Bændablaðið - 02.11.2017, Qupperneq 30

Bændablaðið - 02.11.2017, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Fyrirtækið Heilsuprótein tekið til starfa á Sauðárkróki: Mysu breytt í próteinduft og etanól – Tímamót í umhverfismálum og nýsköpun innan mjólkuriðnaðarins hér á landi – eldsneyti og áfengi nú hluti af afurðum bænda Fyrirtækið Heilsuprótein ehf. hefur tekið til starfa á Sauðárkróki, en ný verksmiðja þess var formlega nýverið tekin í notkun að viðstöddu fjölmenni. Eigendur félagsins eru Mjólkursamsalan og Kaupfélag Skagfirðinga. Hjá Heilsupróteini verða framleiddar verðmætar afurðir úr mysu sem áður var fargað. Starfsemi er nú hafin í fyrri áfanga verksmiðjunnar, þar sem um er að ræða framleiðslu á próteindufti úr mysu, en hún fellur til við ostagerð á Vestur-, Norður- og Austurlandi. Framleiðslan markar tímamót í umhverfismálum og nýsköpun innan mjólkuriðnaðarins á Íslandi og á sama tíma er verið að auka verðmætasköpun með framleiðslu á vörum úr hráefni sem áður fór til spillis. Mysunni, alls um 54 þúsund lítrum, hefur fram til þessa verið hleypt beint í sjóinn. Alkóhól framleitt í seinni áfanga Í síðari áfanga verksmiðjunnar, sem áætlað er að komist í gagnið innan tveggja ára, eða á árinu 2019, verður framleitt ethanól úr mjólkursykri ostamysunnar og einnig úr mysu sem fellur til við skyrgerð. Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að framleiða um 1,5 milljón lítra af etanóli á ári, en framleiðslan nýtist m.a. sem eldsneyti og eða vínandi. Eftir að þeim áfanga verður náð mun einungis hreint vatn renna til sjávar úr ostasamlögum á norðan- og austanverðu landinu. 300 tonn af þurrkuðu próteini á ári Gert er ráð fyrir að unnt verði að framleiða um 300 tonn af þurrkuðu próteini á ári. Mysupróteinduft er í ríkum mæli notað í heilsu- og íþróttavörur og einnig í matvælaframleiðslu, en markaður fyrir vörur af því tagi er gríðarstór. Um 60 milljón lítrar af mjólk eru árlega nýttir til ostagerðar, 10% magnsins verður ostur, en 90% er mysa. Stór hluti af henni var ekki nýttur, en nú verður breyting þar á, þegar framleitt verður annars vegar próteinduft úr afgangsmysunni og hins vegar og síðar alkóhól. Hugmynd verður að veruleika Magnús Jónsson, samlagsstjóri hjá KS, segir að málið eigi sér langan aðdraganda, lengi hafi verið leitað lausna varðandi mysuna og hvernig mætti nýta hana. „Við höfum velt vöngum yfir þessu um árabil, þetta hefur verið langt ferli, það er því ákaflega gleðilegt að sjá þegar hugmynd verður loks að veruleika. Þetta er stór áfangi fyrir okkur og gleðilegur,“ segir hann. Rekstur Heilsupróteins er í húsnæði undir sama þaki og mjólkursamlag KS og eru stöðugildin til að byrja með tvö. Magnús segir að unnið sé af kappi að vöruþróun og möguleikarnir séu margvíslegir. „Við erum að keyra þetta í gang og óhætt að segja að starfsemin fari vel af stað,“ segir hann. Starfsemin muni aukast þegar framleiðsla fer á fullt og muni það kalla á fjölgun starfsmanna. Magnús segir að mikill ávinningur sé af starfseminni þegar horft sé til umhverfisþáttarins og gleðilegt að nú hafi tekist að koma á laggirnar verksmiðju sem sé fjárhagslega hagkvæm, skapi verðmæti úr vöru sem áður var fargað. Nýta hráefni til fulls Ari Edwald, forstjóri Mjólkur- samsölunnar og stjórnarformaður Heilsupróteins, sagði við opnun verksmiðjunnar að samstarfið við KS hefði opnað margar dyr, „og við teljum að hér muni skapast mikil verðmæti með miklum möguleikum á ýmiss konar framleiðsluvörum og útflutningi. Með þessu framtaki viljum við einnig leggja okkar á vogarskálarnar í umhverfismálum í okkar framleiðslu og á sama tíma að nýta hráefni til fulls.“ Sótt fram með nýsköpun og þróun Bjarni Benediktsson, fráfarandi forsætisráðherra, flutti ávarp við opnun verksmiðjunnar og sagði aukin verðmæti afurða lykil að framtíð landbúnaðarins. Miklar breytingar hefðu orðið í íslenskum landbúnaði á stuttum tíma, gríðarleg framleiðniaukning orðið og miklar framfarir. Þannig hefði kúabúskapur tekið stakkaskiptum, mikið væri um nýbyggingar fjósa sem væri merki um þrótt atvinnugreinarinnar. Framkvæmdir og fjárfesting í nýjum húsum og búnaði, sem og fjárfesting í vinnslu Heilsupróteins, væri sá grunnur sem menn vildu sjá undir íslenskan landbúnað. „Að hann sé á hverjum tíma í fremstu röð. Að hann skipi í öndvegi velferð dýra og manna. Að hann geti sótt fram með nýsköpun og þróun.“ /MÞÞ TÆKNI&VÍSINDI Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS, Ari Edwald, forstjóri MS og Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri við opnun nýrrar verksmiðju Heilsupróteins, sem er í eigu Mjólkursamsölunnar og KS. EFLA verkfræðistofa vann að smíði og uppsetningu nýju verksmiðjunnar í samstarfi við forsvarsmenn Heilsupróteins. Framleiðsluferlið er hefðbundið, en helstu einingar verksmiðjunnar eru gerilsneyðing, UF sía, 400 lítra dæla og láréttur þurrkari, sem knúinn er með heitu vatni, gufu og rafmagni. Orkugjafinn, heitt gufu- og vatnslagnir, spennustöð, móttöku fyrir mysuþykkni auk allrar mun einnig sjá um CE-merkingu búnaðarins. Steinunn Þórhallsdóttir, ritari hjá Mjólkursamsölunni, Erla Traustadóttir á Berustöðum, Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum og formaður stjórnar Veglegar veitingar voru í boði fyrir gestina og að sjálfsögðu voru ostar þar í hávegum hafðir. Hjónin Sigrún J. Þórisdóttir og þingmaður Norðvesturkjördæmis og forseti Alþingis, ásamt Bjarna Benediktssyni, fráfarandi forsætis- ráðherra.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.