Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
Hestamannafélagið Léttir,
Hestaleigan Kátur, Akureyrar-
bær og Fjölmennt eru að hefja
samstarf um hestamennsku
fyrir fatlaða í í Léttishöllinni
ofan Akureyrar í vetur.
Kynning var í liðinni viku,
öllum opin, á því sem upp á verður
boðið og voru hestar til reiðu, m.a.
með sérbúnaði svo þeir sem áhuga
höfðu á að prófa að bregða sér á
hestbak stóð það til boða. Þó nokkur
fjöldi fólks mætti á kynninguna og
þótti Léttismönnum ánægjulegt að
sjá hversu margir óskuðu eftir að
spreyta sig á hestbaki.
„Gleðin var fölskvalaus og
mikil ánægja er með þetta framtak
okkar,“ segir á heimasíðu Léttis.
Málið verður kynnt frekar á
næstunni og sérstök námskeið þá
jafnframt auglýst. /MÞÞ
Viðamesta rannsókn sem gerð hefur verið á viðburði hérlendis:
Marka þarf skýrari stefnu um þjónustu
við erlenda gesti og sjálfboðaliða
HROSS&HESTAMENNSKA
Samstarf nyrðra um hesta-
mennsku fyrir fatlaðra
Frá kynningu Léttis á Akureyri.
Háskólinn á Hólum og
Landssamband hestamannafélaga
kynntu í síðustu viku niðurstöður
rannsóknar fjölþjóðlegs
rannsóknarhóps um Landsmót
hestamanna 2016 sem viðburðar.
Meginmarkmið rannsóknarinnar
var að afla heildstæðrar þekkingar
um Landsmót hestamanna sem
viðburðar. Frumniðurstöður helstu
rannsóknaþátta hafa verið birtar
en frekari úrvinnsla gagna sem og
kynning niðurstaðna er fyrirhuguð
á alþjóðlegum vettvangi.
Rannsóknahópurinn kom frá
Bretlandi, Noregi og Svíþjóð
auk Íslands og eru meðlimir hans
sérfræðingar á ýmsum sviðum
viðburðahalds og ferðamála.
Meðal þess sem fengist var
við í rannsókninni er efnahagslegt
mikilvægi viðburðarins, upplifun og
hagsmunir heimamanna, upplifun
gesta, viðhorf ræktenda, sýnenda og
sjálfboðaliða og áhrif viðburðarins
á ímynd svæðisins og landsins sem
áfangastaðar. Fjölþættum aðferðum
er beitt við úrvinnslu og greiningu
gagna.
Mótið stóðst væntingar
Meginniðurstaða rannsóknarinnar er
að Landsmót hestamanna á Hólum
2016 stóðst og fór að hluta til fram
úr væntingum markhópsins.
Væntingar til mótsstaðarins
kunna að hafa verið minni sökum
þess hve seint hann var ákveðinn,
en upplifun gesta og heimamanna
af staðsetningunni var jákvæð.
Framkvæmd mótsins fékk
jákvæða dóma meðal þátttakenda
og sérstaklega fyrtir það að
mótsstaðurinn bauð upp á aðstöðu
sem þjónaði allt í senn áhorfendum,
keppendum, sýnendum og hrossum.
Marka þarf skýrari stefnu
Önnur meginniðurstaða rann-
sóknarinnar er að marka þarf skýrari
stefnu um þjónustu við erlenda gesti
og sjálfboðaliða. Ekki er gefið að
ástæða sé til að markaðssetja mótið
fyrir breiðari markhóp, fremur
virðist þörf á að efla þjónustu við
þann afmarkaða markhóp sem
tilheyrir Íslandshestaheiminum í
öðrum löndum.
Fyrir erlenda gesti er mikilvægt
að kynna dagskrá og skipulag
mótsins með löngum fyrirvara. Þá
er rétt að hafa í huga að þó það sé
vissulega góður árangur hve stór
hluti Landsmótsgesta er tryggur
markhópur þá er 6% nýliðun
meðal innlendra gesta hugsanlegt
áhyggjuefni til lengri tíma litið.
Veruleg efnahagsleg áhrif
Í þriðja lagi er ljóst að efnahagsleg
áhrif Landsmóts hestamanna eru
umtalsverð á því svæði sem mótið er
haldið. Varlega áætlaðar niðurstöður
gera ráð fyrir að efnahagsleg áhrif
mótsins, meðan á því stóð, hafi verið
um 160 milljónir íslenskra króna.
Eru þá ótalin önnur efnahagsleg
áhrif, svo sem velta viðburðarins
sjálfs.
Hægt er að nálgast rafbókina
með niðurstöðum rannsóknanna á
Landsmóti hestamanna 2016 á vef
Háskólans á Hólum, www.holar.is.
/VH
Rannsóknahópurinn sem gerði úttekt á Landsmóti hestamanna á Hólum 2016 kom frá Bretlandi, Noregi og Svíþjóð
auk Íslands og eru meðlimir hans sérfræðingar á ýmsum sviðum viðburðahalds og ferðamála.
Hólar í Hjaltadal. Mynd / HKr.
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akranes | Akureyri | Egilsstaðir| Húsavík| Reykjanesbær| Selfoss | Vestmannaeyjar
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Verður haldin að Hótel Smyrlabjörgum laugardaginn 11. nóvember.
√ Veislustjóri er Stefán Bogi Sveinsson.
√ Skemmtiatriði frá heimafólki.
√ Lambakjöt og annar veislumatur á borðum að hætti Hótelsins.
√ Hljómsveitin KUSK leikur fyrir dansi og spilar undir fjöldasöng.
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00.
Miðapantanir í síma 478 1074 eða á smyrlabjorg@smyrlabjorg.is
Miðaverð er 6.000 kr.
Allir velkomnir!
UPPSKERUHÁTÍÐ BÆNDA Í
AUSTUR-SKAFTFELLSSÝSLU 2017
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 • Næsta blað kemur út 16. nóvember