Bændablaðið - 24.05.2017, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Viðskiptahugmyndin var mótuð og þróuð á þremur vikum en hópurinn samanstendur af Ingibjörgu Láru Magnús-
dóttur, Sonju Lind Eyglóardóttur, Gauta Geirssyni og Guðrúnu Eddu Þórðardóttur, ásamt Gunnari.
Fylgjukrem njóta vaxandi vinsælda víða um heim:
Vilja nota fylgju sauðkindar í andlitskrem
„Hver er ekki til í íslenskt lífrænt
andlitskrem unnið úr fylgjum
sauðkindarinnar sem viðheldur
heilbrigði húðarinnar?“ spyr
Gunnar Freyr Þorleifsson, nemi
við Háskólann í Reykjavík.
Hann hefur ásamt fjórum
samnemendum unnið að
viðskiptahugmynd fyrir lífræna
andlitskremið Hildir Organics.
Eins og nafnið bendir til
verður kremið unnið úr hildum
sauðkindarinnar en notkun á
fylgjukremum virðist njóta
vinsælda víða um heim nú um
stundir. „Í Nýja-Sjálandi er
unnið krem úr um 20 tonnum af
kindafylgjum á ári. Þetta virðist
einnig vera mjög vinsælt víða í
Asíu og nú eru Hollywood-stjörnur
farnar að bera slík krem á sig,“ segir
Gunnar, en fylgjan mun vera rík
uppspretta virkra næringarefna
og amonísýra, andoxunarefna og
sagt er að kremin hamli öldrun
húðarinnar og öramyndun.
Hópurinn segir helsta kost við
nýtingu fylgja úr sauðfé þann að
hún er algjörlega ónýtt í dag og
yfirleitt hent. Það sé því mjög í anda
sjálfbærrar hugsunar að nýta þessa
auðlind. „Við hugsuðum; af hverju
ekki að framleiða svona krem á
Íslandi, með allar okkar kindur?“
Þörf á rannsóknum
Viðskiptahugmyndin var mótuð
og þróuð í þriggja vikna löngum
áfanga sem heitir Nýsköpun og
stofnun fyrirtækja en hópurinn
samanstendur af Ingibjörgu
Láru Magnúsdóttur, Sonju Lind
Eyglóardóttur, Gauta Geirssyni og
Guðrúnu Eddu Þórðardóttur, ásamt
Gunnari.
Hópurinn hefur á undanförnum
vikum leitað til fjölda stofnana og
fyrirtækja til að afla sér upplýsinga
til að nota í rekstraráætlun vörunnar.
Þá hafa þau hannað frumgerð
umbúða fyrir vöruna.
Einnig leituðu þau fanga
víða í von um að geta raungert
viðskiptahugmynd sína einn
daginn. „Við höfðum m.a. samband
við lífræn bú sem væru til í samstarf
ef við förum af stað með þetta,“
segir Gunnar. Hins vegar þyrfti
mikil rannsóknavinna að eiga sér
stað áður en af því verður.
„Við erum alveg opin fyrir því að
þróa vöruna áfram og teljum að það
sé markaður til staðar. Við þyrftum
þá að fara í rannsóknir á fylgjunni
og kafa dýpra í efnasamsetningu
hennar. Við eigum í rauninni bara
eftir að ræða það hvað við ætlum
að gera í framtíðinni. Þetta gæti
nefnilega orðið spennandi verkefni
og aldrei að vita nema Hildir
Organics verði að veruleika,“ segir
Gunnar. /ghp
Hópurinn segir helsta kost við nýtingu fylgja úr sauðfé þann að hún er
Frumgerð umbúða fyrir andlitskremið Hildir Organics.
Nýr formaður Landverndar:
Vill gott samstarf
við bændur
Snæbjörn Guðmundsson var
kjörinn formaður Landverndar
á aðalfundi umhverfis-
verndarsamtakanna þann 13.
maí sl. Hann vill vinna ötullega að
stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.
