Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Hann nefnir í því tilliti þær
tegundir sem hann rannsakaði;
blóðberg (Thymus praecox),
fjalldalafífil (Geum rivale),
engjarós (Comarum palustre),
umfeðming (Vicia cracca),
beitilyng (Calluna vulgaris),
blágresi (Geranium sylvaticum),
skarifífil (Scorzoneroides
autumnalis) og gullkoll (Anthyllis
vulneraria). Þar að auki hafa
aðrar rannsóknir á íslensku
móhumlunni á Íslandi litið
til mikilvægis bláberjalyngs
(Vaccinium uliginosum) ,
sortulyngs (Arctostaphylos uva-
ursi) og ýmissa tegunda af víði
(Salix spp.).
„Í nýjustu rannsókninni bendi
ég ekki aðeins á mikilvægi
tiltekinna tegunda heldur
einnig að val á plöntum er
einstaklingsbundið. Þannig
virðast einstaklingar sérhæfa
sig í einni tegund plantna. Þetta
kann að vera til að koma í veg
fyrir samkeppni. En einnig gæti
það bent til ákveðinnar kænsku
meðal býflugnanna til þess að
fylgjast með framboði næringar
í mismunandi plöntutegundum,“
segir Jonathan.
Uppræting lúpínu möguleg
Umræður um aðgerðir til að hamla
útbreiðslu alaskalúpínunnar eru
æði misjafnar en Jonathan segir
beinlínis rangt að ekki sé hægt að
útrýma henni algerlega hér á landi.
„Ísland er eyja, sem er sú
tegund landmassa þar sem
uppræting tegunda eru líklegastar
til að ná árangri. Frá efnahagslegu
sjónarhóli er fýsilegra að leggja
í mikla vinnu núna og útrýma
lúpínunni úr eyjunni í stað þess
að standa í stríði við að hamla
henni út í hið óendanlega. Því
miður hefur plantan byggt
upp óhemju stóran fræbanka
undir jarðvegsyfirborðinu,
en með fullnægjandi störfum
og reglulegu eftirliti á
útbreiðslusvæðum væri hægt að
uppræta lúpínuna og endurreisa
innfædd plöntusamfélög,“ segir
Jonathan og bendir á að það sama
gildi reyndar um upprætingu
skógarkerfils (Anthriscus
sylvestris).
Landsátak til varnar
móhumlunni
Jonathan vonast til þess að frekari
rannsóknir á móhumlunni séu
fyrirhugaðar og stuðlað verði að
vernd hennar. Það sé um auðugan
garð að gresja þegar kemur að
rannsóknarefni og hann nefnir t.d.
áhrif gróðursamfélaga á lífsferil
móhumlunnar, hugsanleg eituráhrif
frá frjókornum alaskalúpínunnar
og áhrif endurheimtar vistkerfis á
stofnstærð flugunnar.
Þá leggur hann til að landsátaki
verði hleypt af stokkunum til
varnar móhumlunni. „Þjóðarátak
í söfnun staðbundinna upplýsinga
gætu veitt vísindamönnum afar
mikilvægar upplýsingar fyrir
áframhaldandi rannsóknir. Það
myndi enn fremur stuðla að
meiri þekkingu almennings á
þessu margslungna viðfangsefni.
Móhumlan, ásamt öðrum
mikilvægum frjóberum, myndu
njóta góðs af framlagi almennings
til vísinda og verndunar.“ Jonathan
nefnir vel heppnaðar landshluta-
áætlanir í heimalandinu til
fyrirmyndar, Bumble Bee Watch
og Great Sunflower Project. /ghp
HROSSABÆNDUR OG AÐRIR
STÓÐEIGENDUR ATHUGIÐ
Getum tekið inn nýliða fyrir söfnunarárið 2017
með framtíðarviðskipti í huga.
Blóðtaka úr fylfullum hryssum hentar flestum stóðeigendum vel
sem aukabúgrein. Búast má við 10–11 vinnudögum, einum vikulega
frá lokum júlí til loka september. Meðalútkoma bæja 2016 uppreiknað
m.v. verðskrá ársins 2017 var um kr. 37.000,-/hryssu án vsk.
Senn líður að því að stóðhestar fari í stóð.
Suðurland og Vesturland: 23.–26. maí.
Norðurland: 23. maí–9. júní.
Frekari upplýsingar veitir starfsfólk Ísteka
s. 581 4138 / hryssa@isteka.com
Jonathan segir mögulegt að útrýma lúpínunni af Íslandi með samhentu átaki og reglubundnu eftirliti. Mynd/úr safni BBL
UXI GÆÐASTÍGVÉL
Þrautreynd við íslenskar aðstæður
og hafa reynst afar vel.
10.800
Vinnustígvél
9.800
„Ég hef notað UXA stígvélin nær daglega í allan
vetur og þau eru ennþá eins og ný! Þau eru létt og
þægileg og ég get hiklaust mælt með þeim“
Kristinn Guðnason
Fjallkóngur á Landmannaafrétti og
bóndi í Árbæjarhjáleigu.
„UXA stígvélin eru mjúk, þægileg
og slitsterk,
Kúa og fjárbóndi í Raftholti, Holtum
Einangrun gegn kulda (-20)
farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VEFSÍÐU FARVEL.
ÆVINTÝRAFERÐ – TVÆR VIKUR Í PARADÍS
15.–30. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 369.000 KR.
FARARSTJÓRN: VILBORG HALLDÓRSDÓTTIR
BaLí, GiLíEyJa
oG BaNgKoK