Bændablaðið - 24.05.2017, Side 8

Bændablaðið - 24.05.2017, Side 8
8 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017 Marka þarf opinbera stefnu um málefni sem tengjast sýklalyfjaó- næmi og endurskoða reglugerðir með tilliti til þess, auka þarf eftirlit bæði meðal manna, matvæla og dýra og stefna þarf að skynsam- legri notkun þeirra. Það er meðal þeirra tillagna sem starfshópur velferðarráðuneytisins leggur til í nýútkominni greinargerð um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Sýklalyfjaónæmi er ein helsta ógn sem steðjar að lýðheilsu, matvælaöryggi og framþró- un í heiminum í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Árlega deyja um 25.000 Evrópubúar af völd- um kvilla sem sýklalyf ráða ekki við. Matvælastofnun og Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) stóð fyrir ráðstefnu um ónæmi gegn sýklalyfjum og þar var kynnt skýrsla starfshóps um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfja- ónæmra baktería á Íslandi. Framsögumenn á ráð- stefn unni voru forstjóri Matvælaöryggisstofnunar Evrópu, Berhard Url, Pierre Alexandre Beloeil, sérfræðingur, Hans Verhagen, deildarstjóri hjá stofn- uninni, ásamt fulltrúum úr starfs- hópi velferðarráðuneytisins, þau Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Sigurborg Daðadóttir yfirdýra- læknir. Dregið úr og leyst af hólmi Vandamálið er víðtækt á meginlandinu og talar Matvælaöryggisstofnun Evrópu fyrir heildstæðum aðgerðum í baráttu gegn sýklalyfjaónæmi í nafni Einnar heilsu (e. One Health), þar sem litið er til jafns til lýðheilsu manna, dýra og umhverfis. Í máli Berhald Url kom fram að átak gegn sýklalyfjaónæmi í Evrópu væri byrjað að hafa áhrif. Reglugerðir hefðu verið innleiddar í Evrópusambandslöndum og leiddi það til víðtækara eftirlits og gagnasöfnun. Þá hefðu tilvikum um sýklalyfjaónæmi fækkað töluvert síðan reglugerðir voru fullgildar í Hollandi og Frakklandi. Horft er til þess að draga úr, leysa af hólmi og endurskoða notkun á sýklalyfjum. Lögðu framsögumenn áherslu á aukna meðvitund almennings og miðlun vísindalegra rannsókna á málefnum sýklalyfjaónæmis. Í þágu þess hefði stofnunin nú sett upp upplýsingasíðu á netinu sem útskýrir hið margþætta vandamál á myndrænan og gagnvirkan hátt. Þörf á opinberri stefnu Ísland sker sig frá öðrum Evrópulöndum. Ónæmi hjá mönnum og dýrum er almennt lægra en aftur á móti neyta Íslendingar sýklalyfja í mun meira mæli en gengur og gerist annars staðar í álfunni. Fram kom á ráðstefnunni að til þess að viðhalda lágu hlutfalli tilvika sýklaónæmis á Íslandi og koma í veg fyrir útbreiðslu þurfi að ráðast í samhæfðar aðgerðir. Greinargerð starfshóps um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi var birt samhliða ráðstefn- unni. Starfshópurinn var skipaður af heilbrigðisráðherra og í honum áttu sæti Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir, sem var formaður hópsins, Sigurbjörg Daðadóttir yfir- dýralæknir og Vala Friðriksdóttir, deildarstjóri Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. Starfshópurinn leggur til að stjórnvöld marki sér opinbera stefnu um málefni sem tengjast ónæmi sýklalyfja. Stefnan þurfi að taka til forvarna, vöktunar og viðbragða og hægt sé að líta til vinnu Norðmanna um slíka stefnu. Þá verði áfram gefin út árleg skýrsla um sýklalyfjaónæmi og sýklalyfjanotkun hér á landi. Stefna verði innleidd um skynsamlega notkun sýklalyfja í mönnum og dýrum. Eftirlit aukið með ferskum matvælum Styrkja þarf eftirlit með sýklalyf- jaónæmum bakteríum í dýrum, matvælaframleiðslu og matvæl- um. Starfshópurinn leggur til að fylgst verði með sýklalyfjaónæmi hjá sjúkdómsvaldandi bakteríum og bendibakteríum í matvælum í smásölu á grundvelli ákvörðunar Evrópusambandsins nr. 652/2013. „Lagt er til að í byrjun verði eft- irliti háttað samkvæmt