Snæbjörn er fæddur árið 1984,
jarðfræðingur að mennt, höfundur
bókarinnar Vegvísir um jarðfræði
Íslands. Hann hefur kennt jarðfræði
og jarðefnafræði á ýmsum skóla-
stigum, bæði við Háskóla Íslands
og við Endurmenntun HÍ en hefur
einnig staðið fyrir óhefðbundinni
jarðfræðikennslu fyrir börn og ung-
linga. Þá hefur Snæbjörn unnið í
ferðaþjónustu, verið staðarhaldari
og skálavörður í Landmannalaugum
og Kerlingarfjöllum. Síðustu misseri
hefur Snæbjörn starfað á rannsóknar-
stofu hjá Mannvit.
„Ég hef verið félagi í Landvernd í
nokkur ár en aldrei starfað formlega
innan samtakanna áður. Því var skot-
ið að mér að staðan væri að losna og
mér fannst góð hugmynd að bjóða
mig fram,“ segir Snæbjörn.
Staða formanns samtakanna kall-
ar á fjölbreytt verkefni og Snæbjörn
gengur óragur að þeim. Fram undan
sé áhugaverður tími.
„Það eru fjölmörg mál í gangi
núna hjá Landvernd, og önnur í
farvatninu, sem ég hef alla tíð haft
áhuga á og mun halda áfram að vinna
ötullega að. Þar á meðal eru til dæmis
þjóðgarðsmál á miðhálendinu, lofts-
lagsmálin og svo almennt vernd sér-
stæðrar náttúru og víðerna landsins.
Svo eru önnur mál hjá Landvernd
sem ég er kannski minna inni í,
sem tengjast umhverfismennt og
almennri umgengni um náttúruna og
umhverfi okkar. Þau eru afar mikil-
væg og ég mun auðvitað setja þau
mál ekki síður á oddinn, enda góð
mál til að vekja fólk til umhugsunar
um náttúruna.“
Snæbjörn telur augljóst að hags-
munir bænda og náttúruverndar fari
saman.
„Við nýtingu auðlinda og nátt-
úrugæða verður að huga að viðhaldi
og viðgangi þeirra til lengri tíma
litið, þannig að áfram sé unnt að nýta
þær. Þannig hefur Landvernd til að
mynda lagt mikla áherslu á sjálfbæra
nýtingu beitilanda, meðal annars
við gerð búvörusamninga og við
breytingar á lögum um landgræðslu
og skógrækt. Við vinnum í mikilvæg-
um landgræðsluverkefnum, svo sem
á Hekluskógasvæðinu. Landvernd
hefur líka verið framarlega í umræðu
um jarðstrengi sem valkost við loft-
línur, sem ég tel vera hagsmunamál
bænda og annarra landeigenda víða
um land. Sem nýr í þessari stöðu
þekki ég kannski ekki alveg hvern-
ig samskiptin hafa verið hingað til
en sem formaður Landverndar er ég
mjög opinn fyrir góðu samstarfi í
ýmsum málum, og má þar til dæmis
nefna mál varðandi stofnun þjóð-
garðs á miðhálendinu,“ segir nýr
formaður Landverndar. /ghp
Snæbjörn Guðmundsson.
Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir
girðingarverktaka vegna endurnýjunar
landgræðslugirðingar í Rangárþingi ytra.
Um er að ræða c.a 5,5 km hefðbundna rafgirðingu.
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2017.
Upplýsingar gefa Árni Eiríksson í síma 860-9135
eða arni.e@land.is og í síma
891-8874 eða gardar@land.is. Verklýsingar og
tilboðsblöð er hægt að nálgast hjá sömu aðilum.
Tilboðum skal skila til Landgræðslu ríkisins í
Gunnarsholti eða á netfangið arni.e@land.is eigi
síðar en kl 12:00 föstudaginn 9. júní 2017 og verða
þau opnuð kl. 13:00 þann sama dag.
Nýgirðing á Rangárvöllum
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti
851 Hella
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 8. júní