Bændablaðið - 02.11.2017, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
glæsilegasta lamb sýningarinnar á
velli en glæsileikinn var einnig í gerð.
Hann er mjög bollangur mjög vel
gerður með frábæra vöðvafyllingu
á baki og í lærum. Faðir hans er frá
Dalmynni þangað sem stutt er að leita
toppa eldri sýninga ef áfram er rakið.
Móðurfaðir er Garri 11-908 en síðan
skammt að leita hrúta frá Ásbirni í
Haukatungu á móðurhliðina.
Í þriðja sæti kom síðan lamb
252 á Fáskrúðarbakka. Þetta lamb
var gríðarlega vel gert og jafnvel
skapað þannig að það nálgaðist
mikið hugmyndir okkur um úrvals
kjötsöfnunarfé. Föðurfaðir þess er
Þorsti 11-910.
Í lok sýningar afhenti Lárus
þeim Dóru og Bárði á Hömrum
hinn glæsilega farandgrip,
verðlaunaskjöldinn frá 1954 til
varðveislu næsta árið fyrir lamb 18
sem þegar hefur verið fjallað um.
Rétt er enn og aftur að vekja
athygli á því hve stór hluti toppanna
áttu að mæðrum mjög ungar ær. Það
er aðeins enn ein staðfesting þess hve
sterk fjárrækt er stunduð á svæðinu.
Yngri gripirnir ryðja þeim eldri úr
sæti.
Í ljósi þeirrar stöðu sem
nú er í framleiðslumálum
sauðfjárræktarinnar þá hélt ég að
sýningar sem þessar gætu lent í
öldukasti í haust. Sú hefur sem betur
fer ekki orðið raunin heldur þvert á
móti. Ég tel mig skynja að bændum
er orðið það ljóst að forystu í sínum
málum sækja þeir ekki lengur til
stjórnenda BÍ eða undirstofnana
þess. Þeir verða meira og meira að
treysta á eigin getu og styrk til að
koma sínum málum áfram. Einn
hlutur þess er að sýna vel það sem
líklega hefur verið best gert í þessu
starfi á undaförnum áratugum.
Þannig sýnir stéttin bæði sjálfri sér
og öðrum sinn innri styrk. Á því er
meiri þörf nú en nokkru sinni áður.
Þessi sýning er líklega sú
glæsilegasta sem nokkru sinni hefur
verið haldin á Snæfellsnesi. Aðsókn
að sýningunum var meiri en nokkru
sinni. Ég lýk því þessum skrifum
með að óska Snæfellingum til
hamingju með frábæra sýningu sem
sýndi glæsilegan árangur kröftugs
ræktunarstarfs síðustu áratuga.
/Jón Viðar Jónmundsson.
Vinningshafar í kollóttu hrútunum
talið frá hægri: Besti hrúturinn
er frá Hjarðarfelli frá Guðbjarti
Gunnarssyni, í öðru sæti Ásbjörn
Pálsson, Syðri Haukatungu og í
þriðja sæti Guðlaug Sigurðardóttir
Hraunhálsi.
Besti kollótti hrúturinn
frá Hjarðafelli.
Vinningshafar í hvítu hyrndu hrútunum. Besti hrúturinn er frá Bárði Rafnssyni
(fyrir miðju) og Dóru Aðalsteinsdóttur Hömrum. Í öðru sæti var hrútur frá
Snorrastöðum en Ásbjörn Pálsson er á myndinni og tók við verðlaunum
fyrir hann. Í þriðja sæti var svo hrútur frá Kristjáni Þór Sigurvinssyni á
Fáskrúðarbakka.
Mynd af gimbrunum sem voru í happdrættisvinning. Þær voru frá Bárði á
Hömrum og Guðlaugu í Hraunhálsi. Þær hlutu þeir Hallur Pálsson á Naustum
og Guðjón Jóhannesson frá Syðri Knarrartungu.
Margir litir og margir hrútar í mislitu hrútunum austan girðingar Syðri
Haukatungu.