Bændablaðið - 24.05.2017, Page 25
25Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
AMAZONE ZA-X 1402 Perfect
Ekki kasta áburðinum út í bláinn
1400 lítra (2ja sekkja)
Kögglasigti
Ryðfríar skífur
Vinnslubreidd: 10 - 18 m
Mekanísk stilling
Jaðarbúnaður
Yfirbreiðsla.
Tvær dreifiskífur - meiri nákvæmni
1400 lítra - hægt að stækka í 1700 lítra
AMAZONE ZA-M 1001 Special
1200 lítra (2 sekkja)
Kögglasigti
Ryðfríar skífur
Vinnslubreidd: 18 - 24 m
Tölvustýrður.
Jaðarbúnaður
Yfirbreiðsla
Tvær dreifiskífur - meiri nákvæmni
1200 lítra - hægt að stækka í 1700 lítra
kr. 649.000,-
Sérstakt vorverð:
Jaðarbúnaður og yfirbreiðsla fylgir
án vsk.
kr. 940.000,-
Sérstakt vorverð:
Jaðarbúnaður og yfirbreiðsla fylgir
án vsk.
AMAZONE áburðardreifararnir eru þekktir fyrir nákvæmni í dreifingu. Við bjóðum nú
AMAZONE ZA-X 1402 Perfect og ZA-M 1001 Special með jaðarbúnaði og yfirbreiðslu á
sérstöku vorverði:
VISSIR ÞÚ að AMAZONE hefur prófað megnið af þeim áburði sem seldur er á Íslandi og birtir sérstakar stillingar fyrir þann áburð á
heimasíðu sinni, www.amazone.de - Einnig er hægt að nálgast app fyrir áburðarstillingarnar í i-Phone og Android síma.
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
MENNING&LISTIR
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson með nýju
bókina, Sauðfjárbúskapur í Kópavogi.
Mynd / HKr.
Ólafur R. Dýrmundsson:
Sauðfjár-
búskapur
í Kópavogi
Föstudaginn 19. maí var haldið
útgáfuhóf í Héraðsskjalasafni
Kópavogs. Tilefnið var útgáfa
bókarinnar Sauðfjárbúskapur í
Kópavogi.
Höfundur bókarinnar er dr. Ólafur
R. Dýrmundsson, en bókin er gefin
út í flokki smárita sem Sögufélag
Kópavogs og Héraðsskjalasafn
Kópavogs hefur staðið fyrir útgáfu á.
Bókin lætur ekki mikið yfir sér með
sínar 78 blaðsíður, en er þeim mun
innihaldsríkari af samanþjöppuðum
upplýsingum og fróðleik. Um leið
er bókin saga Sauðfjáreigendafélags
Kópavogs.
Bókin er ótrúlega yfirgripsmikil,
en þar er fjallað um fjallskil í nánd
þéttbýlis, lögskilaréttir, fjárskipti,
sauðfjárstríð í Reykjavík, hrúta-
sýningar, sauðfjárböð, uppgræðslu,
öflun heyja og fjármörk, um sauð-
fjárbúskap sem stundaður hefur verið
í Kópavogi. Höfundurinn, Ólafur
R. Dýrmundsson, skýrir frá þróun
sauðfjárræktar í Kópavogi frá því um
miðja 20. öld þegar þéttbýli tók að
myndast þar. Sauðfjáreigendafélag
Kópavogs hefur gegnt lykilhlutverki
í þessari atburðarás í 60 ár, ritið er
jafnframt saga þess.
Bókin geymir ómetanlegar
heimildir um sögu sauðfjárbúskapar
í Kópavogi og í raun um staðhætti og
sögu upphafs byggðar og skipulags
í Kópavogi. Þá fléttar Ólafur inn í
textann fróðlegar og skemmtilegar
sögur um einstaklinga sem settu svip
á samfélagi, eins og Jón í Digranesi
þegar hann bjargaðist af flæðiskeri.
Eins hefur Ólafur látið gera kort af
örnefnum sem fram koma í bókinni
og fáir þekkja í dag.
Fyrir sögu Sauðfjáreigendafélags
Kópavogs er bókin ómetanleg. Þar er
að finna félagaskrá frá 1957 til 2017
og hvar menn bjuggu og hvaða ár
meðlimir gengu í félagið. Þá upplýsir
Ólafur einnig um alla þá fjáreigendur
í Kópavogi sem ekki voru í félaginu.
Margar fleiri upplýsingar er að
finna í bókinni úr smiðju Ólafs og
án vitneskju annarra sem eru einnig
ómetanlegar sem heimildir. Líklegt
má telja að án tilkomu þessa rits
hefðu margar dýrmætar heimildir
glatast.
Fullyrða má að Sögufélag
Kópavogs og Héraðsskjalasafn
Kópavogs hafi unnið stórmerkilegt
starf með útgáfu Smáritanna, en
bókin Sauðfjárbúskapur í Kópavogi
er sú fjórða í röðinni. Hin ritin, sem
einnig geyma merkar heimildir úr
sögu Kópavogs, eru:
1. Minningar af Kársnesi eftir
Eyþór Sigmundsson og Helgu
Sigurjónsdóttur, sem kom út
2012.
2. Kampar í Kópavogi. Herbúðir
bandamanna í landi Kópavogs
og næsta nágrenni í síðari heims-
styrjöld eftir Friðþór Eydal, sem
kom út 2013.
3. Vatnsendi. Úr heiðarbýli í þétta
byggð eftir Þorkel Jóhannesson,
sem kom út 2013
4. Landnemar í Kópavogi eftir Leif
Reynisson, sem kom út 2016.
Umsjón með útgáfu nýju bókarinn-
ar, Sauðfjárbúskapur í Kópavogi,
og umbrot, annaðist Símon Hjalti
Sverrisson. Bókin var prentuð hjá
prentsmiðjunni Svansprenti.
Þeim sem áhuga hafa á að nálgast
þessi rit er bent á Héraðsskjalasafn
Kópavogs sem staðsett er í
gamla pósthúsinu við Fannborg í
Kópavogi. Þá er hægt að skrá sig
í Sögufélag Kópavogs á heima-
síðu félagsins, www.vogur.is, og í
Héraðsskjalasafninu. /HKr.