ákvörðun Evrópusambandsins en síðar megi beita auknu eftirliti eins og sum Norðurlöndin hafa gert. Hér má helst nefna eftirlit með grænmeti (erlendu sem innlendu) sem og eftirliti með lamba- og hrossakjöti. Stofna þarf starfshóp á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem metur kostnað og útbýr leiðbeiningar um slíkar aðgerðir,“ segir í greinar- gerðinni. Eftirlit með ónæmi í ferskri matvöru, bæði íslenskri og erlendri, hefur ekki verið fullnægjandi hér á landi, en slíkar skimanir hafa nú verið teknar upp. Bæta þarf hreinlætisaðstöðu ferðamanna Kallað er eftir heildstæðri endur- skoðun á notkun sníkjudýralyfja hér á landi í greinargerðinni. Lagt er til að gerðar verði rannsóknir á útbreiðslu sníkjudýra í búfé og gælu- dýrum og næmi þeirra fyrir lyfjum prófað. Í kjölfarið verði settar reglur og/eða leiðbeiningar um ávísun og notkun sníkjudýralyfja hjá dýrum auk leiðbeininga um varnir/hömlur við sníkjudýrasmit. Nauðsynlegt sé að gera rann- sóknir á tilvist sýklalyfjaónæmra baktería í umhverfi og skimanir fyrir sýklalyfjaónæmum bakterí- um verði auknar hjá skilgreindum áhættuhópum. Að lokum bendir starfshópur- inn á að minnka verði áhættu á dreifingu sýklalyfjaónæmra bakter- ía með ferðamönnum, meðal annars með því að bæta hreinlætisaðstöðu á ferðamannastöðum. „Eins og fram hefur komið í fréttum þá er víða pottur brotinn í þessum efnum hér á landi. Mikilvægt er að hið opin- bera leggi kvaðir á sveitarfélög um úrbætur í þessum efnum. Aðrir aðilar sem að þessum málum þurfa að koma eru Umhverfisstofnun og ýmis samtök í ferðamannaiðnaði,“ segir í greinargerðinni. /ghp Breytingar á reglugerðum og víðtækara eftirlit hefur áhrif: Heildstæðra aðgerða er þörf í baráttu gegn sýklalyfjaónæmi Fjósið í Flatey á Mýrum opnað ferðamönnum smátt og smátt Eitt stærsta fjós landsins, ef ekki það stærsta, verður opnað ferða- mönnum smátt og smátt. Það er í Flatey á Mýrum sem er í eigu útgerðarfyrirtækisins Skinneyjar Þinganes á Höfn í Hornafirði. Fjósið er aðdráttarafl fyrir ferða- fólk og mjög aðgengilegt með svöl- um sem snúa að fjósinu með góðri sýn yfir það. Byggingaframkvæmdir fyrir móttöku og veitingasölu geng- ur vel en móttaka á ferðafólki hefst á næstu vikum með aðstöðu fyrir þrjú ferðaþjónustufyrirtæki. Það eru Ice Guide (kajakferðir /íshellar), Glacier Journey (jeppa- og sleða- ferðir) og Ice Explorers (jeppaferð- ir). Veitingasalan og aðstaðan fyrir ferðamenn til að skoða fjósið verður ekki opnuð alveg strax. Þá stendur til að fara í repjurækt og skógrækt á jörðinni. Um 240 kýr eru á búinu þar sem fjórir róbótar sjá um að mjólka kýrnar. /MHH FRÉTTIR Hans Verhagen frá Matvælaöryggis- stofnun Evrópu (EFSA) hélt erindi á ráðstefnunni. Matvælaöryggisstofnunin hefur útbúið nokkrar upplýsingasíður á netinu sem útskýrir hið margþætta vandamál sýklalyfjaónæmis á myndrænan og gagnvirkan hátt. Pierre Alexandre Beloeil, sérfræðingur Matvælaöryggisstofnunarinnar, fór Í Berjanesi í Vest- ur-Landeyjum í Rangárvallasýslu vanagang. Þessi fallegi kálfur númer 0679 hefur þó ekki sérstakar áhyggjur af brölti mannfólks- ins. Ræktendur eru Guðmundur Jón Jónsson og Erna Ár- fells sem annáluð eru fyrir væntumþykju á skepnum sínum. Í Berjanesi eru nú um 50 kýr. Þessir vinir brosa breitt í sveitinni. Frænkurnar Aþena Lillý og bóndadóttirin Svala Ingibjörg Guðmundsdóttir ásamt Lubba. Myndir / Telma Sigurgeirsdóttir Hér er Hjalti Vignisson (t.v.) sem hefur m.a. með uppbygginguna að gera í Flatey en hann er framkvæmdastjóri sölu og þróunar hjá Skinney Þinganes. Með honum er Birgir Freyr Ragnarsson, bústjóri í Flatey, en þeir félagar vinna sameiginlega að framtíðarsýn fjóssins fyrir ferðamenn og aðra gesti Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson til fyrirmyndar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.