Bændablaðið - 02.11.2017, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
FRÉTTIR
Um hundrað manns mættu
á opinn fund í Ásgarði á
Hvanneyri þriðjudaginn 24.
október sem bar yfirskriftina
Aukið virði landbúnaðarafurða
– Hvað ætlar Ísland að gera?
Fundurinn var skipulagður af
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Matís og Samtökum ungra
bænda.
Fulltrúar allra níu stjórn-
málaflokkanna sem bjóða fram
í Norðvesturkjördæmi mættu og
kynntu stuttlega framtíðarsýn
flokkanna í landbúnaðarmálum
auk þess að svara spurningum í sal
í lok fundar.
Áhyggjur af byggðaröskun en
tækifærin eru víða
Einar Freyr Elínarson, formaður
Samtaka ungra bænda, setti fundinn
og sagðist hafa áhyggjur af mikilli
byggðaröskun ef ekkert yrði gert í
vanda sauðfjárbænda eins og staðan
er í dag og að stjórnmálamenn geti
ekki skilað auðu í þessu máli.
Hann sagði tækifærin þó vera
víða fyrir bændur, m.a. með
stórauknum ferðamannastraumi til
landsins sem opnað hefði á nýjar
leiðir í sölu og þróun matvæla.
Sérstaða íslenskra landbúnaðarvara
er ótvíræð og neytendur eru sífellt
að verða meðvitaðri um hana,
mikilvægt er að standa vörð um
þessa sérstöðu þegar litið er fram
í tímann, sagði Einar. Hann sagði
íslenska bændur ekki hrædda við
samkeppni en erfitt væri að keppa
einungis á verðmiðanum við innflutt
kjöt.
Eigum vísindafólk á heimsvísu
Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ,
minntist í upphafi ræðu sinnar á
að Hvanneyri væri búin að vera
miðstöð íslensks landbúnaðar í
meira en hundrað ár og þangað
hefðu margir sótt sér þekkingu í
nýtingu á jörðinni sér og sínum til
framfærslu við matvælaframleiðslu
í gegnum tíðina.
Í dag eigum við vísindafólk á
heimsvísu sem hefur sótt sér nám
og fengið þjálfun hér á landi í sínum
fræðum og vinnur í dag fyrir öflugar
stofnanir á sviði landbúnaðar og
matvæla.
Sæmundur sagði nauðsynlegt
að styðja við og hlúa að þessum
stofnunum svo innan þeirra sé
hægt að þjálfa nýtt fólk sem vinni
að nýjum rannsóknum. Síðasta
áratug hefur dregið gríðarlega úr
fjármagni til Landbúnaðarháskólans
og er óviðunandi að fræðasvið
landbúnaðarins sé fjársvelt ár
eftir ár, sé stefnan að hafa öflugan
landbúnað á Íslandi verði að vera
öflugur landbúnaðarháskóli á
Íslandi, sagði Sæmundur.
Nauðsynlegt að brúa
bilið á milli neytenda og
verðmætasköpunar
Sveinn Margeirsson, forstjóri
Matís, sagði nauðsynlegt að
brúa bilið á milli neytenda og
verðmætasköpunar og tók sem
dæmi hvernig Matís hefur unnið
að því markmiði í sjávarútvegi.
Síðustu tíu til fimmtán ár hefur
verðmæti hvers kílós af afla í
sjávarútvegi meira en tvöfaldast og
hefur stofnun AVS Rannsóknasjóðs
í sjávarútvegi mikið um þá
staðreynd að segja, sagði Sveinn.
Hægt að þrefalda
verðmætasköpun og arðsemi
landbúnaðar
Rannsóknasjóðurinn var stofnaður
árið 2003 en hann veitir styrki til
rannsókna- og þróunarverkefna
sem auka verðmæti sjávarfangs og
árið eftir var Tækniþróunarsjóður
stofnaður, tveir sjóðir með því
markmiði að búa til meiri verðmæti.
Sveinn segir að sjóður eins og AVS
(Aukið verðmæti sjávarfangs)
geti hjálpað landbúnaðinum á
svipaðan hátt og sjávarútveginum.
Fullyrti hann að hægt verði að
þrefalda verðmætasköpun og
arðsemi íslensks landbúnaðar á
næstu fjórum árum. Til þess þarf
vísindi og stofnanir, og Matís og
Landbúnaðarháskólinn spila þar
lykilhlutverk.
Sveinn sagði að lokum að það
þurfi að fjárfesta í þekkingu og
að bændur, sjómenn og fyrirtæki
tengd landbúnaði og sjávarútvegi
auk stjórnvalda verði að horfast í
augu við það.
Framsögumenn og frambjóð-
endur voru ánægðir með fundinn og
minntust margir á nauðsyn þess að
ná til ungs fólk því það er hópurinn
sem auðveldast er að kynna fyrir
nýjungar.
Nemendur Landbúnaðar-
háskólans fjölmenntu á fundinn
og var greinilegt að margir þeirra
hafa áhyggjur af núverandi
stöðu sauðfjárbænda og framtíð
sinni í greininni. Eitt voru allir
frambjóðendur sammála um,
rannsóknir og nýsköpun eru
grundvallaratriði í þeirri vinnu að
auka virði afurða í landbúnaði.
Frambjóðendur sem sátu
fundinn voru:
Guðjón S. Brjánsson
frá Samfylkingu
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
frá Sjálfstæðisflokki
Dóra Björt Guðjónsdóttir
frá Pírötum
Ásmundur Einar Daðason
frá Framsóknarflokki
Jón Þór Þorvaldsson
frá Miðflokknum
Guðlaug Kristjánsdóttir
frá Bjartri framtíð
Matthías Lýðsson
frá Vinstri grænum
Magnús Þór Hafsteinsson
frá Flokki fólksins.
Hægt er að hlusta á fundinn á
Facebook-síðu Samtaka ungra
bænda.
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, í ræðustól, en hann sagði m.a. nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar. Við háborðið til hægri sitja Einar Freyr Elínarson, formaður
inum. Myndir /LbhÍ
Um hundrað manns mættu til fundarins á Hvanneyri.
Fátt fer framhjá hinu rafræna auga nútímans.
Unga fólkið úr LbhÍ lét sig ekki vanta á fundinn.
Opinn fundur í Ásgarði á Hvanneyri um aukið virði landbúnaðar:
Hægt að þrefalda verðmætasköpun og arðsemi
íslensks landbúnaðar á næstu fjórum árum
– segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, og telur nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar