Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Fréttir
Þingeyjarsveit:
Styrking raforkuflutningakerfis
á N-Austurlandi forgangsatriði
Um 90% allrar sýklalyfjanotk-
unar í landbúnaði í 26 af ríkjum
Evrópusambandsins eru til að
auka vaxtarhraða við húsdýraeldi.
Veldur þetta vísindamönnum
miklum áhyggjum þar sem slík
ofnotkun er farin að valda því
að hættulegar bakteríur mynda
með sér ónæmi fyrir lyfjunum.
Það hefur valdið tugþúsundum
dauðsfalla í Evrópu.
Fjöldi sérfræðinga í vísinda-
stofnun og í háskólum víða um
Evrópu hafa því hvatt ríkisstjórnir
í Evrópusambandslöndum til að
styðja bann við notkun á sýkla-
lyfjum sem vaxtarhvetjandi efna
í landbúnaði. Vilja þeir að fylgt
verði fordæmi bændasamtaka
á Íslandi, Noregi, Danmörku,
Svíþjóð og í Finnlandi. Þau hafa
gert kröfu að yfirvöld ríkjanna leggi
að Evrópusambandinu að banna
fyrirbyggjandi notkun sýklalyfja í
landbúnaði til að auka vaxtarhraða
í dýrum.
Í ákalli sérfræðinganna, sem birt
var í breska blaðinu The Telegraph
á dögunum, segir m.a.:
„Hin hættulega mikla ofnotkun á
sýklalyfjum í lækningum á mönnum
og aukin tíðni sýklaónæmra baktería
er nú orðið að alheimsvandamáli.
Við þurfum pólitískar aðgerðir til að
hamla ofnotkun í landbúnaði.
Landbúnaður stendur á bak við
um tvo þriðju af allri sýklalyfjanotk-
un í Evrópu. Um 90% sýklalyfja
sem notuð eru í landbúnaði eru
notuð til hópmeðferðar. Oft fyrir
dýr sem eru fullkomlega heilbrigð.
Síðasta úrræðið í lyfjameðferð
dugar oft ekki
Bakteríur sem öðlast hafa ónæmi
gegn neyðarúrræða-sýklalyfjum
[colistin eða polymyxin antibiotic],
hafa fundist í dýrum á bóndabæjum
og í fólki í fjölmörgum ríkjum, í
Evrópu, Asíu og í Afríku. Þetta er
nýjasta vísbending um að núverandi
notkun lyfjanna megi ekki viðgang-
ast lengur.
Endurskoðun á reglum um notk-
un lyfja við dýraeldi í ESB-ríkjunum
gefur tækifæri til að knýja á um að
lyfin verði notuð af meiri ábyrgð.“
Í niðurlagi bréfsins segir síðan:
„Við hvetjum ríkisstjórnir innan
ESB, Evrópuþingið og fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
til að styðja bann í þessa veru.“
Það eru svo sem engir vanvit-
ar sem skrifa undir þessa áskorun
og því erfitt að afgreiða málið sem
einhvern hræðsluáróður frá fávísum
afdalabændum. Þetta eru:
Baroness Hollins, stjórnarformaður
British Medical Association Board
of Science, prófessor Tim Walsh,
Cardiff University, dr. Jeremy
Farrar, yfirmaður Wellcome Trust,
Shirley Cramer, forstjóri Royal
Society of Public Health, Babulal
Sethia, forseti Royal Society of
Medicine, dr. Clifford Mann, for-
seti Royal College of Emergency
Medicine, prófessor Peter Piot,
yfirmaður London School of
Hygiene & Tropical Medicine,
professor Jane Dacre, forseti Royal
College of Physicians, prófessor
Michael Dixon, forseti College of
Medicine, prófessor Barry Cookson
í University College London, dr.
Alex O’Neill í University of Leeds,
dr. Asha Kasliwal, varaforseti
Faculty of Sexual and Reproductive
Healthcare, prófessor Neena Modi,
forseti Royal College of Paediatrics
and Child Health, Vilma Gilis,
forseti Guild of Healthcare
Pharmacists, dr. David McCoy hjá
Queen Mary University, dr. Ron
Daniels forstjóri UK Sepsis Trust,
dr. William Gazehjá University of
Exeter Medical School, prófessor
Derek Bell, forseti Royal College
of Physicians of Edinburgh, pró-
fessor James P O’Gara, yfirmað-
ur Microbiology hjá National
University of Ireland, prófessor
Murat Akova, forseti European
Society of Clinical Microbiology
and Infectious Diseases, Tim Reed,
framkvæmdastjóri Health Action
International, Carolyn Whitten,
framkvæmdastjóri Universities
Allied for Essential Medicines
Europe, Nina Renshaw, aðal-
ritari European Public Health
Alliance, dr. Anna Zorzet, skipu-
leggjandi hjá ReAct Europe, dr.
