verður
5% af heildarstuðningi í lok samn-
ingstímans. Núll- til þrjúhundruðog
tuttugu þúsund kall per kot á ári.
Sleikipinni.
Okkur verður sagt að við verðum
að koma fram sem ein heild gagnvart
ríkisvaldinu og samþykkja samn-
inginn, annars muni annað verra
fylgja (eins og sagt var um Icesave).
Okkur verður sagt að tollverndin
verði tekin af okkur ef við verðum
ekki þæg.
Okkur verður sagt að endur-
skoðunarákvæði samningsins muni
vernda okkur fyrir allri óheillaþró-
un. Mín skoðun er sú að við þurf-
um ekki að láta narra okkur inn
í þennan samning. Í upphafi skal
endirinn skoða og afleiðingarnar
geta verið hverjum manni ljósar
nú þegar. Það þarf að semja upp
á nýtt og semja öðruvísi. Hér er
verið að breyta breytinganna vegna
og, eins og stundum áður, fyrir þá
sem hafa veðjað hátt og hafa lítið
til að leggja undir annað en afkomu
annarra.
Óvissa framtíð og ekki sérlega
bjarta er sauðfjárbændum ætlað
að samþykkja. Því þeir eru slíkar
gungur að þeir munu samþykkja
hvað sem er.
Kæru félagar. Við verðum að
fella þennan samning. Við getum
ekki látið þetta yfir okkur ganga og
við þurfum þess heldur ekki. Við
höfum atkvæðisrétt og segjum nei.
Sigríður Jónsdóttir,
sauðfjárbóndi Arnarholti.
Lesendabás
Sauðfjárbændur samþykkja hvað sem er
Sigríður Jónsdóttir sauðfjárbóndi, Arnarholti. Myndir / HKr.
Styrkir til rannsókna
og þróunarverkefna
í garðyrkju
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um
framlög til rannsókna- eða tilraunaverkefna vegna ársins 2016
samkvæmt 5. gr. í samningi um starfsskilyrði framleiðenda
garðyrkjuafurða, frá 12. mars 2002, með síðari breytingum.
Framleiðnisjóður annast vörslu umrædda fjármuna, auglýsir
eftir umsóknum og sér um greiðslu framlaga. Styrkir vegna
rannsókna/tilrauna geta numið allt af 50% heildarkostnaði við
rannsóknina/tilraunina. Einungis er veitt framlög til rannsókna
eða tilrauna sem nýtast íslenskri grænmetisframleiðslu.
Umsóknafrestur er til 1. apríl n.k
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is.
Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að
finna
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: umsókn um þróunarfé.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; thorhildur@fl.is
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.