Bændablaðið - 02.11.2017, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
Kraftaverk má vinna með
lífrænum úrgangi sem til fellur
í samfélaginu, til dæmis á
sveitabæjum. Næringarskortur
á melum gerir að verkum að
þeir gróa seint upp þrátt fyrir
beitarfriðun. Flýta má mjög fyrir
gróðurframvindu með því að bera
lífrænan áburð á melana.
Gott dæmi um þetta er öflugt
starf Þorvaldar Jónssonar, bónda
í Brekkukoti í Reykholtsdal,
Borgarfirði. Þorvaldur fór fljótlega
eftir að hann tók við búi í Brekkukoti
1990 að fikta við að bera moð undan
súgþurrkunargrindum í hlöðunni á
svæði þar sem hafði verið malarnám.
Smám saman vatt landbótastarfið
upp á sig og Þorvaldur hefur náð
góðum tökum á nýtingu lífræns
úrgangs sem til fellur á búinu til
landgræðslustarfa og skógræktar.
Fiktið varð að fíkn
Þegar Þorvaldur fór að sjá árangur
segir hann að fiktið hafi orðið að
fíkn og nú hefur hann grætt upp
um 80–90 hektara sem áður voru
bara berir melar og eru nú orðnir
grasi grónir. Rétt fyrir aldamótin
var líka farið að rækta skóg á
svæðinu, m.a. á svæði þar sem
Þorvaldur hefur notast við seyru
sem áburð.
Settar hafa verið niður um
34.000 trjáplöntur. Þorvaldur segir
mjög sniðugt að nota sauðatað,
dreifa því með keðjudreifara og
gróðursetja trén beint í landið
á eftir. Frá þessu er greint á vef
Skógræktarinnar. /MÞÞ
TIL SÖLU
Hilltip Spraystriker
Pækildreifarar frá Hilltip 500–
2000 lítrar, hámarks dreifibreidd
5 metrar. Fyrir pallbíla og minni
vörubíla. Rafdrifin 12V.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótennur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegar í
165 cm–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa . Fáanlegir í
185 cm–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SML
Snjótennur fyrir minni vörubíla
ca. 7,5 tonn. Fáanlegar í
260 cm–300 cm breidd.
Hilltip Sweepaway
Sópur fyrir gröfur, lyftara og
dráttavélar. Fáanlegir í breidd-
um 1,5 m–4,0 m.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S: 551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker
Salt og sanddreifarari í þremur
stærðum, fyrir pallbíla sem og
minni vörubíla. Rafdrifin 12V.
Vöxtur í fjölda ferðamanna
síðustu ár í Austur-Skaftafellssýslu
er ævintýralegur en á síðasta ári
komu um 700 þúsund ferðamenn
á svæðið. Um helmingur
kemur yfir sumartímann en
vetrarferðamennska hefur
styrkt sig mikið í sessi í Austur-
Skaftafellssýslu undanfarin ár.
Á Hornafjarðarsvæðinu eru um
40 fjölskyldur sem hafa lifibrauð
sitt af afþreyingariðnaði í
ferðaþjónustu og enn fleiri sem
bjóða gistingu og aðra þjónustu.
Gríðarleg breyting hefur orðið á
samfélaginu á síðustu 10 árum
þar sem ferðaþjónusta er hinn
nýi burðarás.
Þetta kom fram í erindi
Hjalta Þórs Vignissonar,
framkvæmdastjóra sölu og þróunar
hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Skinney
Þinganesi, á uppskeruhátíð Félags
ferðaþjónustubænda sem haldin var
á Smyrlabjörgum í vikunni.
Hjalti Þór, sem áður var bæjarstjóri
sveitarfélagsins Hornafjarðar, sagði
frá atvinnuþróun og ferðamennsku í
héraðinu sem er afar blómleg. Hann
fjallaði meðal annars um samspil
fyrirtækja á svæðinu sem sæju hag
í því að vinna saman að uppbyggingu
atvinnulífsins. Samfélagið á Höfn
nýtur góðs af sterkum fyrirtækjum en
nú er svo komið að afar erfitt er að
fá húsnæði á svæðinu vegna mikillar
eftirspurnar.
Sjávarútvegsfyrirtæki í
landbúnaði og ferðaþjónustu
Hjalti Þór fór yfir starfsemi
Skinneyjar Þinganess sem vinnur á
nokkrum sviðum. Auk þess að stunda
sjósókn og úrvinnslu hefur Skinney
Þinganes haslað sér völl í landbúnaði
og ferðaþjónustu. Fyrirtækið á og
rekur kúabúið Flatey á Mýrum þar
sem eru um 240 mjólkandi kýr.
Mikill áhugi er á meðal ferðamanna
að skoða fjósið og hefur fyrirtækið
svarað þeirri eftirspurn með því að
byggja upp gestastofu þar sem hægt
er að horfa yfir fjósið og fræðast
um starfsemina. Þá hefur Skinney
Þinganes tekið þátt í uppbyggingu í
veitingaþjónustu á Höfn með góðum
árangri.