Ton Nicolai, skipuleggjandi og
talsmaður EUROCAM, Thomas
Breitkreuz, forseti International
Federation of Anthroposophic
Medical Associations, prófess-
or Jan Kluytmans hjá Amphia
Hospital í Breda í Hollandi, pró-
fessor Dick Heederik, deildarstjóri
hjá Institute for Risk Assessment
Sciences - Division Environmental
Epidemiology í Hollandi, dr. Dik
J Mevius, yfirmaður Netherlands
National Reference Laboratory for
Antimicrobial Resistance in Animals
- Central Veterinary Institute, pró-
fessor Jaap A Wagenaar hjá Utrecht
University í Hollandi, dr. Torkel
Ekman, staðgengill deildarforseta
og varaformaður stjórnar í Swedish
University of Agricultural Sciences,
Thomas Svensson, deildarstjóri
svæðisdýralækna í stjórn land-
búnaðarmála í Svíþjóð [Swedish
Board of Agriculture], dr. Jenny
Lundstrom, gestarannsóknarmað-
ur hjá ReAct í Sviþjóð, prófessor
Jorgen Schlundt hjá Nanyang
Technological University, prófessor
Frank Møller Aarestrup, yfirmaður
rannsóknarteymis matvælastofn-
unar Tækniháskóla Danmerkur,
prófessor Anders Folkesson hjá
Tækniháskóla Danmerkur DI,
Hans-Petr Hutter, aðstoðarpró-
fessor og aðstoðaryfirmaður
Institute of Environmental Health,
Medical University Vienna, Lance
B. Price, yfirmaður Antibiotic
Resistance Action Center við Milken
Institute School of Public Health
í George Washington University í
Bandaríkjunum, Meredith Basey,
yfirmaður Universities Allied
for Essential Medicines North
America í Bandaríkjunum, Shefali
Sharma, stjórnandi Agricultural
Commodities and Globalization
Initiatives hjá Institute for
Agriculture and Trade Policy í
Bandaríkjunum, David Wallinga,
fyrrum yfirmaður Natural Resources
Defence Council í Bandaríkjunum,
dr. Stuart B Levy, yfirmaður Center
for Adaptation Genetics and Drug
Resistance í Bandaríkjunum, Greg
Filice, yfirmaður Infectious Disease
Section - Veterans Affairs Medical
Center í Bandaríkjunum, prófessor
James R. Johnson hjá University
of Minnesota í Bandaríkjuunum,
dr. Gudrun Illmanova, fyrrum
rannsóknarmaður í atferlisfræði
hjá Ethology í Institute of Animal
Science í Prague í Tékklandi, dr.
Burn Centre við Teaching Hospital
Kralovske Vinohrady í Prague í
Tékklandi, Marek Špinka, aðstoðar-
prófessor og yfirmaður í atferl-
isfræði hjá Institute of Animal
Science í Prague í Tékklandi, dr.
Ivana Grossová hjá Prague Burn
Centre við Teaching Hospital
Kralovske Vinohrady í Prague í
Tékklandi, dr. Miloš Kravciv hjá
Medical House í Tékklandi og
prófessor Peter Collignon hjá
Australian National University.
Fjöldi vísindamanna og sérfræðinga uggandi um framgang sýklalyfjaónæmis í Evrópu:
Vilja bann við notkun sýklalyfja sem
vaxtarhvetjandi efna í landbúnaði
− Tveir þriðju sýklalyfjanotkunarinnar fara til landbúnaðar − Vilja fylgja frumkvæði bændasamtaka á Norðurlöndum
Frá Bæjaralandi. Tveir þriðju hlutar af allri sýklalyfjanotkun í Evrópu fer til landbúnaðar. Um 90% allrar sýklalyfja-
notkunar í landbúnaði í 26 af ríkjum Evrópusambandsins eru til að auka vaxtarhraða við húsdýraeldi. Það er gert
til að reyna að bæta afkomu bændanna og lækka afurðaverð vegna kröfu verslunarfyrirtækjanna. Við innflutning
frá slíkri framleiðslu þurfa íslenskir bændur að keppa, en þeir nota ekki sýklalyf í þessum tilgangi.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
telur að styrking raforku-
flutningskerfis á Norð austur-
landi með bættum raforku-
flutningi milli Blöndu og
Kárahnjúkavirkjunar sé for-
gangsatriði fyrir landshlutann.
Þá sé brýnt að ráðast verði í þá
framkvæmd óháð því hvort og þá
hvenær ráðist verði í fyrirhugaða
Sprengisandslínu. Sveitarstjórn
telur að Sprengisandslína sé fyrst
og fremst ætluð til styrkingar
á byggðalínunni og því sé um
aðskildar framkvæmdir að ræða
sem ekki séu háðar sameiginlegu
umhverfismati.
Þetta kemur fram í bókun
sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar
sem samþykkt var á fundi
nýverið. Sex fulltrúar greiddu
bókuninni atkvæði sitt, einn sat
hjá. Fyrir fundinum lá erindi
frá Skipulagsstofnun sem
hefur til meðferðar tillögu fyr-
irtækis að matsáætlun vegna
Sprengisandslínu.
Stofnunin hefur verið að fara
yfir þær athugasemdir sem bárust
við tillögunni. Í þeim athugasemd-
um, sem eru samhljóða, auk
annarra athugasemda, hefur verið
vikið að mögulegu sameiginlegu
umhverfismati línunnar og annarra
framkvæmda sem eru fyrirhugaðar
af hálfu Landsnets. /MÞÞ
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
HAUGSUGUDÆLUR
Er haugsugudælan í lagi?
Eigum til og getum útvegað varahluti
í flestar gerðir haugsugudæla
Eigum til afgreiðslu Jurop haugsugudælur
Eigum einnig til gott úrval
af haugsuguhlutum
Fyrirtæki til sölu
Til sölu eru rekstur og eignir Fatahreinsunar Húsavíkur
ef viðunandi tilboð fæst. Fyrirtækið er í fullum rekstri
og verkefnastaða mjög góð.
Mögulegt er að kaupa eingöngu rekstur og tæki og gera
leigusamning um húsnæðið.
Fatahreinsun Húsavíkur er 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki sem
hefur stækkað mikið undanfarin ár vegna vaxandi verkefna, m.a.
tengd ferðaþjónustu.
Gott tækifæri fyrir dugmikla einstaklinga eða fjölskyldu.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður á staðnum eða eftir
samkomulagi. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir
á netfangið fatahreinsun@simnet.is