Bændablaðið - 02.11.2017, Síða 10

Bændablaðið - 02.11.2017, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 FRÉTTIR Um hundrað manns mættu á opinn fund í Ásgarði á Hvanneyri þriðjudaginn 24. október sem bar yfirskriftina Aukið virði landbúnaðarafurða – Hvað ætlar Ísland að gera? Fundurinn var skipulagður af Landbúnaðarháskóla Íslands, Matís og Samtökum ungra bænda. Fulltrúar allra níu stjórn- málaflokkanna sem bjóða fram í Norðvesturkjördæmi mættu og kynntu stuttlega framtíðarsýn flokkanna í landbúnaðarmálum auk þess að svara spurningum í sal í lok fundar. Áhyggjur af byggðaröskun en tækifærin eru víða Einar Freyr Elínarson, formaður Samtaka ungra bænda, setti fundinn og sagðist hafa áhyggjur af mikilli byggðaröskun ef ekkert yrði gert í vanda sauðfjárbænda eins og staðan er í dag og að stjórnmálamenn geti ekki skilað auðu í þessu máli. Hann sagði tækifærin þó vera víða fyrir bændur, m.a. með stórauknum ferðamannastraumi til landsins sem opnað hefði á nýjar leiðir í sölu og þróun matvæla. Sérstaða íslenskra landbúnaðarvara er ótvíræð og neytendur eru sífellt að verða meðvitaðri um hana, mikilvægt er að standa vörð um þessa sérstöðu þegar litið er fram í tímann, sagði Einar. Hann sagði íslenska bændur ekki hrædda við samkeppni en erfitt væri að keppa einungis á verðmiðanum við innflutt kjöt. Eigum vísindafólk á heimsvísu Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, minntist í upphafi ræðu sinnar á að Hvanneyri væri búin að vera miðstöð íslensks landbúnaðar í meira en hundrað ár og þangað hefðu margir sótt sér þekkingu í nýtingu á jörðinni sér og sínum til framfærslu við matvælaframleiðslu í gegnum tíðina. Í dag eigum við vísindafólk á heimsvísu sem hefur sótt sér nám og fengið þjálfun hér á landi í sínum fræðum og vinnur í dag fyrir öflugar stofnanir á sviði landbúnaðar og matvæla. Sæmundur sagði nauðsynlegt að styðja við og hlúa að þessum stofnunum svo innan þeirra sé hægt að þjálfa nýtt fólk sem vinni að nýjum rannsóknum. Síðasta áratug hefur dregið gríðarlega úr fjármagni til Landbúnaðarháskólans og er óviðunandi að fræðasvið landbúnaðarins sé fjársvelt ár eftir ár, sé stefnan að hafa öflugan landbúnað á Íslandi verði að vera öflugur landbúnaðarháskóli á Íslandi, sagði Sæmundur. Nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, sagði nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar og tók sem dæmi hvernig Matís hefur unnið að því markmiði í sjávarútvegi. Síðustu tíu til fimmtán ár hefur verðmæti hvers kílós af afla í sjávarútvegi meira en tvöfaldast og hefur stofnun AVS Rannsóknasjóðs í sjávarútvegi mikið um þá staðreynd að segja, sagði Sveinn. Hægt að þrefalda verðmætasköpun og arðsemi landbúnaðar Rannsóknasjóðurinn var stofnaður árið 2003 en hann veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs og árið eftir var Tækniþróunarsjóður stofnaður, tveir sjóðir með því markmiði að búa til meiri verðmæti. Sveinn segir að sjóður eins og AVS (Aukið verðmæti sjávarfangs) geti hjálpað landbúnaðinum á svipaðan hátt og sjávarútveginum. Fullyrti hann að hægt verði að þrefalda verðmætasköpun og arðsemi íslensks landbúnaðar á næstu fjórum árum. Til þess þarf vísindi og stofnanir, og Matís og Landbúnaðarháskólinn spila þar lykilhlutverk. Sveinn sagði að lokum að það þurfi að fjárfesta í þekkingu og að bændur, sjómenn og fyrirtæki tengd landbúnaði og sjávarútvegi auk stjórnvalda verði að horfast í augu við það. Framsögumenn og frambjóð- endur voru ánægðir með fundinn og minntust margir á nauðsyn þess að ná til ungs fólk því það er hópurinn sem auðveldast er að kynna fyrir nýjungar. Nemendur Landbúnaðar- háskólans fjölmenntu á fundinn og var greinilegt að margir þeirra hafa áhyggjur af núverandi stöðu sauðfjárbænda og framtíð sinni í greininni. Eitt voru allir frambjóðendur sammála um, rannsóknir og nýsköpun eru grundvallaratriði í þeirri vinnu að auka virði afurða í landbúnaði. Frambjóðendur sem sátu fundinn voru: Guðjón S. Brjánsson frá Samfylkingu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir frá Sjálfstæðisflokki Dóra Björt Guðjónsdóttir frá Pírötum Ásmundur Einar Daðason frá Framsóknarflokki Jón Þór Þorvaldsson frá Miðflokknum Guðlaug Kristjánsdóttir frá Bjartri framtíð Matthías Lýðsson frá Vinstri grænum Magnús Þór Hafsteinsson frá Flokki fólksins. Hægt er að hlusta á fundinn á Facebook-síðu Samtaka ungra bænda. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, í ræðustól, en hann sagði m.a. nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar. Við háborðið til hægri sitja Einar Freyr Elínarson, formaður inum. Myndir /LbhÍ Um hundrað manns mættu til fundarins á Hvanneyri. Fátt fer framhjá hinu rafræna auga nútímans. Unga fólkið úr LbhÍ lét sig ekki vanta á fundinn. Opinn fundur í Ásgarði á Hvanneyri um aukið virði landbúnaðar: Hægt að þrefalda verðmætasköpun og arðsemi íslensks landbúnaðar á næstu fjórum árum – segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, og telur nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.