Fiskur fyrir ferðamenn
Í máli Hjalta Þórs kom fram að
Skinney Þinganes hyggst bæta
þjónustu við veitingastaði og
bjóða þeim upp á aukið úrval af
fiski. Hingað til hefur það verið
vandkvæðum bundið að afgreiða
litlar sendingar til veitingahúsa þar
sem tækjabúnaður hefur ekki boðið
upp á slíka vinnslu. Hjalti Þór sagði
að ný tækni í fiskvinnslu gerði það
að verkum að auðveldara væri að
sérsníða vörur fyrir veitingahús.
Eftirspurn væri greinilega fyrir
hendi en hingað til hefðu stór
sjávarútvegsfyrirtæki átt erfitt með
að sinna markaðnum sem er lítill
og sérhæfður. Viðskipti með humar
til veitingahúsa byggja á gömlum
grunni en ríflega helmingur af humri
frá Skinney er seldur innanlands.
Hinn helmingurinn fer til háklassa
veitingahúsa á meginlandinu.
Á uppskeruhátíðinni var greinilegt
að ferðaþjónustubændur tóku vel í
áætlanir Skinneyjar um aukin viðskipti
með fisk við ferðaþjónustuaðila. Svo
undarlegt sem það má virðast þá hefur
framboð á ferskum fiski ekki verið
nægilega gott víða á landsbyggðinni
en það stendur nú til bóta. Aðspurður
sagði Hjalti Þór að fyrirtækið myndi
byrja á heimaslóðum og sjá svo til
hvernig gengi, þá væri vonandi hægt
að auka þjónustuna og breiða hana út
víðar um landið. /TB
Ferðaþjónustan er orðin burðarás í atvinnulífi Austur-Skaftafellssýslu:
700 þúsund ferðamenn lögðu
leið sína á Hornafjarðarsvæðið
Hjalti Þór Vignisson, framkvæmdastjóri sölu og þróunar hjá sjávarútvegs-
fyrirtækinu Skinney Þinganesi, hélt erindi á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu
bænda þar sem hann sagði m.a. frá því að fyrirtækið ætlaði að auka sölu á
Mynd / TB
Moð úr fjárhúsum upplagt til skóggræðslu á melum:
Bóndi í Reykholtsdal hefur grætt upp
80–90 hektara og sett niður 34.000 tré
Þorvaldur Jónsson, bóndi í Brekkukoti, segir mjög sniðugt að nota sauðatað, dreifa því með keðjudreifara og
gróðursetja trén beint í landið á eftir.
Engar almenningssamgöngur á svæðinu austan Húsavíkur:
Stórlega vegið að þjónustu við íbúana
Engar almenningssamgöngur
eru á svæðinu austan Húsavíkur,
en í lok ágúst samþykkti stjórn
Eyþings að hætta að þjónusta
svæðið með Strætóferðum.
Verkefnastjórn Brothættra
byggða á norðausturhorninu,
Raufarhafnar og framtíðar
og Öxarfjarðar í sókn, hefur
samþykkt ályktun þar sem þessu
er mótmælt.
Strætóþjónusta hefur þegar verið
felld niður og engar áætlunarferðir
eru á svæðinu austan Húsavíkur.
Verkefnastjórn segir að með þessari
ákvörðun sé stórlega vegið að
þjónustu við íbúa á þessu svæði
og þeirri uppbyggingu sem þar á
sér stað.
„Með þessu er verið að dæma
svæðið óaðgengilegt fyrir aðra
en einkabílaeigendur. Það skerðir
möguleika fólks sem vill eiga
búsetu á svæðinu að sækja nám
og störf út fyrir svæðið, til dæmis
ungmenni í námi á Húsavík,
Laugum eða Akureyri. Einnig er
þetta skellur fyrir ferðaþjónustuna,“
segir í ályktun verkefnastjórnar
sem bætir við að ferðaþjónusta
sé mest vaxandi atvinnuvegurinn
á svæðinu um þessar mundir og
skerðing á þjónustu dragi úr slíkri
starfsemi.
Lagðir séu starfskraftar og
fjárhæðir í að styrkja svæðið og
ávinningur hafi orðið í öðrum
verkefnum, en ákvarðanir af
þessu tagi setji mikið strik í
reikninginn og komi að auki í
veg fyrir framþróun nokkurra
markmiða. „Það er hastarlegt að
á sama tíma og íbúar, stoðkerfi,
sveitarfélög, landshlutasamtök
og ríki taka höndum saman í
byggðarþróunarverkefnum skuli
þjónusta hins opinbera vera felld
niður með þessum hætti,“ segir í
ályktun verkefnastjórnar.
Póstbílar og aðrir flutningabílar
mega ekki taka farþega.
Verkefnastjórn bendir á að í
dreifðari byggðum þar sem
markaðsbrestur sé á þjónustu
varðandi farþegaflutninga sé
óhjákvæmilegt að endurskoða
slíkar reglur án tafar með það að
augnamiði að nýta ferðir sem eru
til staðar og koma þannig á móts
við íbúa. /MÞÞ