Bændablaðið - 02.11.2017, Qupperneq 7

Bændablaðið - 02.11.2017, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Miklar endurbætur fara nú fram á húsakynnum Hótel Sögu og nú er unnið að algerri endurnýjun hins sögufræga Súlnasalar. Í sumar var ráðist í að hreinsa allt innan úr salnum ásamt eldhúsi sem þar var á bakvið. Síðan hafa iðnaðarmenn verið önnum kafnir við að innrétta að nýju. Búið er að skipta um alla glugga, skipta um loftræstingar og allar lagnir. Þá verður byggt upp nýtt og fullkomið eldhús, enda mun salurinn fá að hluta nýtt hlutverk sem morgunverðarstaður hótelgesta. Þrátt fyrir það verður áfram hægt að nýta salinn undir viðburði af ýmsum toga eins og jólahlaðborð. Þótt enn séu mörg handtök eftir er ætlunin að opna Súlnasalinn að nýju fimmtudaginn 16. nóvember næstkomandi. Fyrir utan þetta er hafin vinna við að breyta inngangi á fyrstu hæð ásamt móttöku og veitingaaðstöðu fyrir gesti hótelsins þar sem Mímisbar er nú. Barinn verður þó áfram þótt umhverfi hans muni breytast verulega. Ráðgert er að þessum breytingum ljúki á vordögum næsta árs. /HKr. Miklar endurbætur fara nú fram á Hótel Sögu: Súlnasalur í nýjan búning – Stefnt að opnun á sal, glænýju eldhúsi og veitingaaðstöðu með stórveislu 16. nóvember MÆLT AF MUNNI FRAM Það finnst mér gegn og góður siður að þakka fólki það sem vel er gert og meint. Þannig fórust mér orð í síðasta vísnaþætti, er ég færði opinberlega Birni Ingólfssyni á Grenivík mínar bestu þakkir fyrir Þingvísnabókina er hann færði mér til gjafar. Til að hnykkja frekar á þakklæti mínu, þá bætti ég því við, að mér fyndist Björn ekki bara afbragðs hagyrðingur, heldur einnig líka „góður maður“. Ekki óraði mig fyrir því, að þessi persónulega skoðun mín á Birni yrði til þess að vekja með honum slíkt oflæti sem næsta vísa hans ber vitni um: Ánægju minni ég ekki fæ leynt, yfir mig sæll og glaður. Á endanum komið er alveg á hreint að ég er góður maður. Petra kona mín leitaði um svipað leyti til Björns vegna úrlausnar á einhverju verkefni. Björn leysti vanda hennar greiðlega, og þakkaði hún honum fyrir vinsemd hans og visku. Viðbrögð Björns urðu á sama veg og að ofan greinir: Það er ekkert árans blaður að upphefð mín er stór og skjót; orðinn gegn og góður maður og gáfaður í þokkabót. Björn hlýtur að jafna sig með tímanum. Í nýlegu bréfkorni frá Gunnari Veltan eru þó nokkrar vísur um ástandið í pólitíkinni þessi dægrin. Þær vísur fá ekki rúm hér, en vinsamleg eftirmæli um Höskuld Einarsson frá Vatnshorni verða aldrei of oft kveðin: Djarfur bóndi duglegur, dvínaði aldrei móður, í Vatnshorni Höskuldur hagyrðingur góður. Fyrst farið er að fjalla um gengi bænda, þá er vel við hæfi að birta hér nýort ljóð eftir Davíð Hjálmar Haraldsson. Þar er fjallað ítarlega um stöðuna á kjötmarkaði og þann birgðavanda sem afurðastöðvum hefur ekki tekist að greina til fulls. Við greiningu vandans leitar Davíð traustra heimilda vítt og breitt sem gerir framsetningu hans afar trúverðuga. Ljóðið nefnir Davíð, Birgðavandi: Til sveita eru sauðakrof í stöflum samkvæmt hag- og birgðastöðutöflum og vinnslustöðvar verð á keti lækka. Voðinn nálgast; bændunum mun fækka því nú er haust og veturinn í vændum. En vandinn hefur ýtt við sumum bændum sem finna út hvað annað megi gera en uppgefast á hokrinu- og skera. Á Baldursheimi buðu þau til veislu bræðrum sínum, þekktum fyrir neyslu. Þótt gamlir væru gestirnir og slappir þeir gátu étið hundrað sviðalappir og þrettán slög við þetta tækifæri og þrjátíu og átta grilluð læri en rifjasteik og hrygg og báða bóga af Bíldu sem var hölt og varð að lóga og hrút sem þeir í heilu lagi átu og hakkað í sig pressuð svið þeir gátu og heilastöppu, hjörtun öll og þindir úr hjörð af gemlingum sem urðu blindir. Þeir virtust hafa góða lyst á lungum og luku við á sjötta tug af pungum og tólf kíló af tittlingum af hrútum í tommu löngum, niðurskornum bútum og fimmtíu og fjóra bringukolla sem féllu til við heimaslátrun rolla. Allan matinn átu þeir með hraði og efirréttinn; saltketsgúmmilaði. ------ Djarfar fyrir dagsbirtu í sveitum, í draumi hóa bændurnir í leitum. Senn mun hverfa sauðaket í stöflum samkvæmt hag- og birgðastöðutöflum. Svo hljóðar þessi magnaða skýrsla Davíðs. 189 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Myndir / HKr. LÍF&STARF

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.